Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 6
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 18. SUN. 13 - 17. BÍLDSHÖFÐA / AKUREYRI / SELFOSSI
20%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM
GÖTUSKÓM
Gildir 6.-10. apríl 2017
© GRAPHIC NEWSHeimild: Wire agencies
Að minnsta kosti órir hafa látið líð og eiri eru
særðir eir að vörubíl var rænt og honum ekið inn í
verslun í miðborg Stokkhólms, höfuðborgar Svíþjóðar
STOKKHÓLMUR
Lestarstöðin
í Stokkhólmi
Ráðhúsið
Riksdagshuset
Þinghús Svíþjóðar
Konungshöllin
Drottninggatan
Vettvangur árásarinnar
Hér endaði
bíllinn för sinni
500m
Stokkhólmur
Árásin í Stokkhólmi
Svíþjóð „Þetta var hræðilegt, alveg
ótrúlega sorglegt,“ segir Gígja Ísis.
Hún vinnur í höfuðstöðvum H&M í
Stokkhólmi, á sama horni og vöru-
hús Åhlens er á. Vöruflutningabíl
var ekið inn í húsnæði Åhlens í gær
með þeim afleiðingum að þrír létu
lífið. Gígja, sem var einn nokkurra
Íslendinga sem voru við Drottning-
argötuna þegar ódæðið var framið,
segist hafa heyrt dynk þegar bílnum
var ekið niður Drottningargötu og á
húsið. „Við litum út og sáum bíl og
reyk og manneskju á gólfinu og fólk
að hlaupa,“ segir hún.
Í framhaldinu læsti öryggisvörð-
urinn í húsnæði H&M dyrunum og
fjöldi fólks var læstur inni í húsnæð-
inu. „Miðborgin var bara læst inni
í heild sinni. Það eru mörg þúsund
manns í höfuðstöðvum H&M og við
vorum læst inni í svona þrjá klukku-
tíma. „Það var hræðilegt að heyra
þennan dynk,“ segir hún. Hún segist
síðan hafa hlaupið út að glugga og
séð bíl og reyk. „En ég veit að það
voru margir sem voru á annarri og
þriðju hæð sem sáu þetta gerast,“
segir hún. Fólkinu í húsinu var síðan
bannað að fara að glugganum af ótta
við að bíllinn myndi springa. Sem
hann gerði sem betur fer ekki, segir
Gígja.
Helena Reynisdóttir er í námi í
Stokkhólmi. Hún og Birna Hrönn
Gunnlaugsdóttir, vinkona hennar,
voru staddar í verslun við Drottn-
ingargötuna, mjög nálægt Åhlens.
„Við vorum inni í búð sem heitir Zara
og er rétt hjá. Mér finnst allir vera
rosa stressaðir og svo heyri ég fólk
öskra og fólk hlaupa inn í búðina til
okkar og þá sé ég bílinn bruna fram
hjá okkur og það kom svona eins
og vindhviða inn í búðina og allir
öskrandi og hlaupandi,“ segir Hel-
ena. Hún segist hafa áttað sig strax á
því að eitthvað skrýtið væri á seyði.
„Þetta er göngugata og það er aldrei
neinn að keyra þarna og hann keyrði
svo hratt,“ segir Helena. Hún segir
að fólk hafi hópast aftast í búðina og
staðið þar stjarft.
„Svo heyrist skellur og eftir það
voru allir að hlaupa út um allt. Við
vinkona mín héldum að þetta væri
okkar síðasti dagur,“ segir Helena.
Þær reyndu að komast út úr verslun-
inni en hikuðu aðeins þegar þær sáu
lögregluna. Síðan fylltust þær kjarki
og ákváðu að hlaupa út eins hratt og
þær gátu og frá götunni. „Við sáum
fullt af öðru fólki gera það sama,
öskrandi og grátandi,“ segir Helena.
Þær náðu strætó og fóru með honum
til bróður Helenu sem býr í útjaðri
Stokkhólms. „Við erum enn í losti og
sjáum þetta enn þá fyrir okkur,“ segir
Helena. jonhakon@frettabladid.is
Vegfarendur héldu að þeir
væru að upplifa sitt síðasta
Þúsundir Íslendinga eru staddir í Stokkhólmi á hverjum degi. Nokkrir þeirra voru við Drottningargötu
þegar hryðjuverk var framið þar um miðjan dag í gær. Sumir þeirra voru læstir inni klukkutímum saman á
meðan lögreglan var að tryggja öryggi á svæðinu. Upplifðu mikla hræðslu og ringulreið eftir árásina.
ÖryggiSmÁl Eftir árásina í Stokk-
hólmi ákvað greiningardeild ríkis-
lögreglustjóra að virkja verklag
vegna hryðjuverkaárása í nágranna-
löndum. Í tilkynningu sem lög-
reglan sendi frá sér segir að viðbún-
aðarstig verði ekki hækkað að svo
stöddu.
Þá hefur ríkislögreglustjóri beint
því til lögreglunnar á Suðurnesjum
að vera sérstaklega vakandi vegna
flugs frá Svíþjóð. Hann tekur fram
að ekki séu fyrirliggjandi upplýs-
ingar þess efnis að á leið til landsins
séu grunaðir aðilar, heldur sé um
öryggisráðstöfun að ræða.
Þá hefur verið ákveðið að fjölga
sérsveitarmönnum á vakt um
helgina og því hefur verið beint til
lögreglumanna að vera á varðbergi
gagnvart grunsamlegum einstakl-
ingum og óvenjulegum atburðum
sem gætu tengst áformum um stór-
fellda ofbeldisglæpi.
Greiningardeild og alþjóðadeild
ríkislögreglustjóra fylgjast með sam-
skiptakerfum við erlend lögreglulið
og öryggisstofnanir og einnig með
fjölmiðlum og munu meta stöðuna
eftir því sem upplýsingar berast.
Íslenska lögreglan fjölgar sérsveitarmönnum á vakt
UtanríkiSmÁl „Hugur okkar er hjá
sænsku þjóðinni. Þetta eru vinir
okkar og frændur. Þegar svona er
gengið fram er þetta ekki bara árás
á sænsku þjóðina, þetta er árás á
okkur öll,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór segir atburðina
vera áminningu til Íslendinga um
að vera ávallt á verði. „Öryggi borg-
aranna er afskaplega mikilvægt svo
ekki sé dýpra í árinni tekið. Án þess
að gera neitt mikið úr því, er alltaf
mikilvægt að það sé viðbúnaður til
staðar,“ segir Guðlaugur. Vissulega
sé viðbúnaður til staðar. „En það er
alveg ljóst að þetta er mikil ógn og
við þurfum að meta það hvort það
sem við erum með í dag sé nægjan-
legt,“ segir hann. – jhh
Árás á okkur öll
UtanríkiSmÁl „Við verðum að vera
á varðbergi, en við megum ekki
lifa í stöðugum ótta,“ segir Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
þegar Fréttablaðið spyr hann hvort
Íslendingar þurfi að óttast hryðju-
verkaárás. Hann segir að sér sé efst
í huga samúð með Svíum vegna
árásarinnar í gær og fordæmir hana.
Guðni sendi Svíakonungi samúðar-
kveðju fyrir hönd íslensku þjóðar-
innar í gær. Í kveðjunni segir hann
að með þessari árás sé vegið að
grunngildum samfélagsins. „Við sem
viljum verja lýðræði, frelsi og mann-
réttindi verðum að standa saman
gegn öflum öfga og ógnar.“ - jhh
Við megum
ekki lifa í ótta
Guðni Th. Jóhannesson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Þetta er göngugata
og það er aldrei
neinn að keyra þarna og
hann keyrði svo hratt.
Helena Reynis-
dóttir, íbúi í Stokk-
hólmi
Hugur okkar er hjá
sænsku þjóðinni.
Þetta eru vinir okkar og
frændur.
Sérsveitarmönnum á vakt verður fjölgað um helgina.
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-A
1
C
8
1
C
A
1
-A
0
8
C
1
C
A
1
-9
F
5
0
1
C
A
1
-9
E
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K