Fréttablaðið - 08.04.2017, Síða 12
Málverk eftir Kristínu Jónsdóttur
og Jón Stefánsson
Studio Stafn, Hátúni 6B, Sími 552 4700.
Leitum eftir góðum málverkum, helst blómauppstillingum eftir
Kristínu Jónsdóttur og Jón Stefánsson til kaups fyrir viðskiptavin.
Ný verk í sölu á:
studiostafn.is/listaverkasala
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Nýr e-Golf er væntanlegur.
Hvers manns straumur.
Leyfðu nýja e-Golfinum að koma þér lengra; 300 km drægni og meiri kraftur. Skráðu þig
á póstlistann hjá okkur á hekla.is/nyrgolf og við látum þig vita þegar hann lendir.
MenntaMál Bandalag háskóla-
manna (BHM) og Landssamtök
íslenskra stúdenta (LÍS) hyggjast
senda sameiginlegt erindi til
menntamálaráðuneytisins þar sem
óskað er eftir að ráðuneytið móti
reglur um starfsnám sem gildi fyrir
alla háskólana. Allur gangur er á því
hjá háskólunum hvernig samningur
þeirra er við stofnanir og fyrirtæki
um starfsnám.
Ríkisstofnanir auglýsa um þessar
mundir launað og ólaunað starfs-
nám fyrir laganema í vor og sumar.
Starfsnámið er metið til eininga hjá
Háskóla Íslands. Meðal stofnana sem
ekki greiða laun eru velferðarráðu-
neytið og Neytendasamtökin. Í svari
frá velferðarráðuneytinu kemur fram
að samstarfssamningar séu gerðir að
frumkvæði háskólanna og er starfs-
námið hluti af námi hlutaðeigandi
nemenda, líkt og kemur fram og er
skilgreint í samningunum sjálfum.
Í auglýsingu frá Neytendasamtök-
unum kemur fram að ef vel gengur
geti starfsnámið leitt til sumarstarfs.
Á síðasta ári gagnrýndi Bandalag
háskólamanna ólaunað starfsnám
sem WOW air auglýsti fyrir laga-
nema. Erna Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri BHM, segir að sömu
reglur eigi að gilda um ólaunað
starfsnám hjá hinu opinbera.
„Við höfum verið að fylgjast með
auglýsingum eftir starfsnemum og
þar höfum við skoðað hvað er á
bak við það. Það er allur gangur á
því hvort það standist skoðun eða
ekki,“ segir Erna.
„Þetta er að mínu mati ekki gott
því síðan eru nemarnir í þeirri erf-
iðu aðstöðu að vera að reyna að fá
eitthvað á ferilskrá sína og eru ekki
að hugsa út í að það sé eitthvað
bogið við það að þau séu að sinna
störfum án þess að fá laun fyrir,“
segir Erna.
David Erik Mollberg, fráfarandi
formaður LÍS, segir starfsnám
umdeilt mál innan háskólasamfé-
lagsins. „Það er til reglugerð um
starfsnám í framhaldsskóla. Við
verðum að fara að vinna í að þróa
reglugerð á háskólastigi.“
saeunn@frettabladid.is
Vilja að ráðherra setji
reglur um starfsnám
Bandalag háskólamanna og Landssamtök íslenskra stúdenta vilja að mennta-
málaráðuneytið móti skýrar reglur um starfsnám sem gildi fyrir alla háskólana.
Laganemum býðst um þessar mundir bæði launað og ólaunað starfsnám.
heilbrigðisMál Vegna sífellt vaxandi
fjölda þeirra sem þurfa á þjónustu
Landspítalans að halda hverfur
ávinningur umbótaverkefna innan
spítalans fljótlega eftir að þeim er
komið á.
„Þessi veruleiki er samfélags-
legt verkefni sem þarf að leysa með
öðrum hætti en að skera frá Land-
spítala mikilvæga grunnstarfsemi,
eins og tilteknar sérhæfðar aðgerðir.
Ráðast verður að rót vandans sem
er áralangt andvaraleysi okkar sem
samfélags gagnvart vaxandi þörfum
þeirra sem nú eru orðnir aldraðir,“
skrifar Páll Matthíasson í forstjóra-
pistli sínum á vef spítalans.
Páll segir að til spítalans leiti nú
stórir árgangar fólks úr svo kallaðri
„barnasprengju“ eftirstríðsáranna
og árganganna þar á undan. Hann
vísar til þess að þegar samfélagið
tók á móti þessum hópum hafi ráða-
mönnum verið ljóst að ráðast þyrfti
í mikla uppbyggingu í skólakerfinu
„til að sinna þeim þokkalega. Nú eru
þessir stóru hópar að koma af fullum
þunga inn í heilbrigðis- og félags-
kerfið og þurfa þjónustu. Sumu af
henni getum við á Landspítala sinnt
og viljum gjarnan en langstærsti hóp-
urinn þarf þjónustu annars staðar,“
skrifar Páll.
Hann bætir við að enn og aftur
sé ástæða til að gera gera það að
umtalsefni að vaxandi þungi hefur
lengi verið í álagi á bráðamóttökur
og bráðalegudeildir og sérstaklega
þungt hafi verið síðustu vikur. – shá
Samfélagið andvaralaust
fyrir þörfum aldraðra
Ráðast verður að
rót vandans sem er
áralangt andvaraleysi okkar
sem samfélags gagnvart
vaxandi þörfum þeirra sem
nú eru orðnir aldraðir.
Páll Matthíasson,
forstjóri Land-
spítalans
Margir nemar reyna að fá eitthvað bitastætt á ferilskrá. Fréttablaðið/Ernir
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-C
4
5
8
1
C
A
1
-C
3
1
C
1
C
A
1
-C
1
E
0
1
C
A
1
-C
0
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K