Fréttablaðið - 08.04.2017, Síða 28
Rúnar, fæddur 1958, hann lést í
hörmulegu slysi 22 ára þegar verið
var að gera tilraunir með að draga
hann í flugdreka á loft með bíl í
fyrsta skipti í Eyjum. Ég bið Bjarna
að segja mér frá honum. „Rúnar
var mjög þægilegur, klár strákur
og kátur, það var aldrei hægt að
skamma hann, hann var svo næs
gæi.“
Sorgin hafði áður barið að dyrum
hjá Bjarna og Jórunni því þriðja
barn þeirra, Bergur, sem var efnis
drengur, veiktist hastarlega og dó
aðeins rúmlega ársgamall. Leiðið
hans er í kirkjugarðinum á Hofi í
Öræfum. Valgerður er eina barn
Bjarna og Jórunnar sem býr í Eyjum.
Hún er kennari og hjálparhella for
eldra sinna. Bergþór er yngstur
systkinanna, íslenskufræðingur og
sjálfstætt starfandi fjölmiðlamaður
í Frakklandi. Hann kemur alloft
heim og svo sendir hann pabba
sínum útvarpspistla.
Þó hús Bjarna og Jórunnar sé
vestast í bænum fóru þau að sjálf
sögðu með börnin upp á land gos
nóttina 1973. En kíktu fyrst á ham
farirnar. „Við fórum á Trabantinum
niður á Urðir, þar sem nýja hraunið
er nú, svo fórum við suður fyrir
Helgafellið til að skoða gosið hinum
megin frá. Þar var björgunarsveitar
maður sem baðaði út höndum en
við tókum ekkert mark á honum
heldur fórum lengra, þangað til
Jórunn sagði: „Bjarni, er ekki bíllinn
okkar úr plasti?“ Ég tók mark á því
sem mér eldri manneskja sagði og
sneri við. Það munar tveimur árum
á okkur!“
Synti í land við Ingólfshöfða
Bjarni er sundmaður og tekur til
dæmis þátt í Guðlaugssundinu í
Sundhöll Vestmannaeyja þann
10. mars ár hvert. Sumarið 1960 var
hann á leið heim af síldveiðum við
Austfirði en Jórunn stödd í Öræfum
þar sem ströndin er hafnlaus. Þá
stakk hann sér til sunds út af Ing
ólfshöfða og synti í land. Svona er
ástin. „Ég var nú aðallega að spara
flugfargjald,“ segir hann kíminn.
„Jórunn var á sínum heimaslóðum
á Hofi og mér fannst ómögulegt
að fara þar fram hjá, sigla til Vest
mannaeyja, fljúga þaðan til Reykja
víkur og fljúga svo austur í Öræfi,
þangað var ekkert vegasamband á
þeim tíma.“
Hugmyndin að sundinu var
búin að koma upp fyrr um sum
arið og menn skiptust í tvo hópa
um borð, með og á móti, að sögn
Bjarna. „Ég var 1. vélstjóri á Freyju
VE 260 og skipstjórinn, Sigurður
Sigurjónsson, var algerlega á móti
þessu tiltæki. „Það er ég sem er með
Freyjuna og ég segi nei,“ sagði hann.
Siggi hélt sig í bestikkinu á heimleið
og þegar við nálguðumst Höfðann
bankaði ég hjá honum og hálf
hvíslaði: „Siggi, við erum við Ing
ólfshöfða.“ „Jæja, farðu þá,“ sagði
hann og ég flýtti mér að græja mig.
Mannskapurinn stóð með mér.
Þarna er aðgrunnt langt út
en Siggi fór eins nærri
landi og þorandi var.
Við vorum með
nótabát bund
inn við Freyju
og á honum
v a r d a m l a ð
aðeins lengra.
Ég synti af stað
í hermannagalla
einum fata og dró
fötin mín á eftir
mér í sjópoka. Sísal
lína hafði verið fest við
mig en þegar ég var kom
inn dálítið af stað fór hún út í
flækju. Þá tóku félagarnir á það ráð
að binda fangalínu við flækjuna,
það er sver kaðall sem báturinn
er bundinn með við bryggju. Ég
vissi ekkert um þetta, bara puðaði
í sjónum. Siggi varð að færa Freyj
una aðeins utar, þá dró hann nóta
bátinn, fangalínuna, flækjuna og
mig með, sem var að berjast við
að ná landi! Þetta var strembið
en hafðist. Ég tók nokkur skref og
kastaði mér í fjöruna rétt vestan við
höfðann. Stóð samt fljótt upp aftur
og hugsaði: Þetta gengur ekki. Þá
var tíu kílómetra labb eftir um víð
áttumiklar leirur, það var eins og
að vera úti í miðju hafi, bara vatn
til allra átta og sums staðar þungt
undir fæti. Ég sá reyndar mann
langt fyrir austan mig og reyndi að
veifa til hans, veit ekki enn hvort
hann var þessa heims. Hann hefur
örugglega hugsað svipað. Maður
að koma labbandi beint utan frá
sjó? Getur ekki verið.“ Ekki kveðst
Bjarni vita hversu langt sundið
var, það væru flóknar aðgerðir að
reikna það út.
Fyllti flugvélina af plastbrúsum
Bjarni tók atvinnuflugmannspróf
1972 og byrjaði að fljúga með far
þega milli Eyja og lands. Fyrst lenti
hann oftast á Hellu en 1976 fékk
hann aðstöðu hjá Jóni Einarssyni,
bónda á Bakka í Landeyjum. „Ég
lenti þar í uppgrónum kálgarði sem
við sléttuðum og sáðum í. Það var
samvinnuverkefni að búa til flug
völl á Bakka. Landgræðslan kom
myndarlega að því og bærinn lagði
í það. Nú er búið að færa völlinn.
Þarna er allt rennislétt og tekur bara
fimm til sjö mínútur að fljúga hér
á milli.“
Nú vil ég vita hvort Bjarni hafi
komist í hann krappan á litlu vél
unum sínum því oft heyrðist aflýst
flugi hjá Flugfélagi Íslands vegna
þoku eða hvassviðris í Eyjum. „Já,
nafni minn Herjólfsson í flugturn
inum var alltaf hágrátandi yfir
veðrinu og Jórunn líka: „Það er að
versna, það er að versna,“ heyrðist
stöðugt frá þeim. Hjá mér var ekk
ert bras með veðrið en það var bras
með flugturninn og Jórunni. Þetta
slampaðist allt saman.“
Spurður hvort menn hafi verið
hræddir að fljúga með honum
svarar hann hlæjandi: „Já, já. Það
eru til margar sögur. Þú verður að
vera í viku! Í austanátt flýgur maður
austan við Heimaklett yfir bæinn
til lendingar og þegar farið er fram
hjá Helgafelli koma oft svona tveir,
þrír hnykkir á vélina.
Fyrst þegar ég var að
byrja með tveggja
sæta vél sagði ég
þegar hnykk
irnir voru að
baki: „Nú er
það búið,“
en komst
fljótlega að
því að ég þurfti að fara varlega í
orðum því farþegarnir héldu að ég
meinti allt annað.
Einu sinni flaug ég á TFGOS upp
á Akranes með skipalyftunefnd, þar
var stuttur völlur og báðir endarnir
lágu út í sjó. Svo voru deilur um
landið þarna og þetta var kannski
skeiðvöllur annað árið og flugvöllur
hitt. Ég var á sjö manna, eins hreyf
ils vél, í henni voru þrjár sætaraðir
og það var stór hurð aftan á og gott
að komast inn, feitu karlarnir vildu
fara þar inn en ég vildi ekki hafa þá
aftast. Ég bað einn um að færa sig,
það var Siggi vídó. Ég segi við hann:
„Heyrðu, Siggi, viltu ekki vera í mið
röðinni frekar?“ Þá sagði annar: „Þú
móðgar farþegann, gefur í skyn að
hann sé feitur.“ „Það er nú betra að
móðga einn heldur en drepa alla,“
sagði ég. “
Hann kveðst hafa selt TFGOS til
Bretlands og flogið henni þangað í
smáhoppum. „Ég hafði aldrei blind
flugsréttindi en ég sá rosalega vel frá
mér – kannski ekki milli landa – en
það hjálpaði. Ég fyllti flugvélina af
tómum plastbrúsum áður en ég
lagði af stað svo hún flyti, kærði mig
ekkert um að verða fiskafóður þó
ég þyrfti að lenda í sjónum, en allt
gekk vel. Ég náði engu sambandi við
flugturninn á Shetlandseyjum en sá
hvernig traffíkin var og dembdi mér
bara niður. Það sagði enginn neitt,
sjálfsagt algengt að menn kæmu
þangað á síðustu dropunum. Svo
fann ég ekki flugvöllinn í Aberdeen
en allt í einu var helikopter kominn
upp að hliðinni á mér, flugmaður
inn heilsaði kumpánlega og bauðst
til að lóðsa mig.“
Hjálpast að með eldhúsverkin
Bjarni starfrækti fyrirtækið Eyja
flug í tíu ár frá 197383. Hann sýnir
mér mynd af einni vélinni og segir:
„Þegar ég seldi þessa vél eftir fjög
urra ára notkun var ég búinn að
fljúga á henni þúsund tíma og tvö
þúsund flugferðir.“ Þó aldrei hafi
honum hlekkst alvarlega á í flugi
kveðst hann hafa lent í ýmsum
árekstrum og mótvindi af manna
völdum. „Sighvatur, föðurbróðir
minn, rak mig úr Vinnslustöðinni
og ég var rekinn úr Ísfélaginu, í
bæði skiptin vegna ágreinings um
flugmál. Ég var stundum í ónáð,
stundum í náð.“
Þetta síðasta rímar við næstu
sögu því árið 1984 var Bjarni ráð
inn fyrsti framkvæmdastjóri kerta
verksmiðjunnar Heimaeyjar. „Ég
byrjaði á því að fara og kaupa vélar
í Danmörku og setja þær upp og við
fengum kennara til að koma okkur
af stað. Ég fékk lofrollu í fundar
gerðarbókina fyrir hvað mér hefði
tekist vel með þetta. Svo féll ég í
ónáð og var rekinn eftir fjögur ár,
upp á dag. Þarna var verið að remb
ast við að selja og láta fyrirtækið
bera sig en þetta var vinnustaður
fyrir fatlaða.“
Nú býður Bjarni okkur í eld
húsið upp á kaffi og með’ðí. Hann
kveðst verja talsverðum tíma á því
gólfi enda hjálpist þau hjónin að
með eldhúsverkin og önnur hús
verk, skammtímaminni Jórunnar
sé farið að gefa sig. En hann sé gam
all kokkur og kunni ýmislegt. „Afi
minn í Færeyjum var bakari og ég
get alveg bakað – annað en vand
ræði,“ segir hann brosandi.
„Ég fékk lofrollu í fundargerðarbókina fyrir hvað mér hefði tekist vel með
þetta. Svo féll ég í ónáð og var rekinn eftir fjögur ár, upp á dag.“
↣
Bjarni í útvarpsherbergi Úvaff 104. Þar er margt forvitnilegt, meðal annars
mappa með minningum hans af sjónum. FrÉttaBlaðIð/EyÞór ÁrnaSon
nafni minn Herjólfs-
son í flugturninum var
alltaf Hágrátandi yfir
veðrinu og jórunn líka:
„Það er að versna, Það
er að versna,“ Heyrðist
stöðugt frá Þeim.
Aðalfundur Félags rafeindavirkja verður haldinn
þriðjudaginn 18. apríl 2017 kl.17:30 á Stórhöfða 27,
gengið inn að neðanverðu. (Grafarvogs megin)
Dagskrá:
¥ Venjuleg aðalfundarstörf.
¥ Lagabreytingar
¥ Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Birtu, lífeyrissjóðs.
¥ Önnur mál.
Reykjav’k 8. apr’l 2017
Stjórn Félags rafeindavirkja
AÐALFUNDUR
Félags rafeindavirkja
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r28 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-B
F
6
8
1
C
A
1
-B
E
2
C
1
C
A
1
-B
C
F
0
1
C
A
1
-B
B
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K