Fréttablaðið - 08.04.2017, Qupperneq 32
Það er lítið mál að gera þessa ostaköku. Hún er hræðilega einföld og hrikalega góð. Svo er aukameðlæti með henni ef einhver vill spreyta sig, en takið
eftir að það þarf að gera hvíta súkku-
laðið daginn áður,“ segir Leifur Kol-
beinsson matreiðslumeistari. Hann
brást vel við þegar hann var beðinn
um uppskrift að ljúffengum eftir-
rétti sem prýtt gæti páskaborð.
Leifur er nýbúinn að opna nýjan
veitingastað, Marshall restaurant
og bar á Grandagarði. Þar er Vigdís
May Diem Vo konditor hans hægri
hönd þegar kemur að kökum og
það er hún sem á flest handtökin
við kökuna sem hér birtist mynd af.
Sagan á bak við kökuna
En Leifur lumar á lítilli sögu á bak
við þessa köku. „Ég fékk þessa
köku lánaða með góðum hætti á
litlum veitingastað í San Sebastian
á Spáni. Staðurinn heitir Lavina
og á matseðlinum hjá mér skíri ég
kökuna Ostakaka Lavína. Þetta er
er lítill tapasbar og nánast það eina
sem veitingamaðurinn gerir er að
afgreiða þessa köku. Það er alltaf
fullt þarna, alla daga og öll kvöld.“
Leifur sýnir í raun ótrúlegt örlæti
með því að gefa þjóðinni hlutdeild
í þessu ævintýri. Hann útskýrir það
svona. „Af því ég fékk kökuna lánaða
svo fallega hjá Lavina þá gef ég hana
áfram.“
Góð kaka
fengin að láni
gefin
áfram
Vorsólin og krókusarnir minna okkur á hvað
tímanum líður. Páskarnir eru á næsta leiti og
þeim fylgja frídagar, fermingar og ferðalög.
Líka tilbreyting í mat og Leifur Kolbeinsson,
matreiðslumeistari á Marshall restaurant og
bar, gefur hér tillögu að gómsætri ostaköku
sem hann segir einfalt að búa til.
Vigdís kemur hvíta súkkulaðinu fyrir. Fréttablaðið/anton brink
Ein fögur og ljúffeng. Fréttablaðið/anton brink
Vigdís May Diem Vo, konditor.
Fréttablaðið/anton brink
leifur kolbeinsson kokkur í önnum í eldhúsinu. Fréttablaðið/GVa
1 kg Philadelphia-rjómaostur
420 g sykur
480 g rjómi
7 egg
60 g hveiti
Þeytið rjómaost og sykur saman,
bætið eggjunum rólega út í og
þeytið þangað til blandan er ljós.
Setjið þá rjómann út í og blandið
hveitinu rólega saman við.
Bakið kökuna við 210 gráður í 50
mínútur.
Pistasíu-Crumble
100 g hveiti
100 g sykur
100 g pistasíur, fínt saxaðar
100 g smjör
Setjið allt í skál og hrærið þar til
allt er komið saman.
Bakist við 160 gráður í 20
mínútur.
Hvítt súkkulaði
lime GanaCHe
150 g rjómi
25 g hunang
300 g hvítt súkkulaði 35%
2 lime-ávextir – börkur af báðum
og safi úr 1/2 lime
Setjið rjóma, sykur, börk af
báðum lime-ávöxtunum og safa
úr hálfum í pott og sjóðið.
Bræðið hvíta súkkulaðið. Hellið
rjómanum rólega út í og hrærið í.
Setjið í box og kælið yfir nótt.
Ávaxtasalat
50 g fersk hindber
50 g fersk brómber
50 g fersk bláber
50 g absolu Cristal Glaze
10 g vatn
Hitið Absolu glaze og vatn létt
upp, setjið töfrasprotann í og
þeytið. Kælið. Hellið yfir ávaxta-
blönduna og blandið vel saman.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ostakaka
Þetta er er lítill
taPasbar oG nÁnast
Það eina sem veitinGa-
maðurinn Gerir er að
afGreiða Þessa köku.
&
best er að Hafa
ostakökur í kæli í 12
tíma Áður en Þær eru
teknar úr forminu.
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-C
E
3
8
1
C
A
1
-C
C
F
C
1
C
A
1
-C
B
C
0
1
C
A
1
-C
A
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K