Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 36
Í janúar síðastliðnum byrjaði Hjálparstarfið með nýtt
verkefni í Kampala höfuðborg Úganda en þangað ligg-
ur þungur straumur ungs fólks í von um betra líf. Því
miður bíður flestra þeirra hins vegar atvinnuleysi og
eymdarlíf í fátækrahverfum og mörg ungmenni leiðast
út í smáglæpi og vændi til að lifa af.
Kampalaverkefnið er í þremur fátækrahverfum í höf-
uðborginni og varir í 3 ár. Það er unnið í samstarfi við
Lútherska heimssambandið og samtökin UYDEL (Ug-
andan Youth Development Link) með góðum stuðningi
utanríkisráðnuneytisins.
Markhópur verkefnisins er 1500 börn og ungmenni á
aldrinum 13–24 ára. Markmiðið er að unga fólkið öðlist
verkkunnáttu sem það geti nýtt til að sjá sér farborða,
að það taki þátt í uppbyggilegum tómstundum og nám-
skeiðum sem styrkja sjálfsmyndina og að þau séu upp-
lýst um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjón-
ustu.
UYDEL hefur rúmlega tuttugu ára reynslu af því að
vinna með ungu fólki í fátækrahverfum Kampala. Sam-
tökin reka verkmenntamiðstöðvar þar sem ungmennin
geta valið sér ýmis svið og öðlast nægilega hæfni til að
verða gjaldgeng á vinnumarkaði svo sem við hár-
greiðslu, matreiðslu, rafvirkjun, saumaskap og sápu-
gerð.
Ég er nýkominn úr vettvangsferð til Kampala þar sem
ég hitti ungmenni og stjórnendur verkefnisins. Það
skein gleði, áhugi og ákefð úr hverju andliti í verk-
menntamiðstöðvunum. Margar stúlkur voru upptekn-
ar við að greiða og flétta hár, greinilega að læra hár-
greiðslu. Aðrir, mest drengir, voru með andlitin ofan í
tölvuboxum og rafmagnssnúrum að læra grunnatriði í
rafvirkjun. Enn aðrir voru uppteknir við dans og söng
þar sem þungur trumbusláttur stjórnaði ferðinni.
Ung stúlka sem ég hitti í einni af miðstöðvunum sem ég
sótti heim hafði sterk áhrif á mig. Hún býr við fötlun og
ferðast um á hjólastól í fátækrahverfinu þar sem hún
býr. Nú er hún að læra að sauma og hanna föt. Hún
sýndi mér nokkrar fallegar flíkur sem hún hafði saum-
að. Þegar ég spurði hana hvaða skilaboð hún hefði til
ungs fólks á Íslandi svaraði hún að við ungt fólk sem
byggi við fötlun eins og hún vildi hún segja: „Verið
hugrökk, ekki gefast upp, það er alltaf von“.
Tökum undir orð hennar en beinum þeim líka til ung-
menna í Kampala sem búa við örbirgð og eru þess
vegna útsett fyrir misnotkun af ýmsu tagi. Gefum
þeim von um betra líf með því að styrkja Kampalaverk-
efni Hjálparstarfs kirkjunnar. Greiðum valgreiðslu í
heimabanka (2.400 krónur) eða leggjum inn á söfn-
unarreikning nr.: 0334-26-050886, kt. 450670-0499.
Þitt framlag gefur þeim séns.
Bjarni Gíslason,
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt, 1. tbl. 29. árgangur 2017
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Prentvinnsla:
Umbrot: PIPAR\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Gefum þeim séns
Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
með ungu fólki í verkmenntamiðstöð í Kampala.
ÞÖKKUM STUÐNINGINN
L
A
U G A R V A
T N
I
H
É
R A
Ð S S K Ó L I N
N
1928
HOSTEL
SINCE 2013
SCHOOL SINCE
Hringdu í 907 2003 og gefðu 2500 kr.
eða upphæð að eigin vali á framlag.is
Einnig er hægt að leggja inn á bankareikning 0334-26-50886,
kt. 450670-0499 eða borga 2400 kr. valgreiðslu í heimabanka.
GEFUM ÞEIM SÉNS!
2 – Margt smátt ...
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-A
6
B
8
1
C
A
1
-A
5
7
C
1
C
A
1
-A
4
4
0
1
C
A
1
-A
3
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K