Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 42
Vinirnir Sturla Sær Erlendsson
Fjeldsted og Erna María Björns-
dóttir kynntust í útskriftarferð
Menntaskólans við Sund þegar
þau voru á þriðja ári og hafa verið
bestu vinir síðan. Þau voru lengi
búin að ræða sín á milli hversu
mikið þau langaði til að ferðast til
Asíu saman og kvöld eitt á síðasta
ári var fyrsta skrefið tekið að sögn
Sturlu. Þau ákváðu að byrja að
leggja pening til hliðar fyrir stórri
reisu og stefndu á brottför í janúar,
fyrr á þessu ári. „Við settum okkur
markmið að leggja af stað í janúar
en pældum lítið í frekari plönum.
Það var ekki fyrr en 2-3 mánuðum
fyrir brottför að við settumst niður
og bárum saman bækur okkar um
hvaða staði og lönd okkur langaði
að heimsækja. Svo fórum við á
fund með Kilroy, gerðum ferða-
plan og bókuðum ferðina.“
Hann segir undirbúninginn
aðallega hafa snúist um að safna
sem mestu fé og fara í allar nauð-
synlegar sprautur fyrir ferðina.
„Mikilvægt var að útvega sér
góðan bakpoka og allar aðrar
nauðsynjar. Erfiðasti hluturinn
við undirbúninginn var að ákveða
hvaða föt maður ætti að taka með
því þau áttu eftir að fylgja okkur
næstu mánuði.“
Fyrsta vesenið
Ferðalagið hófst með flugi til
Danmerkur en þaðan var flogið til
Dúbaí. Þar eyddu þau nokkrum
dögum og fóru m.a. í eyðimerkur-
safarí og skoðuðu Burj Khalifa,
hæstu byggingu heims. „Næst
var för okkar heitið til Bangkok
í Taí landi en við gáfum okkur
mánuð til að ferðast um landið
og nágrenni. Fyrsta skrefið var
því að taka rútu yfir til Kambódíu
en þar lentum við í fyrsta veseni
ferðarinnar þegar við ætluðum að
fara yfir landamærin. Það endaði
þó allt vel eftir smá barning.
Kamb ódía var allt öðruvísi en
aðrir staðir sem við heimsóttum.
Þar sáum við sólarupprás í Ang-
kor Wat, sem er eitt af undrum
veraldar, og fórum í átakamikla
skoðunarferð að sjá „Killing
Fields“ og S21 fangelsið.“
Eftir fimm daga í Kambódíu
sneru þau aftur til Taílands þar
sem þau hittu nokkrar vinkonur
sínar á eyjunni Phi Phi. Þar eyddu
þau næstu dögum en svo hélt allur
hópurinn saman í frekari ferðalög.
„Við fórum m.a. í „Full moon“ partí
á ströndinni þar sem við hittum
fleiri Íslendinga, lentum í alls
konar skrautlegum ævintýrum og
fórum í fallhlífarstökk.“
Fídjí var paradís
Eftir góða daga í Taílandi héldu
Sturla og Erna til höfuðborgar
Malasíu, Kúala Lúmpúr, en þar
nutu þau lífsins í botn og kynnt-
umst áhugverðum einstaklingum.
Næst var förinni heitið til Balí í
Indónesíu með stuttri viðkomu
í Singapúr. „Á Balí gistum við í
þriggja hæða villu með einkasund-
laug sem var klárlega mesti lúxus
ferðarinnar. Þar hittum við aðrar
íslenskar vinkonur okkar sem eru
að starfa þar í nokkra mánuði. Balí
var einn af uppáhalds áfangastöð-
unum mínum í ferðalaginu. Þar
sólaði maður sig alla daga, borðaði
góðan mat og fór út á kvöldin.“
Ef Balí var skemmtilegur
áfangastaður var sá næsti enn
skemmtilegri. „Frá Balí flugum við
til Fídjíeyja í Kyrrahafi sem er ein
mesta paradís sem ég hef séð og
án efa fallegasti og skemmtilegasti
staður sem við heimsóttum í þessu
ferðalagi. Þar fórum við í eyja-
hopp milli þriggja eyja með hóp af
fólki frá öllum heimshornum og
eignuðumst einnig góða vini.“
Volgur og fallegur sjórinn freistaði ferðalanganna víða í Asíu.
Erna og Sturla á góðri stundu.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
Visir.is
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumaður auglýsinga:
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Framhald af forsíðu ➛
Lokaland ferðalagsins var
Bandaríkin en frá Fídjí flugu þau
til Los Angeles þar sem kærasti
Ernu hitti þau. „Í LA tókst okkur
loks að kíkja í búðir og versla fyrir
allan peninginn sem við áttum
eftir. Við fengum okkur líka tattú
á Venice Beach og nutum þess
vel að vera komin í nútímasam-
félag. Þá var komið að því að leiðir
okkar skildi, Erna og Aron, kærasti
hennar, fóru til New York en ég
flaug til fjölskyldu minnar í Seattle
og eyddi afmælinu mínu þar áður
en ég hélt ferðinni heim á ný.“
Fallhlífarstökk hápunkturinn
Ferðin var frábær í alla staði en
aðspurður um hápunkt hennar
nefnir hann fallhlífarstökkið. „Ég
hélt að ég myndi aldrei þora því ég
er svo innilega lofthræddur. Ef það
er einhver einn staður sem stendur
upp úr þá eru það Fídjíeyjar. Það
sem kom mér helst á óvart var
hvað menningin er svo allt önnur
en hér heima, það ríkir mikil
fátækt á mörgum þessara staða og
maður áttar sig á því hvað maður
er heppinn að búa á Íslandi.“
Hvað skyldi svona ferðalag
hafa kennt hinum 22 ára gamla
Sturlu Sæ? „Frá upphafi var þessi
ferð mikil persónuleg könnun
um hvort ég gæti verið frá fjöl-
skyldu og vinum til lengdar því
mig langar til að fara í skóla í
útlöndum. Ég tel mig klárlega geta
það núna því í rauninni langaði
mig aldrei heim. Reyndar hefði
ég alveg verið til í að framlengja
ferðina um nokkra mánuði. Þetta
er klárlega hlutur sem mig langar
að prófa aftur. Það er bara tíma-
spursmál hvenær ég verð búinn að
skoða allan heiminn.“
Áhugasamir geta skoðað myndir úr
ferð þeirra á Instagram (@Stulliish).
Fallhlífarstökkið
var hápunktur
ferðarinnar fyrir
Sturlu enda er
hann afar loft-
hræddur.
Frá upphafi var
þessi ferð mikil
persónuleg könnun um
hvort ég gæti verið frá
fjölskyldu og vinum til
lengdar því mig langar til
að fara í skóla í útlönd-
um. Ég tel mig klárlega
geta það núna.
Sturla Sær Erlendsson
Ef það er einhver
einn staður sem
stendur upp úr þá eru
það Fídjíeyjar.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið
virka daga
kl. 11–18
laugardaga
kl. 11-15
Verð 9.900 - 12.900 kr.
- 4 týpur
- 6 litir
- stærð 34 - 52
Stuttbuxur
(bermuda)
2 KYNNINGARBLAÐ 8 . A P R Í L 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-D
D
0
8
1
C
A
1
-D
B
C
C
1
C
A
1
-D
A
9
0
1
C
A
1
-D
9
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K