Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 120
Listaverkið
Hilmir Örn Snorrason 10 ára sendi okkur þessa mynd
Bragi Halldórsson
244
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
Hvaða atriði þurfa krakkar að
hafa í huga þegar þau sækjast eftir
þátttöku í kvikmyndum? Prufur
fyrir myndir eða leikrit eru alltaf
auglýstar með góðum fyrirvara. Því
er nauðsynlegt að vera vakandi fyrir
þeim og skrá sig. Einnig er gott að
vera skráður hjá umboðsskrifstof-
um eins og Snyrtilegur klæðnaður
eða Eskimo.
Er nauðsynlegt fyrir krakka að
hafa leikið áður? Nei, en öll slík
reynsla nýtist að sjálfsögðu og gerir
þau öruggari.
Hvaða hæfileikar eru mikilvæg-
astir? Leikstjórar eru oftast að leita
að krökkum sem eru hressir og
jákvæðir. Mestu skiptir fyrir þau að
vera þau sjálf.
Hvað er neikvæðast við að taka
þátt í bíómynd? Að taka þátt í bíó-
mynd er skemmtilegt. Hins vegar er
einn kostur sem allir leikarar þurfa
að hafa og sá er þolinmæði. Oft þarf
að bíða lengi eftir því að röðin komi
að manni að leika.
En jákvæðast? Að kynnast nýju og
áhugaverðu fólki.
Hefur þú leikið í bíómynd? Já,
nokkrum sinnum. Ég er lærður
leikari en leikstýri líka og skrifa fyrir
sjónvarp og bíó. Ég var til dæmist
handritshöfundur að seríu 3 og 4 af
Latabæ.
Varst þú barnastjarna? Nei, ég fékk
í raun ekki áhuga á leiklist fyrr en ég
var kominn í menntaskóla.
Hvernig gekk á námskeiðinu sem
þú varst með? Það mættu 27 krakk-
ar og það var mjög gaman.
Leikarar þurfa að
hafa þolinmæði
Ólafur S.K. Þorvaldz leikari var nýlega með námskeið fyrir
níu til tólf ára börn um hvernig best væri að undirbúa sig fyrir
hlutverk í kvikmyndum. Tuttugu og sjö krakkar mættu.
Það skiptir mestu máli fyrir krakka að vera þau sjálf þegar þau mæta í prufur að sögn Óla. Fréttablaðið/Vilhelm
Snyrtistofan Hafblik
OKKAR SÉRSVIÐ ER
Háræðaslitsmeðferðir
HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Þrír fuglar sátu á trjágrein. Tveir
þeirra voru skotnir. Hvað voru þá
margir eftir?
Hvaða hljóðfæri er þrjóskast?
Hvaða ávöxtur er maður sem
hefur klætt sig úr öllum fötunum?
Hvaða dýr geta hoppað hærra en
hús?
Það heyrir allt en segir ekkert.
Hvað er það.
Hver hefur auga en ekkert höfuð?
Gátur
Svör: Enginn. Sá þriðji varð hræddur og flaug burt. Trommurnar. Það þarf að lemja
þær til að þær láti í sér heyra. Ber. Öll dýr. Hús geta ekki hoppað. Eyra. Nálin.
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r56 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
5
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-A
6
B
8
1
C
A
1
-A
5
7
C
1
C
A
1
-A
4
4
0
1
C
A
1
-A
3
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K