Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 124
Stundum koma kvikmyndir sem virðast eiga greiða leið að hjörtum fólks og eiga í sterkri samræðu við samtíma sinn og samfélag. Kvikmyndir
breska leikstjórans Kens Loach eru
einmitt oftar en ekki þannig myndir
og þá ekki síst hans nýjasta mynd, I,
Daniel Blake, sem var tekin til sýning-
ar í Bíói Paradís í gærkvöldi. Á meðal
nánustu samstarfsmanna Kens Loach
til margra ára er framleiðandinn
Rebecca O’Brien sem hefur unnið að
mörgum verkefnum Loach í gegnum
tíðina og þekkir því vel til eiginleika
þessa merka leikstjóra.
„Þetta er einmitt mynd sem virð-
ist tala beint inn í samfélagið. Hún
hefur nú þegar haft mikil áhrif hérna
í Bretlandi, fengið umtal og ekki síður
skapað umræðu, og reyndar einnig í
mörgum öðrum löndum. Það gleður
okkur mikið.“
Áríðandi mynd
Rebecca O’Brien segir að hún hafi
unnið með Ken Loach í bráðum
þrjátíu ár og Paul Laverty handrits-
höfundi ekki mikið skemur en það.
„Upphafið að þessari mynd má rekja
til þess að Paul og Ken fóru saman í
ferðalag veturinn 2015 þar sem þeir
keyrðu um Bretland vegna þess að
þeir höfðu verið að lesa sögur af fólki
sem hefur lent í hremmingum í vel-
ferðarkerfinu. Þeir ákváðu því að fara
og fá þessar sögur frá fyrstu hendi og
fá að vita hvort þetta væri í raun jafn
slæmt og sögurnar gáfu til kynna.
Þeir heimsóttu vinnumiðlanir, mat-
arúthlutanir og einstaklinga og höfðu
augun opin fyrir hvernig ástandið
væri í raun og veru. Á þessum tíma
var ég sjálf að vinna að annarri mynd,
City of Tiny Lights, sem er reyndar
verið að frumsýna hér í London í
kvöld (föstudagskvöld).
Ég átti alls ekki von á því að það
kæmi handrit frá þeim þarna um
vorið þegar ég var enn við tökur á
hinni myndinni en það gerðist nú
samt. Paul sendi mér handritið og
sagði mér að lesa bara þegar ég væri
búin í tökum en auðvitað gat ég ekki
beðið eftir því. Las handritið þá um
kvöldið og hringdi strax í þá og sagði
að við yrðum að gera þessa mynd
strax á þessu ári – vegna þess að þetta
er áríðandi og mikilvæg mynd. Við
tókum myndina upp um haustið
þarna þetta sama ár, 2015, og hlut-
irnir gerast nú ekki mikið hraðar en
þetta í þessum bransa.“
Daniel Blake er rödd allra þeirra sem ganga á vegg
I, Daniel Blake, nýjasta mynd leikstjórans Kens Loach, hlaut bæði Gullpálma og BAFTA-verðlaun. Rebecca
O’Brien, framleiðandi myndarinnar, segir að ástæðan sé sú að myndin eigi áríðandi erindi við samfélagið.
Vísvitandi veggur
Eins og Rebecca bendir á er víða mikil
umræða um misskiptingu auðs og
lífsgæða í vestrænum samfélögum og
mikilvægt fyrir kvikmyndalistina að
taka þátt í þeirri umræðu. „En þetta
snýst fyrst og fremst um að fólk er
blekkt og það er farið að gera sér grein
fyrir því. Málið er að þetta er meðvit-
uð grimmd. Stjórnvöld vita vel hvað
þau eru að gera, eru fyllilega með-
vituð um það hvernig farið er með
fólk í þessu samfélagi því það er ekki
hægt að fela sig á bak við eitthvert
þekkingarleysi á þessum tímum.
Fólk sem kerfið er að fara illa
með hefur átt erfitt með
að finna sína rödd og
láta hana hljóma
í samfélagsum-
ræðunni. Ég held
að Daniel Blake
hafi gefið þessu
fólki rödd og í
raun tekið utan
um reiði fólks og
hugsanir og beint
þeim í ákveðinn
farveg. Hleypt þeim
inn í umræðuna, ef svo
má segja, en það er bara fyrsta
skrefið.
Vandinn er nefnilega fólginn í því
að þetta kerfi er þannig hannað að
það lætur fólki finnast það einskis
virði. Hér er það einkum gert með
því að leggja fyrir fólk kerfislægar
þrautir, á borð við útfyllingu enda-
lausra eyðublaða, sem eru í raun og
veru mjög erfiðar fyrir hvern sem er.
Og það sem þessi kvikmynd segir við
fólk er þetta: Þú ert ekki eina mann-
eskjan í þessari stöðu. Það er eðlilegt
að þú gangir þarna á vegg því að það
er búið að setja hann þarna fyrir þig
og öll þekkjum við mann eins og
Daniel Blake. Hann er líka ég og þú
og hann talar fyrir alla sem ganga á
veggi kerfisins.“
Á opnunarsýningu myndarinnar í
Bíói Paradís buðu Pepp Ísland, Sam-
tök fólks í fátækt, öllum þingmönn-
um í bíó og í framhaldinu var efnt til
umræðna. Rebecca segir að það sé
gleðilegt að fólk nýti myndina til sem
sína rödd. „Ég kom með myndina á
Stockfish og við sýndum hana tvisvar
þar. Í mínum huga þá er Ísland land
jafnræðis og velferðar og því stuðaði
það mig talsvert hvað myndin hreyfði
hraustlega við mörgum og hversu
margir þekktu þessar upplifanir.“
Engar stjörnur
Þrátt fyrir að hafa unnið með Ken
Loach í tæp þrjátíu ár hefur Rebecca
fylgst með ferli leikstjórans lengur
en það. „Ég er búin að vera aðdáandi
hans frá því ég var barn. Ég sá Cathy
Come Home í sjónvarpinu þegar ég
var tíu ára og hún hafði gríðar leg áhrif
á mig. Eftir það sá ég alltaf allt sem
hann gerði og hugsaði að bara það að
fá að hitta hann væri æðislegt þann-
ig að ég hef verið afar lánsöm að fá
að vinna með honum,“ segir
Rebecca og skellihlær og
bætir við það sé líka alltaf
sérstakt að vinna að myndum
Loach.
„Þetta eru myndir sem eiga erindi
og tala inn í samfélagið hverju sinni.
Þeim áhrifum er m.a. náð með því
að við höldum okkur við að vinna
fyrir lítið fjármagn og höfum þannig
fókus á verkefninu. Annað er að við
notum ekki fræga leikara vegna þess
að þeir hægja á ferlinu og svo leiðir
það líka til þess að fólk fer að horfa á
viðkomandi stjörnu en ekki endilega
persónuna og myndina í heild sinni.
Að auki þá skjótum við allt á staðn-
um, förum aldrei í stúdíó, heldur
veljum staði sem okkur finnst þjóna
sögunni. Það er líka mikilvægt vegna
þess að þannig náum við ákveðnum
tengslum við það samfélag sem við
erum að vinna með hverju sinni.
Svona getum við líka unnið tiltölu-
lega hratt miðað við kvikmyndagerð
og þannig haldið í þessa tilfinningu
að okkur liggi á að segja sögu og von-
andi er það saga sem á erindi við
fólk. I, Daniel Blake er einmitt þann-
ig mynd og þannig saga sem lá á að
koma til fólksins og það hefur líka
tekið henni vel.“
Atriði úr mynd Kens Loach, I, Daniel Blake, sem Rebecca O’Brien framleiddi eins og aðrar myndir leikstjórans síðustu þrjátíu árin.
A U G LÝ S I N G U M N Ý T T D E I L I S K I P U L A G
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar auglýsir hér með, í samræmi við 1. mgr.
41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi á flugþjónustusvæði
Keflavíkurflugvallar. „Keflavíkurflugvöllur – NA-svæði Keflavíkurflugvallar“.
Deiliskipulagið tekur til svæðis milli flugstöðvarsvæðis og Háaleitishlaðs og liggur með
austur- og norðausturmörkum Keflavíkurflugvallar. Skipulagssvæðið er um 142 ha að stærð.
Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir tengivegi milli þjónustusvæða, svæðum fyrir
búnað tengdum flugvallarrekstri og geymslusvæði.
Deiliskipulagstillaga þessi verður til sýnis á skrifstofu skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar frá og með 10. apríl 2017 .
www.kefairport.is/Um-felagid/THroun/Deiliskipulag/
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við
deiliskipulagstillöguna. Frestur til að gera athugasemdir rennur út 24. maí 2017.
Skila skal skriflegum athugasemdum til: Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is.
Keflavíkurflugvelli, 5. apríl 2017
F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar
Sveinn Valdimarsson , skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar.
Rebecca O’Brien á skrif-
stofu sinni í London.
Hún segist hafa verið
aðdáandi Loach frá því
hún var tíu ára gömul.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r60 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-7
F
3
8
1
C
A
1
-7
D
F
C
1
C
A
1
-7
C
C
0
1
C
A
1
-7
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K