Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1978, Síða 31
Að vinna þurfi að mjijg ýtarlegri atliugun
a vexti hjúkrunarþarfarinnar á næstu ár-
um.“
I framhaldi af þessu var menntamáia-
nefnd skipuð. I þenni eiga sæti: Svanlaug
Arnadóttir, Sigþrúður Ingimundardóttir,
Björg Ólafsdóttir, Anna María Andrésdótt-
,r og Margrét Tómasdóttir hjúkrunarnemi.
Menntamálanefnd vann að greinargerð um
frumvarp til iaga um framhaldssskóla, sem
send var menntamálaráðuneytinu, heil-
hrigðismálaráðuneytinu og fjölmörgum að-
ilum öðrum. Ennfremur liefur greinargerð-
in verið birt í Hjúkrun, tímariti HFÍ.
Niðurstaða menntamálanefndar er sú að
1. Hjúkrunarfélag Islands hafnar frum-
varpi til laga urn framhaldsskóla í nú-
verandi mynd.
2. Aðfaranám að hjúkrunarfræðinámi
verði í samræmi við niðurstöður nefnd-
ar skipaðri af menntamálaráðuneytinu
15. febrúar 1974.
3. Óraunhæft er að ætla að hægt sé að
stunda almennt undirbúningsnám sam-
hliða svo untfangsmiklu sérnámi sem
hjúkrunarfræðinám er.
4. Sjúkraliðamenntun er á engan hátt
æskilegur undanfari hjúkrunarfræði-
menntunar.
5. Hjúkrunarfélag Islands álítur að fólk
innan 18-20 ára aldurs hafi ekki nægan
þroska til þess að mæta þeirri ábyrgð
sem starfið leggur þeint á herðar og
veita þá þjónustu sem einstaklingar eiga
rétt á.
0. Alit Hjúkrunarfélags íslands er að
hjúkrunarfræðinám eigi að samræma og
verði allt á háskólastigi.
7. Hjúkrunarfélag Islands skal eiga full-
trúa í öllum nefndum, starfshópum og
ráðum, sem gera áætlanir um og skipu-
leggja menntun á sviði heilsugæslu og
hjúkrunar og álits leitað, vegna sér-
þekkingar þeirra.
Jafnframt skrifaði stjórn IIFÍ í nóvem-
ber bréf til menntamálaráðherra og fjár-
veitinganefndar Alþingis og óskaði eftir að
serfræðingur í hjúkrunarfræði yrði ráðinn
l,l starfa í menntamálaráðuneyti til náms-
skrárgerðar heilbrigðissviðs á framhalds-
skólastigi og til heildarskipulagningar
roenntunar hjúkrunarstétta í landinu. Enn
krfur okkur ekki orðið ágengt í þessari
rriálaleitan.
Samkvæmt tillögu starfshóps 6 á auka-
fulltrúafundinum um að kynna sjónarmið
bjúkrunarstéttarinnar í menntunarmálum í
Ijölmiðlum, og vinna tillögum okkar fylgi
Nokkrir julltrúar Reykjavikurdeildar.
meðal þingmanna þjóðarinnar og annarra
áhrifantanna, hefur það fallið í hlut
menntamálanefndar og kennaradeildar HFÍ
að framfylgja ofangreindum atriðum.
Einnig var því beint til stjórna svæðis-
deildanna að þær mynduðu santsvarandi
hópa, hver innan síns svæðis, í sama lil-
gangi.
í janúar 1977 fór HFÍ þess á leit við
menntamálaráðuneytið að farið yrði á stað
með framhaldsnám fyrir hjúkrunarkennara
við Kennaraháskóla íslands.
29. júlí barst bréf frá menntamálaráðu-
neytinu þar sem farið er þess á leit við
HFÍ að það skipi 2 fulltrúa í samstarfs-
bóp til þess að fjalla um ýmis atriði í sam-
bandi við fyrirhugað nánt í Kennarahá-
skóla Íslands, ætlað hjúkrunarfræðingum,
sem myndi hefjast haustið 1977.
Samstarfshópurinn hóf störf í september
og í honunt eiga sæti: Svanlaug Árnadótt-
ir og Sigþrúður Ingimundardóttir frá HFÍ,
Sigríður Valgeirsdóttir og Baldur Jónsson
frá Kennaraháskóla íslands og Stefán ÓI.
Jónsson frá menntamálaráðuneytinu. Sig-
ríður veitir náminu forstöðu. Hófst það í
október 1977 nteð 29 hjúkrunarfræðing-
um.
Kjaramál
Kjaramál og umbrot á vinnumarkaðin-
um settu mestan svip á starf félagsins sl.
ár. Samkv. 9. gr. laga í kjarasamningum
BSRB frá 1976 var samningum frá 1. júlí
1976 sagt upp á miðju samningstímabilinu,
þ. e. 1. apríl 1977 og kom til framkvæmda
1. júlí. Kjaramálanefnd HFÍ hóf undir-
búningsstörf þegar á árinu 1976, en segja
má að nýafstaðin kjaradeila hefjist 7.
febrúar 1977 þegar samninganefnd BSRB
kom sarnan til síns fyrsta fundar í því
skyni að móta kröfugerð. Deilunni unt að-
alkjarasamning lauk ekki fyrr en 9 mán-
um síðar, þ. e. 13. nóv. 1977 þegar úrslit
lágu fyrir úr allsherjaratkvæðagreiðslu rík-
isstarfsmanna og þeir samþykktu með
miklum meirihluta atkvæða nýjan kjara-
samning. Á þessu tímabili voru haldnir
fjörutíu fundir í samninganefnd BSRB.
Kjaramálanefnd hélt þar að auki fjölda
funda til þess að koma málum hjúkrunar-
stéttarinnar sem best á veg f aðalkjara-
samningi, en samkvæmt nýju lögunum unt
kjarasamninga BSRB og ríkisins áttu fjöl-
mörg atriði, sem áður voru í sérkjara-
samningi HFÍ, að vera í aðalkjarasamn-
ingi. Samningsréttur HFl fékkst við Ak-
ureyri í mars 1977.
Eiginlegir samningafundir hófust 22.
apríl og var deilunni þá strax vísað til
sáttasemjara. BSRB kynnti kröfugerðina
um allt land í byrjun maí. Á almennum
félagsfundi HFÍ 5. maí 1977 var kröfu-
gerðin kynnt. 2. júní var fyrsti sáttafund-
urinn og var þar gert samkomulag um að
fresta viðræðum fram í miðjan ágúst. Sam-
hliða viðræðum við ríkið voru viðræður
HFÍ og Reykjavíkurborgar í gangi en þeir
fundir voru fáir. 23. ágúst hófust samn-
ingaviðræður aftur og kom þá fyrsta gagn-
tilboð ríkisins fram - 7Vi°/o launahækkun
frá og með 1. júlí auk áfangahækkana.
Samþykkt var einróma á sameiginlegum
fundi stjórnar og samninganefndar BSRB
að boða til verkfalls.
1 september lagði sáttanefnd fram sátta-
tillögu.
Hjúkrun
25