Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 27
Myndina teiknaði Lilian Brögger.
Stefnumörkun í sjúkra-
þjónustu barna og unglinga
Þegar hlutverk og starf sjúkrahúsa
er skilgreint, þarf að taka tillit til
allra aldurshópa. Þarfir barna og
fullorðinna fara ekki saman, hvorki
á legudeildum, á bráða- né slysa-
deildum, göngu- eða dagdeildum.
Sé hlutverk sjúkrahúsa bráðaþjón-
usta, ber að hafa að leiðarljósi að
þar skuli vera barna- og unglinga-
deild. Til að ná jöfnuði í heilbrigð-
isþjónustunni þurfa að vera til lög
og reglugerðir er kveða á um
sjúkraþjónustu barna og unglinga,
til jafns við þau lög, sem upphaf-
lega voru sett á árinu 1944 um
heilsugæslu, þar sem ákvæði voru
sett um mæðravernd og ungbarna-
vernd.
Skilgreina þarf hlutverk heilsu-
gæslu og sjúkraþjónustu við börn,
unglinga og foreldra. Stefna þarf að
heildarsýn en ekki alfarið líta til
einhliða stofnanasjónarmiða.
Það þarf að huga að uppstokkun
og endurskipulagningu þess, sem
kalla mætti aðgengi. Þ.e. að kerfið
sé einfalt, fljótvirkt og aðgengilegt,
hvenær sem er sólarhringsins.
Við gerð og framkvæmd íslenskr-
ar heilbrigðisáætlunar, þarf á
hverjum tíma, að stefna að því að
heilbrigðisþjónusta barna og ung-
linga sé eitt af forgangsverkefnum,
bæði hvað varðar forvarnir, heilsu-
gæslu og sjúkraþjónustu.
í framangreindri tillögu heil-
brigðisráðherra til þingsályktunar
um íslenska heilbrigðisáætlun, sem
lögð var fyrir Alþingi á 112. löggjaf-
arþinginu 1989, og sem nú er þar til
meðferðar, þar er í fyrsta sinn
höfðað sérstaklega til heilbrigðis-
þjónustu barna og unglinga sam-
fara þörfum annarra þjóðfélags-
hópa.
Höfundur er barnahjúkrunarfrœðingur.
Greinin er byggð á erindi, sem flutt var á
ráðstefnu sem heilbrigðisráðherra, efndi
til hinn 7. okt. 1989, um heilbrigðis- og
tryggingamál.
HEIMILDIR
- Evrópuráðið, sjúkraþjónustunefnd,
tilmæli varðandi sjúkraþjónustu barna
og unglinga, frá 1987.
- Landlæknisembættið, Heilbrigðis-
skýrslur 1984-1985,1987-1988.
- NOBAB, drög að stefnumörkun varð-
andi sjúkraþjónustu barna og ung-
linga, 1986-1989.
- Ríkisspítalar, Ársskýrsla 1987.
- Sigmundur Sigfússon, Helse i ár 2000,
etiske aspekter. Erindi flutt á ráðstefnu
NOBABs, Reykjavík, 15.-17. sept.
1988.
- Tillaga til þingsályktunar, um íslenska
heilbrigðisáætlun, lögð fyrir alþingi á
112. löggjafarþingi 1989.
HJÚKRUN - 65. árgangur 25