Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 51
NURSING-A NEWTOi
LES SOINS INFIRMÍEK
LA ENFERWERIA-UKNANJ
í feE 0191
ICELAND
Fulltrúar íslands, Sigþrúður Ingimundardóttir formaður HFl og Pálína Sigurjónsdóttir varaformaður HFÍ, ganga íþingsalinn.
í hinum fyrirlestrinum var sagt
frá starfi Barböru-Burke Masters,
en hún starfar sjálfstætt og rekur
umfangsmikið og fórnfúst hjálpar-
starf fyrir heimilislausa í London.
Greint var frá vandamálum sem eru
starfseminni samfara, skjólstæð-
ingum hennar, væntingum og til-
lögum til úrbóta í þessum efnum.
Frk. Burke Masters hefur árum
saman barist gegn skriffinnsku,
vanþekkingu og þröngsýni hjúkr-
unarstéttarinnar, læknastéttar-
innar og ríkisstjórnarinnar á vanda-
málum þessa hóps.
Susan E. Russel frá Konunglega
hjúkrunarháskólanum í London
flutti fyrirlesturinn í fjarveru frk.
Burke Masters en sjálf gat hún ekki
komið vegna veikinda.
Jean Watson, Ph.D. frá
háskólanum í Colerado flutti mjög
fróðlegan fyrirlestur um drög að
kennsluáætlun í heildrænni hjúkr-
un. Taldi hún misvægi vera í hjúkr-
unarmenntun og hættu á að núver-
andi námstilhögun á stofnunum og
kennsla í vísindum og tækni yrði
ekki gjaldgeng á 21. öldinni. Hún
hélt því fram að mannúðlegi þáttur-
inn í kennslunni væri vanræktur og
kynnti drög að kennsluáætlun á
framhaldsstigi í heildrænni hjúkrun
sem byggist á mannúð. í fyrirlestr-
inum studdist hún við verkefni sem
unnin hafa verið við háskólann í
Colerado.
Elaine D. Dyer, Ph.D. frá hjúkr-
unarháskólanum í Provo, Utah,
fjallaði um Samanburð á persónu-
leikasniði nýnema í árgöngunum
1970-71 og 1980-81 ogforspársem
gerðar voru um frammistöðu þeirra
fyrsta starfsárið. Forspáin var
unnin upp úr helstu æviatriðum,
lýsingu á persónuleika og áhuga
fyrir starfinu. Þessar upplýsingar
voru notaðar með góðum árangri.
Niðurstöðum forspárinnar um
frammistöðu í starfi var skipt niður
í 12 þætti:
1) aðskipuleggjaognotatímann;
2) að leysa starfið vel af hendi;
3) að stuðla að auknu samræmi
manna á meðal;
4) að eiga rökvís og skýr munnleg
samskipti;
5) að eiga rökvís og skýr skrifleg
samskipti;
6) að skilja vísindaleg undir-
stöðuatriði vandamála;
7) að hjálpa öðrum til að skilja
vísindalegar reglur og rökrétt
samhengi kringumstæðnanna;
8) að glæða nýjar hugmyndir eða
hvetja til lausnar á vandamál-
um;
9) að leggja til að vandamál séu
leyst á skapandi hátt;
10) að vera opinn fyrir breytingum
og nýjum hugmyndum;
HJÚKRUN Jfr) - 65. árgangur 45