Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Side 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Side 7
Tímarit hj úkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994 Jóna Ingibjörg Jónsdóttir r Kynhegðun Islendinga á aldrinum 16-60 ára: Nokkrar niðurstöður sem varða útbreiðslu alnæmis Skilað til tímarits 8/2'94 Skilað lesinni til höfiindar 4/3 '94 Samþykkt 21/3 '94 Árið 1992 fór fram póstkönnun * á landsvísu sem hafði það að aðalmark- miði að afla upplýsinga um kynhegðun sem eykur á eða dregur úr hœttu á HlV-smiti og öðru kynsjúkdómasmiti og að afla upplýsinga fyrir mark- visst forvarnarstarf Tekið var 1500 manna tilviljunarúrtak úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 16-60 ára. Svörun var 65,0% (N=975). í greininni er fjallað um niðurstöður um tíðni kynhegðunar sem beint og óbeint hefur áhrif á útbreiðslu alnœmis. Nterri þriggja ára mun- ur er á meðalaldri við fyrstu kynmök milli yngsta og elsta aldurshópsins. Fjöllyndi er ekki algengt meðal ungs fólks, en fólk á aldrinum 16-25 ára hafði að meðaltali 1,7 rekkjunauta árið 1991, þótt skyndikynni séu al- gengust meðal fólks á þessum aldri. Marktœkt samband er milli meðal- fjölda rekkjunauta og kynsjúkdómasmits (p< 0,001). HlutfalL karla, sem hefur haft kynmök við aðra karla, er 3,6%. Fjórðungur karla, sem hafa farið í viðskiptaferð til útlanda, hefur haft kynmök erlendis við einstakl- ing sem stundar vændi. Þeim hefur fjölgað sem segjast hafa breytt hegðun sinni vegna alnœmis, til dæmis fœkkað skyndikynnum, og á það sérstak- lega við yngstu aldurshópana, einhleypa og fráskilda. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir: Hjúkrunarfræðingur B.Sc. frá námsbraut í hjúkrunarfræði 1983, kynfræðingur M.S.Ed. frá Pennsylvaníuháskóla 1988. Starfar hjá Landsnefnd um alnæmisvarnir á vegum heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins. 7 Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna algengi kynlífshegðunar sem eykur líkur á HlV-smiti, að rannsaka þekkingu fólks á smitleiðum og athuga viðhorf til HlV-jákvæðra einstaklinga. Stefnt er að því að birta heildarniðurstöðurnar í ritröð sem fylgirit við heilbrigðisskýrslur. Fyrsta ritið er komið út hjá Landlæknisembættinu en það lýsir forsend- um rannsóknarinnar, undirbúningi, framkvæmd og grófum tíðnitölum (Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, 1994). í þessari grein verður sjónum beint að tíðni þeirrar kynhegðunar sem með beinum eða óbein- um hætti hefúr verið talin auka líkur á útbreiðslu alnæmis og annarra kynsjúkdóma. I umfjöllun verður svo reynt að svara þeirri spurningu hvort ástæða sé til að breyta áherslum í fræðslu og forvörnum alnæmis í ljósi þeirra niðurstaðna sem hér um ræðir. Upplýsinga um kynhegðun hefur ekki verið aflað áður hérlendis á landsvísu með skipulögðum hætti. Ætlast er til að niðurstöður könnunarinnar nýtist víðar en í forvarnarstarfi alnæmis og annarra kynsjúkdóma. I niðurstöðunum er að finna grunn- upplýsingar um kynlíf sem lengi hefur vantað í tengslum við þá kynfræðslu og ráðgjöf sem veitt er af heilbrigðis- og uppeldisstéttum. Upplýsingar af þessu tagi gefa vísbendingar um hvort reynsla íslendinga í kynferðismálum er áþekk eða hefúr einhverja sérstöðu samanborið við nágrannaþjóð- irnar. Þær ættu einnig að koma að notum við að * Þær niðurstöður, sem birtar eru í greininni, byggjast á hluta af niðurstöðum rannsóknarinnar - „Könnun á kynhegðun og þckkingu á smitleiðum alnæmis“- sem gerð var á vegum Landlæknisembættis og Landsnefndar um alnæmisvarnir. Nánari upplýsingar um könnunina gefúr Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, Landsnefnd um alnæmisvarnir, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.