Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Síða 10
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994
10
Niðurstöður
Meðalaldur við fyrsta kelerí og fyrstu kynmök
Niðurstöður sýna að 98,2% svarenda hafa tek-
ið þátt í keleríi. (Spurning 17: Hvað varstu gam-
all/gömul þegar þú tókst jyrst þátt í keleríi? Kelerí var
skilgreint í orðalista spurningalistans sem „öll önnur
ástaratlot en kynmök“.) Styttri tími líður nú en áður
frá fyrsta keleríi fram að fyrstu kynmökum. í elsta
aldurshópnum, 50-60 ára, liðu að meðaltali þrjú ár
á milli fyrsta kelerís og fyrstu kynmaka en í yngsta
aldurshópnum líða að meðaltali eitt og hálft ár milli
fyrsta kelerís og fyrstu kynmaka.
Mynd 1 sýnir að marktækur munur, nærri þrjú
ár, er á meðalaldri við fyrstu kynmök milli yngsta
og elsta aldurshópsins.
(Spurning 18: Hvað varstu gamall/gömul þegar þú
hajðir fyrst kynmök? en skilgreining á kynmökum
hljóðaði þannig í orðalista spurningalistans: ,,-þegar
limur fer inn í leggöng eða endaþarm - munnmók við
einstakling af sama eða gagnstæðu kyni skilgreinast
Aldur svarenda
Mynd 1. Meðalaldur við fyrsta kelerí og meðalaldur við fyrstu
kynmök, eftir aldri svarenda
sem kynmök“.)
í yngsta aldurshópnum, 16-19 ára, hafa 75%
haft kynmök og meðalaldur fyrstu kynmaka er 15,3
ár. Eins og við er að búast eru flestir þeirra sem
ekki hafa haft kynmök í yngsta aldurshópnum, en
10,7% ungs fólks á þessum aldri hefur hvorki tekið
þátt í keleríi né kynmökum og 14,3% fólks á þeim
aldri ekki haft kynmök en tekið þátt keleríi. Tæp-
lega 3% svarenda áttu sín fyrstu kynmök undir
fjórtán ára aldri.
Tengsl mælast milli aldurs við fyrsta kelerí og
aldurs við fyrstu kynmök. Fylgni milli þessara þátta
er 0,53. Því yngra sem fólk er þegar fyrsta kelerí á
sér stað, því lengri tími líður fram að fyrstu
kynmökum.
Framangreindar tölur ber að skoða með fyrir-
vara vegna þess að þær eru fundnar út samkvæmt
minni svarenda og einnig getur fólk skilgreint
„kelerí“ og „kynmök“ á mismunandi vegu þrátt
fyrir að gefin væri upp skilgreining á hugtökunum
í orðalista í spurningalista könnunarinnar.
Fjöldi rekkjunauta
Tafla 1 birtir tölur um fjölda rekkjunauta árið
1991 en á því ári hafði fólk á aldrinum 16-25 ára
að meðaltali 1,7 rekkjunauta.
(Spurning 19: Hversu marga einstaklinga hefur þú
haft kynmök við? I spurningunni var hœgt að merkja
við jjölda kvenna/karla sem viðkomandi hajði hajt
kynmök við á árinu 1986, 1991, fyrir tvítugsaldur-
inn og á ótvinni. Rekkjunautur var skilgreindur sem:
„einstaklingur sem þú hejur kynmök við, hvort sem
það er maki, sá sem þú ert með í fóstu sambandi,
einstaklingur sem þú hefur skyndikynni við eða ein-
staklingur sem þú heldur við“.)
Tafla 1.
Meðalfjöldi rekkjunauta árið 1991 eftir aldurshópi
16-19 20-24 25-2930-3435-3940-4445-4950-60
ára ára ára ára ára ára ára ára
Meðaltal 1,7 1,7 2,1 1,3 1,3 1,3 1,0 1,0
Fjöldi rekkjunauta hjá
þeim einstaklingi sem
hefur flesta rekkjunauta 14 14 26 6 9 9 3 8
Mynd 2 sýnir hlutfall, eftir aldurshópi, sem
hefur haft 15 eða fleiri rekkjunauta um ævina.
Mynd 2. Hlutfall sem hefur haft 15 rekkjunauta eða fleiri um
ævina eftir aldri svarenda (p<0,001)
Meðal ungs fólks á aldrinum 16-19 ára hafa 3,6%
haft fimmtán rekkjunauta eða fleiri um ævina en
hlutfallið hækkar um fjórtán prósent, fer í 17,7%
í næsta aldurshópi fyrir ofan. Munur á fjölda
rekkjunauta eftir kynjum er áberandi þegar litið er
til allra sem svara. Til dæmis hafa karlar haft fleiri