Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Síða 37
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994
i
Minningarsjóður Höllu Snæbjörnsdóttur,
ív. hjukrunarstjóra Blóðbankans
Fœdd 11. mars 1911, Idtin 2. mars 1994
Samstarfsfólk, vinir og ættingjar Höllu Snæbjörnsdóttur vilja halda minningu
hennar á lofti með því að láta mála af henni mynd sem hengd verður upp í
Blóðbankanum. Benedikt Gunnarsson, listmálari mun mála myndina. Til að
standa straum af kostnaði við verkið hefur verið stofnaður minningarsjóður.
Guðrún Halla Margrét Snæbjörnsdóttir lærði hjúkrun við Frederiksberg Hospital
í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 1940. Hún stundaði hjúkrun í Kaup-
mannahöfn á stríðsárunum en kom heim árið 1945. Hún vann um eins árs skeið á
Vífilsstöðum en lagði síðan aftur land undir fót og hélt til Bandaríkjanna til að læra
meira. Þar starfaði hún við hjúkrun berklasjúkra við Gaylord Sanatorium and Ho-
spital, Wallingford, Connecticut til ársins 1949. Hún starfaði síðan í New York til
ársins 1951 en þá fékk hún styrk frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) til að
kynna sér blóðbankastarfsemi og blóðflokkarannsóknir í Hartford, Connecticut.
Þegar Blóðbankinn opnaði 14. nóvember 1953 var Halla beðin um að koma heim
til að taka þátt í að skipuleggja starfið þar. Hún var síðan hjúkrunarstjóri Blóðbankans
frá 1953 til 1981. f starfi sínu vann hún mikilvægt brautryðjendastarf í samvinnu
við Elías Eyvindsson, svæfingarlækni, fyrsta forstöðumann Blóðbankans.
Halla bjó að sterkum menntunargrunni allan sinn starfstíma. Hann skilaði ríkum
afrakstri, bæði í daglegum störfum, en ekki síður í sívakandi áhuga hennar og mjög
jákvæðu viðhorfi til umbóta og nýjunga í faginu. Hún kunni þá list að rækta gott
samstarf við blóðgjafana, enda naut hún alla tíð mikilla vinsælda þeirra og vinsemdar.
Halla var gerð heiðursfélagi Blóðgjafafélagsins á fyrsta aðalfundi þess árið 1982
og sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að líknarmálum á nýársdag
1976.
Framlögum er veitt móttaka í Blóðbankanum og á
skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suður-
landsbraut 22, 108 Reykjavík. Einnig má greiða með
gíróseðli í öllum bönkum og sparisjóðum inn á ávís-
anareikning nr. 56000 hjá Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis.
Frekari upplýsingar fást hjá:
Sigurlaugu E. Jóhannesdóttur, hs: 35406, vs: 602260
Ólöfu Þ. Hafliðadóttur, hs: 74353, vs: 602262
Guðrúnu Guðbrandsdóttur, hs: 37295, vs: 601274
- og taka þær einnig á móti framlögum.
37