Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 14
Tafla 3 Samanburður á reykleysi og þyngdaraukningu í lok meðferðar Breytur Meðferð 1 Hefðbundin meðferð (n=34) Meðferð 2 Hefðbundin með líkamsrækt (n=33) P Hlutfallslíkur (95% Cl) Reykleysi (LFAT) Eftir 1 ár (%) 20,6 (n=7) 39,4 (n=13) 0,16 2,5 (0,8-7,4) Þyngdaraukning [kgj 1,4 (SD=3,6) (n=14) 0,3 (SD=6,7) (n=26) 0,56 Reyklausir 3,0 (SD=3,9) (n=5) 5,0 (SD=3,8) (n=11) 0,37 Reykingamenn 0,6 (SD=3,2) (n=9) -3,1 (SD=6,3) (n=15) 0,12 reyklausir höfðu þyngst marktækt meira en þeir sem reyktu eftir Meðferð 2 (p=0,001, t=-3,7), en eftir Meðferð 1 var munurinn ekki tölfræðilega marktækur (p=0,2, t=-1,3). Útreikningar á þyngdaraukningu takmarkast við þá staðreynd að 27 mælingar vantar. Þetta gerðist vegna tregðu þátttakenda við að láta vigta sig. Þyngd nokkurra var alls ekkert skráð (n=4), sumra aðeins í lokin (n=2) og þó nokkurra aðeins í byrjun (n=21). Meginþorri þeirra sem ekki voru vigtaðir var í þremur undirhópum í Meðferð 1. Þar sem ekkert bendir til þess að undirhópar hvorrar meðferðar hafi verið ólíkir innbyrðis er sú ályktun dregin að hér sé ekki um kerfisbundna villu að ræða. Notkun á nikótínlyfjum Aðeins 15,8% (n=8) þátttakenda notuðu nikótínlyf í lok meðferðar. Munur á notkun nikótínlyfja á milli meðferðar- forma var ekki marktækur (px2=0,7). Reykingavenjur Þátttakendur í Meðferð 2 höfðu gert marktækt fleiri til- raunir til að hætta en þátttakendur í Meðferð 1 (px2=0,02). Þátttakendur höfðu reykt allt frá einu ári upp í meira en 40 ár og reyndist ekki marktækur munur á þátttakendum í Meðferð 1 og Meðferð 2. Flestir eða 74,6% (n=50) af heildinni höfðu reykt í 11 til 30 ár, 7,5% (n=5) í 1-10 ár og 18,0% (n=12) höfðu reykt í meira en 30 ár. Meðaltal úr báðum hópum sýndi að 6,1% (n=4) höfðu reykt 1-10 sígarettur á dag, 39,4% (n=26) höfðu reykt 11-20 sígar- ettur á dag, 42,4% (n=28) 21-30 sígarettur á dag og 12,1 % (n=8) 31 -40 sígarettur á dag. UMRÆÐA Niðurstöður sýna að ekki er marktækur munur á tíðni reykleysis á milli meðferðarhópa þó svo að tilhneiging sé í þá átt að því fólki fjölgi sem heldur reykbindindi í heilt ár ef líkamsrækt er bætt við hefðbundna meðferð. Benda þarf á að um lítils háttar mun var að ræða á milli meðferðarhópa í framkvæmd meðferðar, einkum tíðni og tímasetningu á samskiptum hjúkrunarfræðingsins við þátttakendur. Auk 254 þess var úrtak þægindavalið í meðferðarhópana og þeir ekki sambærilegir hvað varðar kynjahlutföll. Þátttakendur í Meðferð 2 greiddu meira fyrir meðferðina og þeir höfðu einnig reynt marktækt oftar að hætta að reykja en þátttakendur í Meðferð 1, og það getur hugsanlega að einhverju leyti skýrt heldur betri árangur þeirra. Þyngdaraukning í kjölfar reykbindindis hefur verið talin ein af aðalástæðum þess að fólk fellur. ( þessari rannsókn var ekki munur á milli meðferðarhópa. Ef reyklausir og reyk- ingafólk var hins vegar borið saman innan hvors með- ferðarforms höfðu reyklausir í meðferðinni á líkamsræktar- stöðinni þyngst marktækt meira en reykingafólkið, en hjá þeim sem fengu hefðbundna meðferð var munurinn ekki marktækur. Þeir sem stunduðu líkamsrækt og reyktu höfðu lést að meðaltali um 3,1 kg en reyklausir höfðu þyngst um 5,0 kg að meðaltali. Þyngdaraukning reyklausra í meðferð- inni á líkamsræktarstöðinni er hliðstæð öðrum rannsóknum (Froom o.fl., 1998). Þennan mun má að hluta til skýra með hraðari efnaskiptum hjá því fólki sem reykir (sjá Wolk og Rössner, 1995). Aukinn vöðvamassi hefur einnig getað stuðlað að þyngdaraukningu hjá þeim sem voru í líkams- rækt. Vöðvamassi var hins vegar ekki mældur í þessari rannsókn og eru þetta því einungis vangaveltur. Almennt má segja að árangur reykleysismeðferðar er ekki mikill. Mat á árangri er ekki einhlítt þar sem mæli- kvarðar eru misjafnir. Sem dæmi má nefna að algjört reyk- bindindi í a.m.k. eitt ár frá upphafsdegi meðferðar (LFAT) er mun áreiðanlegri mæling en mæling sem gerð er tiltekinn dag (PP), óháð því sem á undan er gengið. Mat, sem gert er ári eftir upphaf reykbindindis, er áreiðanlegra en mat sem gert er 6 vikum frá upphafi þess. í þessari rannsókn eru þeir einir taldir reyklausir sem ekkert höfðu reykt frá upphafi eins árs meðferðar. Árangur Meðferðar 1 (20,9%) er svipaður árangri sambærilegra erlendra rannsókna (Parrot, Godfrey, Raw, West og McNeill, 1998), þ.e. um 20% og árangur Meðferðar 2 er því í raun afbragðsgóður (39,4%). ( hjúkrunarrannsóknum þeim, sem lýst var í töflu 1, spannaði árangur 17% til 75% (n=5) og var að meðaltali 44,8%. í þeim rannsóknum voru mælingar gerðar á Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.