Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 19
skrifaði í sama blað og Árni, varpar hann fram þeirra skoðun að læknar verði að kunna að hjúkra sjúklingum svo þeir geti kennt konum sem vilji læra hjúkrunarstörf. Því taldi hann að læknar læknadeildar Háskóla íslands ásamt nunnum á Landakotsspítala ættu að veita læknanemum tilsögn í hjúkrun og síðan ættu iæknanemarnir að kenna konum hjúkrun (Erla Dóris Halldórsdóttir, 2000). Ekki virðist þessi tillaga Guðmundar hafa náð fram að ganga. Nunnur Landakotsspítala beðnar um að kenna konum hjúkrun Það var í byrjun ársins 1919 að læknar læknadeildar Háskóla íslands með Guðmund Hannesson prófessor í broddi fylkingar skrifuðu áskorun til Alþingis íslendinga að greiða sem fyrst fyrir byggingu Landspítalans. í umræddri áskorun kom fram að vegna plássleysis á Landakoti horfði til vandræða fyrir sjúklinga landsins. Þá kom einnig fram í umræddri áskorun að nunnurnar á Landakoti hefðu verið beðnar að taka íslenskar konur í hjúkrunarnám en þær skorast undan því. Og til að benda á mikilvægi Landspítal- ans bentu læknar læknadeildar á að kennsla hjúkrunar- nema og skortur á hjúkrunarkonum til starfa hér á landi yrði ekki bættur fyrr en Landspítalinn yrði byggður (Erla Dóris Halldórsdóttir, 2000). Ekki er vitað hvers vegna nunnurnar í Landakoti skor- uðust undan því að taka konur í hjúkrunarnám en leiða má líkum að því að þær hafi ekki treyst sér til þess vegna anna við spítalann. Ef til vill hefur ástæðan verið önnur og djúp- stæðari. Til dæmis var kaþólskan kirkjan almennt á móti því að nunnurnar hefðu of mikið eða of náið samneyti við fólk af öðrum trúarbrögðum (Erla Dóris Halldórsdóttir, 2000). Áskorun læknanna fólst í því að koma upp Landspítal- anum þar sem kennsla hjúkrunarnema átti meðal annars að fara fram. En til hvaða ráða gripu þær fáu hjúkrunar- konur, sem störfuðu við hjúkrunarstörf hér á landi, til að fjölga hjúkrunarkonum í landinu og koma í veg fyrir að yfir- setukonum yrði kennd hjúkrun á einum mánuði? Hjúkr- unarkonurnar vildu að hjúkrunarstarfið væri viðurkennt sem sérhæfð starfsgrein, profession, og til að sinna því þyrfti að minnsta kosti þriggja ára hjúkrunarmenntun (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996) Konan hún hlustar - og kemur stillt er kallar þjáningin, einmana og villt. Með lífsgrös hjartans og hug, sem ei skelfist, hjúkrar, eins lengi og stjörnudjúp hvelfist. (Brot úr kvæðinu Eir eftir Ijóðskáldið Huidu en það tileinkaði hún Félagi íslenskra hjúkrunarkvenna á 25 ára starfsafmæli þess, Hjúkrunar- kvennablaðið, 1944). í vetrarbyrjun árið 1919 mættu sex hjúkrunarkonur á fund í húsakynnum Lestrarfélags kvenna í Reykjavík í þeim tilgangi að stofna stéttar- og fagfélag hjúkrunarkvenna sem hafði þann tilgang að aðstoða stúlkur sem hefðu áhuga að læra hjúkrunarstörf til þess að fullnuma sig í Danmörku. Hjúkrunarkonurnar samþykktu allar tillöguna. í fundargerð frá þessum sama fundi kemur fram að hjúkrunarkonurnar hafi samþykkt að hjúkrunarnámið, sem félagið ætlaði að standa fyrir, yrði aðeins til bráðabirgða eða eins og sagði þar: „þangað til við fáum okkar eigin Landspítala." (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996). Kennslu hjúkrunarnema skyldi hagað þannig að þeir yrðu við hjúkrunarnám á spítölum hér á landi í tvö ár og héidu síðan til Danmerkur til 14 mánaða lokanáms á spítala þar úti (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996). Ástæðan fyrir því að íslenskir hjúkrunarnemar urðu að halda til lokanáms til Danmerkur var að íslensk sjúkrahús þóttu of einhæf. Til dæmis var engin fæðingardeild til hér á landi og engin skurðlækningadeild og af þeim sökum gátu sjúkrahúsin ekki veitt fullkomið hjúkrunarnám í samræmi við kröfur sem gerðar voru til hjúkrunarnámsins á hinum Norðurlöndunum (Erla Dóris Halldórsdóttir, 2000). Því næst ákváðu hjúkr- unarkonurnar að félagið skyldi nefnt „Félag íslenskra hjúkrunarkvenna" (Fíh). For- maður félagsins var kjörin Harriet Kjær, dönsk yfir- hjúkrunarkona á Holds- veikraspítalanum í Laugar- nesi. Aðrar í stjórn félagsins voru Christophine Mikkeline (Jurgensen) Bjarnhéðinsson, fyrrverandi yfirhjúkrunarkona Holdsveikraspítalans, formaður Hjúkrunarfélagsins Líknar og húsmóðir, Kristín Ólína Thoroddsen, hjúkr- unarkona við Röntgenstofn- unina í Reykjavík, og Aldís Helgadóttir, hjúkrunarkona hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn. Allar þessar konur höfðu þriggja ára hjúkrunarmennt- un að baki frá Danmörku. Þá var einnig í stjórn félagsins Jórunn Bjarnadóttir, yfirhjúkrunarkona við Kleppsspítalann, og Sigríður Magnúsdóttir, hjúkrunarkona á Vífilsstaða- hælinu, en hún hafði unnið þar frá stofnun þess. Jórunn hafði eins árs hjúkrunarnám frá Ulleválsjúkrahúsinu í Ósló að baki en Sigríður Magnúsdóttir hafði enga hjúkrunar- menntun að baki en mikla reynslu í hjúkrunarstörfum (Erla Dórisi Halldórsdóttir, 2000). Nokkur tími leið þar til stjórn Félags íslenskra hjúkrunar- kvenna tók fyrsta hjúkrunarnemann í hjúkrunarnám því það var ekki fyrr en um miðjan febrúar árið 1921. Á árun- 259 Harriet Kjær (Henriette Christine), fædd 19. júní árið 1863 í Kaupmanna- höfn, fyrsti formaður Félags íslenskra hjúkr- unarkvenna árið 1919. Myndin er í eigu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.