Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Síða 22
að við Landspítalann skyldu starfa þrjár deildarhjúkrunar-
konur og fáeinar hjúkrunarkonur. Einnig átti kennsla
hjúkrunarnema að fara fram á spítalanum. Á þessum tíma
sá stjórn Félags íslenskra hjúkrunarkvenna alfarið um
skipulag hjúkrunarnáms en hún virðist ekki hafa komið
nálægt ákvörðunartöku „Landspítalalanefndarinnar" varð-
andi fjölda hjúkrunarnema við Landspítalann.
Ekki verður annað sagt en að árið 1927 hafi orðið
viðburðaríkt í sögu íslenskrar hjúkrunarstéttar. Það ár voru
kosningar til Alþingis og hingað kom hópur norrænna
hjúkrunarkvenna til skrafs og ráðagerða við hjúkrunar-
konurnar.
(Grein þessi er í tveimur hlutum og birtist síðari hlutinn í
fyrsta tölublaði 2001)
Heimildir:
Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga B/1, 1922-1928.
Þjóðskjalasafn íslands. Gögn frá embætti húsameistara ríkisins.
Þjóðskjalasafn íslands. Stjórnarráð íslands, Db. 8, nr. 19. Landspítalinn
2920/1928.
Þjóðskjalasafn íslands, einkaskjalasafn E.45, „Landsspítalasjóður
íslands". I þessu skjali, sem dagsett er 20. júlí árið 1915, má finna nöfn
30 kvenna sem skrifuðu undir skjalið „Ávarp til íslenskra kvenna" en þar
er sagt frá því að stofnaður sé „Landsspítalasjóður íslands" í minningu
þess að konur á íslandi fengu kosningarétt árið 1915.
Alþingismannatal 1845-1995 (1996). Reykjavík: Skrifstofa Alþingis, bls.
219.
Alþingistíðindi fyrir árið 1917 A (1917). Reykjavík: Prentsmiðjan Guten-
berg, bls. 628.
Árni Árnason (1915). Hvernig getur hjúkrun komist í betra laga til sveita?
Læknablaðið 1:8, bls. 122.
Erla Dóris Halldórsdóttir (1996). Upphaf hjúkrunarstéttar á íslandi. B.A.
ritgerð í sagnfræði við Háskóla íslands, bls. 32, 38-47, 52-53, 68, 70,
92-93.
íslensku hjúkrunarkonurnar, sem luku hjúkrunarnámi í útlöndum á
árunum 1918-1922, eru nafngreindar í B.A. ritgerð minni.
Erla Dóris Halldórsdóttir (2000). íslensk hjúkrunarstótt frá árinu 1930 til
1960. 10 eininga ritgerð til M.A. prófs í sagnfræði við Háskóla íslands,
bls. 8-14.
Gunnar M. Magnúss (1981). Landspítalabókin. [Reykjavíkj: Ríkisspítalar,
bls. 27-28, 33, 42, 50-51.
Hulda (1944). Eir. Tileinkað félagi íslenzkra hjúkrunarkvenna á 25 ára
starfsafmæli. Hjúkrunarkvennablaðið 3:20, bls. 1.
Stjórnartíðindi fyrir ísland árið 1915 A (1915). Reykjavík: ísafoldarprent-
smiðja, bls. 89.
Stjórnartíðindi fyrir ísland árið 1919 A (1919). Reykjavík: Prentsmiðjan
Gutenberg, bls. 231.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir
Mig langar til að ræða hér um grunnnám í hjúkrunarfræði
eða það nám sem nú virðist vera farið að tala um og rita
sem grunnnám. Ég fæ ekki séð að það nám, sem við
höfum lokið frá Hjúkrunarskóla íslands, Háskóla íslands
eða Háskólanum á Akureyri, sé grunnnám. Það hefur
verið og er nám í hjúkrunarfræði sem nemendur hafa
lokið frá viðkomandi skóla hverju sinni. Viðkomandi hefur
þá hlotið - eins og var fyrstu árin - réttindi til þess að
starfa sem fullgildur hjúkrunarfræðingur hér á landi eða,
sem síðar varð, getað með prófskírteini í hendi hlotið
réttindi til þess frá heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu. Hvers vegna þá að tala um grunnnám?
Aldrei hefi ég heyrt talað um grunnnám í læknisfræði
eða grunnnám í viðskiptafræði, guðfræði eða öðrum
greinum þar sem nemendur eru brautskráðir að loknu
lokaprófi. Hvers vegna þá að tala um grunnnám í hjúkr-
unarfræði? Og hvenær slæddist það inn í málið? Var
það þegar hjúkrunarfræðingar fóru utan til þess að
stunda framhaldsnám við erlenda háskóla og luku
þaðan meistaragráðu í einhverri sérgrein hjúkrunar? Þá
til að aðgreina nám í hjúkrunarfræði og framhaldsnám í
einhverri sérgrein hjúkrunar? Það má að vissu leyti segja
að þarna sé verið að draga úr námi í hjúkrunarfræði með
því að kalla það grunnnám. Það hvarflar ekki að mér að
það hafi verið ætlun þeirra sem fyrst fóru að tala um
grunnnám í hjúkrunarfræði. Ef til vill eru þetta áhrif frá
tungum annarra þjóða. Það er mikill vandi að þýða úr
öðrum málum yfir á íslenska tungu og það er gaman
þegar vel til tekst en jafnslæmt þegar svo er ekki.
Ég bið hjúkrunarfræðinga alla að taka þessar
hugleiðingar til alvarlegrar athugunar. Ef við hjúkrunar-
fræðingar gerum það ekki - þá hver?
262
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000