Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 32
'HjúkvMKAmtóferð (rÁ ajÓKArkovmm
- hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðínga
Með fjarfundarbúnaði var dagskrá fundarins send út á land.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hélt hjúkrunarþing
föstudaginn 10. nóvember sl. í funda- og ráðstefnusal
ríkisstarfsmanna, Borgartúni 6. Þátttakendur voru rúmlega
hundrað talsins, en að auki gátu hjúkrunarfræðingar á
ýmsum stöðum utan höfuðborgarsvæðisins fylgst með
dagskránni með aðstoð fjarfundarbúnaðar. Þetta er í fyrsta
sinn sem byggðabrúin er notuð til að senda dagskrá
hjúkrunarþings út á landsbyggðina en að þessu sinni voru
það hjúkrunarfræðingar á sjúkrahúsunum á ísafirði,
Húsavík, Akureyri, Sauðárkróki, Neskaupstað, Seyðisfirði
og Egilstöðum og svæðunum þar í kring sem gátu fylgst
með dagskránni, en hún var auk þess send Atvinnu-
þróunarfélaginu í Vestmannaeyjum og til heilsugæslu-
stöðvanna á Þórshöfn og á Vopnafirði.
Þingið hófst með ávarpi formanns Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Herdísar Sveinsdóttur, en hún sagði
við það tækifæri að viðhorf hjúkrunarfræðinga til svo-
kallaðrar stoðmeðferðar hefði verið jákvæðara en viðhorf
lækna þó félagið hefði ekki tekið afstöðu til hvort og þá
hvaða stoðmeðferð væri viðurkennd sem hjúkrunarmeð-
ferð. Skilgreining á hjúkrunarmeðferð þyrfti að byggjast á
faglegum og siðferðilegum sjónarmiðum og það væri m.a.
tilgangur þingsins að kanna afstöðu hjúkrunarfræðinga til
þessara mála. Þá voru flutt fjögur framsöguerindi. Helga
Jónsdóttir, dósent við H.Í., flutti fyrirlestur sem hún nefndi:
Hjúkrunarmeðferð: Til hvers? Þar fjallaði hún um ýmiss
konar meðferð og hvort meta skuli gildi meðferðar út frá
því hvort hún sé vísindalega sönnuð. Hún benti á að
272
ýmsar tegundir meðferðar væru lítið rannsakaðar og kynnti
starfsreglur sem byggðar eru á reglum sem hópur innan
Royal College of Nursing í Bretlandi hefur þróað.
Dr. Auðna Ágústsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á
Landspítala-Fossvogi, fjallaði um rannsóknir og hjúkrunar-
meðferð og sagði frá gagnreyndri hjúkrunarþjónustu (evi-
dence based practice) þar sem borinn er saman árangur
og hagkvæmni af mismunandi meðferð fyrir heilbrigðis-
kerfið. Hún fjallaði um mismunandi rannsóknaraðferðir og
mikilvægi þess að nýta þær aðferðir sem henta hjúkrun
sem fræðigrein og stuðla þannig að gagnvirkri hjúkrun
(evidence based nursing). Arna Skúladóttir, hjúkrunarfræð-
ingur á Landspítala-Fossvogi, fjallaði um þróun hjúkrunar-
meðferðar og sagði frá þjónustu fyrir foreldra barna með
svefntruflanir sem barnadeildin í Fossvogi býður upp á en
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 5. tbl. 76. árg. 2000