Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Page 41
„<])[{ vtq bAm^kjúkru^Ar stm w.es'Un" - segir Hertha W. Jónsdóttír, fyrrverandi hjúkrunarframkvæmdastjóri „Þegar ég sótti um rannsóknarleyfi óskaði ég eftir að vinna verkefni í hjúkrun að eigin vali. Það lá nokkuð Ijóst fyrir að hvaða verkefni ég myndi vinna og ég vissi alltaf innst inni að ég ætti að skrifa um þróun hjúkrunar á Barnaspítala Hrings- ins árin 1980 - 1998 og ekkert annað. Samt gat ég engan veginn ákveðið það til fulls eða byrjað á því verki strax vegna þess að svo mörg önnur og þýðingarmikil verkefni sóttu fast að mér og mér fannst mér bera skylda til að kanna þau ofan í grunninn, flokka þau og undirbúa sem ég og gerði," segir Hertha W. Jónsdóttir sem hefur sent frá sér bók um áðurnefnt efni, aðferðir og hugmyndafræði í barna- hjúkrun. Hertha hefur verið hjúkrunarframkvæmdastjóri á Barnaspítala Hringsins þetta tímabil og unnið sem barna- hjúkrunarfræðingur meira og minna frá því hún lauk námi fyrir rúmum fjörutíu árum. Þetta er fyrsta bók Herthu og jafn- framt fyrsta bókin þar sem markvisst er skrifað um þróun hjúkrunar innan tiltekinnar sérgreinar. Hertha segir að hún hafi búið svo vel að eiga allar dagbækur sínar og fundar- gerðir frá 1980 er hún hóf störf á Barnaspítala Hringsins og því getað notað þær m.a. sem heimildir við skriftirnar. Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga heimsótti Herthu á skrifstofu hennar í húsi augndeildar við Eiríksgötu þar sem Fæðingarheimilið var áður til húsa en þar hefur hún haft aðstöðu í rannsóknarleyfinu. Hertha lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla íslands 1958 og hóf störf á barnadeildinni sama ár en deildin tók til starfa 1957. „Hvers vegna ég lagði fyrir mig barnahjúkrun? Ég veit það svo sem ekki, það var ef til vill tilviljun eins og svo margt annað í mínu lífi. Á námstímanum hafði ég unnið við hjúkrun á öllum deildum Landspítalans og einnig á öðrum sjúkrahúsum en þá voru engar barnadeildir til og lágu sjúk börn því innan um fullorðna á sjúkrahúsum. Þó var komin svokölluð barnastofa á lyflækningadeildinni á Landspítalanum þar sem alltaf var fullt af krökkum og var rúmum oft skotið bak við hurð eða höfð á miðju gólfi til að nýta rýmið betur. Hjúkrunarfræðingarnir vildu gjarnan hafa krakkana nálægt sér til að betra væri að annast þá og þeir voru talsvert mikið með börnin þar sem heimsóknir foreldra voru lítið leyfðar þá. Mér fannst strax mjög gefandi og skemmtilegt að hjúkra börnum og því var spennandi að ráða sig á hina nýstofnuðu barnadeild strax eftir útskrift. Og eftir að ég byrjaði í barnahjúkrun varð ekki aftur snúið." Þríhyrningurinn barn, foreldrar og starfsfólk Hertha rekur í bók sinni þróun barnahjúkrunar, hvernig fyrst var nær eingöngu litið á sjúkdóminn sem barnið þjáðist af, því næst var farið að líta á barnið sem einstakling og svo farið að líta á tengsl barnsins við fjölskylduna, félagslegar þarfir barnsins og þarfir fjölskyldunnar þegar barnið veikist. Síðan var farið að skilgreina þarfir hjúkrunarfólksins. „Það er þessi þríhyrningur, barnið, foreldrarnir og starfsfólkið, sem skiptir mestu í barnahjúkrun. Allir aðilar eru jafnmikilvægir og enginn getur án hins verið þegar börn eða unglingar veikjast og miklu skiptir að öllum í þríhyrningnum líði vel. Eitt af mikilvægustu verkefnunum, sem mér fannst blasa við er ég tók við störfum hjúkrunarframkvæmdastjóra Barnaspítala Hringsins, var að stuðla að og finna leiðir til markvissrar og persónulegrar hjúkrunar fyrir hvert einstakt barn og foreldra þess. Jafnframt vildi ég auka fræðslu- og upplýsingastreymi milli barna, foreldra og hjúkrunarfólks og auka á þann hátt vellíðan foreldra, barna og starfsfólks." Frá því barnadeildin var opnuð 1957 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hertha rifjar t.d. upp heimsóknartíma for- eldra. „Fyrst var foreldrum leyft að heimsækja börnin tvisvar í viku, á sunnudögum og fimmtudögum, klukkutíma í senn. Að loknum heimsóknartímum var mikið um grát hjá börnunum, þau söknuðu foreldranna að sjálfsögðu en starfsfólkið var mjög natið við börnin og gerði það sem það gat til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Á þessum tíma voru samgöngur erfiðar, lítið um flug og bílaeign í lágmarki, og því oft og tíðum erfitt fyrir foreldra að fylgja barni sínu eftir. Sum börn, sem komu t.d. utan af landi, voru send á sjúkrahús án ættingja og var þá sjúkra- flutningamaðurinn eða ættingi í bænum sem kom með barninu og gaf upplýsingar um það og síðan var barnið sent heim á sama hátt eftir að búið var að gera viðeigandi aðgerð eða veita meðferð sem þurfti. Þetta var því mjög ólíkt því sem við eigum að venjast í dag. Smám saman fjölgaði heimsóknartímum þannig að heimsóknir urðu dag- legar og núna geta foreldrar verið hjá börnunum sínum á hvaða tíma sólarhrings sem er.“ Hertha hefur einnig unnið mikið við kennslu en hún hóf 281 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.