Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Side 43
Hin hliðin: Björg Þórhailsdóttir
Björg Þórhallsdóttir er bæði hjúkr-
unarfræðingur og söngkona og
söng m.a. einsöng á 80 ára
afmælishátíð Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga sem fram fór að
Kjarvalsstöðum 6. nóvember í fyrra.
Björg er Eyfirðingur að ætt og
uppruna og bjó öll sín uppvaxtarár á
Möðruvöllum í Hörgárdal og síðar á
Akureyri. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
íslands vorið 1988 og starfaði við hjúkrun til ársins 1996.
Björg stundaði söngnám við tónlistarskólann á Akureyri á
árunum 1991 til 1996 en haustið 1996 hóf hún
framhaldsnám í Ijóða- og óperusöng við Konunglega
Tónlistarháskólann í Manchester á Englandi og lauk því
námi vorið 1999.
Hún hefur komið fram sem einsöngvari við fjölda tæki-
færa, haldið tónleika víða um land. Hún hélt m.a. sjö ein-
söngstónleika á síðasta ári í tilefni kristnitökuafmælis á
íslandi og í október sl. hélt hún einsöngstónleika f tónleika-
röðinni Tfbrá í Salnum í Kópavogi. Björg hefur sungið ein-
söng með fjölda kóra og sungið tvisvar með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands. Hún hefur sungið einsöngs-
hlutverk í Gloríu eftir Vivaldi, Jólaoratoríu Saint-Saéns,
Messíasi eftir Hándel, Messe Solennelle eftir Gounod og
Sálumessu Brahms. Á óperusviðinu hefur Björg sungið
hlutverk Elsu í Lohengrin eftir Wagner, hlutverk Electru í
Idomeneo eftir Mozart og hlutverk Aidu í samnefndri óperu
Verdis. í mars í fyrra söng hún hlutverk Kostelnicka í
óperunni Jenufa eftir Janácek í Konunglega tónlistar-
háskólanum í Manchester. Sl. ár hefur Björg verið við nám
og störf í Lundúnum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga frétti af henni hér á landi en
hún hefur undanfarnar vikur verið önnum kafin við að gefa
út hljómdisk sem ber heitið: Það ert þú! Eyjafjörður- Ijóð og
lag. Lögin og Ijóðin eiga öll rætur að rekja til Eyjafjarðar þar
sem höfundar tengjast firðinum með einum eða öðrum
hætti. Flest laganna hafa ekki verið hljóðrituð áður og
endurspegla ást skáldanna til fjarðarins, náttúru hans og
kennileita og eru valin með samspili Ijóðs og lags. „Þetta
var hugmynd okkar Daníels Þorsteinssonar, sem leikur
undir á píanóið," sagði hún er ritstjóri sló á þráðinn til
hennar til Akureyrar. „f upphafi þessa árs vorum við beðin
um að flytja nokkur laga Jóhanns Ó. Haraldssonar við Ijóð
Davíðs Stefánssonar í afmæli. í framhaldi af því veltum við
fyrir okkur hvort ekki væru til fleiri sönglagaperlur eftir
eyfirsk tónskáld sem samin höfðu verið við Ijóð eyfirskra
skálda. í Ijós kom að talsvert efni var til sem féll undir
skilgreininguna. Okkur fannst full ástæða til að koma
þessum menningarverðmætum á framfæri og afraksturinn
er þessi diskur." Umgjörð disksins er í bókarformi þar sem
geisladiskurinn sjálfur er geymdur innan á bókarkápu.
Bókin er prýdd Ijósmyndum Rúnars Þórs úr Eyjafirði og
tengjast þær innihaldi Ijóðanna. Erlingur Sigurðarson ritar
aðfararorð en texti bókarinnar ásamt Ijóðunum er þýddur á
ensku af Helenu Frances Eðvarðsdóttur.
Björg hefur alfarið snúið sér að söngnum undanfarin ár
en hún var fram til 1996 lektor í hjúkrunarfræði við Háskól-
ann á Akureyri og starfandi á sjúkrahúsinu. Hún segir
söngnámið mjög skemmtilegt en söngheiminn segir hún
harðan. Þar ríki mikil samkeppni þar sem hæfileikar skipti
ekki alltaf mestu máli og atvinnutækifæri geta verið eins og
í happdrætti. „Þetta snýst oft um að vera á réttum stað á
réttum tíma. Ég hef verið mjög heppin hingað til, hef verið í
Lundúnum í vetur að syngja og einnig sótt tíma til ítalskrar
dívu, Iris Dell’Ácqua og William Hancox undirleikara. Á
sama hátt og í hjúkruninni er símenntunin mjög mikilvæg í
söngnum, það má endalaust gera betur og læra meira.
Það á ekki síst við um mína rödd sem er mjög stór og
dramatísk og hæfir best stórum óperuhlutverkum.
En hefur hjúkrunarmenntunin nýst henni í söngnáminu?
„Já, mér þykir mjög vænt um þessa menntun og það er
gott að hafa hana í bakhöndinni ef heppnin er ekki með
mér í sönghappdrættinu. Það er mikil tilfinningaleg túlkun í
söngnum og hjúkrunarfræðingar kynnast öllu litrófi
tilfinninganna í starfi sínu og öllum hliðum mannlegs lífs.
Þessi reynsla mín auðveldar mér túlkun í söngnum og
einnig að ná sambandi við áheyrendur."
-vkj
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 5. tbl. 76. árg. 2000
283