Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2000, Qupperneq 48
Starfsferill þátttakenda
Meðalstarfsaldur þátttakenda var 17,10 ár (SD=10,36).
Lengsti starfsaldur var 42 ár og höfðu 6 þátttakendur
(2,8%) starfað við hjúkrun í 40 ár eða lengur. Stysti starfs-
aldur var 1 ár og höfðu 7 þátttakendur starfað við hjúkrun
1 ár eða skemur (3,2%). Algengasti starfsaldur var 20 ár.
Aðspurðir á hvaða sviði hjúkrunar þátttakendur störf-
uðu kváðust flestir eða 57 (26,0%) starfa við öldrunar-
hjúkrun, en næstflestir eða 50 (22,8%) við iyflækninga-
hjúkrun. 42 þátttakendur (19,2%) sögðust vinna við hand-
lækningahjúkrun, 27 (12,3%) við gjörgæsluhjúkrun, 25
(11,4%) við endurhæfingarhjúkrun og 22 (10,0%) við
heilsugæsluhjúkrun. Færri en 10% þátttakenda sögðust
vinna við hvert eftirtalið hjúkrunarsvið: 21 (9,6%) starfaði
við slysahjúkrun, 18 (8,2%) við barnahjúkrun, 18 (8,2%)
við geðhjúkrun, 15 (6,8%) við skurðhjúkrun, 15 (6,8) við
skólahjúkrun, 14 (6,4%) við fæðingarhjúkrun, 14 (6,4%)
fyrir félaga- eða hagsmunasamtök, 13 (5,9%) við heima-
hjúkrun, 10 (4,6%) við hjúkrun á göngudeild, 8 (3,7%) við
svæfingarhjúkrun, 7 (3,2%) fyrir einkaaðila og 2 (0,9%) við
röntgenhjúkrun. 19 þátttakendur (8,7%) sögðust starfa við
eitthvað annað en tiltekið er hér að ofan, 2 (0,9%) sögðust
ekki vinna við hjúkrun og svör vantaði frá 11 (5,0%). Hafa
ber í huga við túlkun þessara talna að 70 þátttakendur
(32,0%) sögðust vinna á fleiri en einu sviði hjúkrunar. Þar
af sögðust 38 (17,4%) starfa á tveimur sviðum hjúkrunar
og 32 (14,6%) sögðust starfa á 3 eða fleiri sviðum.
Aðspurðir um það hve lengi þátttakendur hefðu unnið
á því sviði hjúkrunar þar sem þeir störfuðu þegar könnunin
fór fram, sögðust flestir (24,2%) hafa starfað á því sviði í 5
til 10 ár og næstflestir (23,3%) í 2 til 5 ár.
í töflu 2 kemur fram að flestir þátttakenda (37%) unnu
á sjúkrahúsi með fleiri en 300 rúmum þegar könnunin fór
fram. Flestir þátttakendur eða 53 (24,2%) höfðu unnið 2 til
5 ár á þeim vinnustað sem þeir störfuðu á þegar könnunin
fór fram. Meirihluti þátttakenda (60,8%) hafði unnið 10 ár
eða skemur á vinnustaðnum.
Tafla 2. Vinnustaður
Fjöldi Hlutfall (%)
Sjúkrahús með fleiri en 300 rúm 81 37,0
Dvalar- eða hjúkrunarheimili 32 14,6
Sjúkrahús með 100 - 299 rúm 29 13,2
Sjúkrahús með færri en 100 rúm 28 12,8
Heilsugæslustöð 19 8,7
Endurhæfingarstofnun 8 3,7
Einkafyrirtæki, annað en sjúkra-
stofnun hjá opinberum aðilum,
félags-eða hagsmunasamtök 9 4,1
Vantar svar 13 5,9
Alls 219 100%
Helmingur þátttakenda (50,2%) gegndi stöðu almenns
hjúkrunarfræðings (tafla 3). Þegar tafla 3 er lesin er mikil-
vægt að hafa í huga að þeir einir eru taldir í hópi hjúkrunar-
stjóra, verkefnisstjóra eða fræðslustjóra, sem eingöngu
merktu við þann svarmöguleika. Það sama á við um
kennara. Þannig sögðust 20 þátttakendur (9,1%) gegna
stöðu hjúkrunarstjóra, verkefnisstjóra eða fræðslustjóra en
12 þeirra sögðust jafnframt gegna annarri stöðu. 10
þátttakendur (4,6%) gegna stöðu kennara en 9 þeirra
gegna jafnframt annarri stöðu.
Tafla 3. Staða
Fjöldi Hlutfall (%)
Almennir hjúkrunarfræðingar 110 50,2
Hjúkrunardeildarstjórar 46 21,0
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjórar 33 15,1
Aðrir stjórnendur (hjúkrunar-
framkvæmdastjórar / -forstjóri, 16 7,4
verkefnisstjóri eða fræðslustjóri)
Kennari 1 0,5
Eitthvað annað 8 3,7
Vantar svar 5 2,3
Alls 219 100%
Meirihluti þátttakenda (59,3%) hafði gegnt stöðu sinni í
5 ár eða skemur og rúmur fjórðungur (28,3%) hafði gegnt
stöðu sinni í 2 ár eða skemur. Rúm 60% þátttakenda
höfðu starfað samfellt við hjúkrun eftir að þeir luku hjúkr-
unarnámi en 40% höfðu tekið sér hlé frá hjúkrun. Fjöl-
skylduástæður, þar á meðal barneignir, voru langalgeng-
ustu ástæðurnar fyrir því að þátttakendur tóku sér hlé frá
hjúkrun.
Vinnutími og vinnuaðstæður
Lengd vinnutíma og starfshlutfall
86 (39,1%) voru í fullu starfi sem hjúkrunarfræðingar þegar
rannsóknin var gerð og 128 (58,2 %) í hlutastarfi, þar af 65
(53,9%) í 80-90% starfshlutfalli. 4 (1,8%) störfuðu ekki við
hjúkrun og 12 (5,5%) unnu hlutastarf við hjúkrun og annað
starf að auki.
Þátttakendur unnu að meðaltali 38,5 (spönnun 16-72)
stundir á viku og þar af voru 5,8 yfirvinnustundir. Þeir voru
beðnir um að svara miðað við síðustu þrjá mánuði. Af
þeim hjúkrunarfræðingum, sem unnu fleiri en 35 stundir á
viku (n=141), unnu 63,1% 35 - 45 stundir, 27,0% unnu 46
- 50 stundir og 9,9% fleiri en 51 stund á viku. Tafla 4 sýnir
að þátttakendur, sem gegndu hærri stöðum, unnu fieiri
stundir á viku. Deildarstjórar unnu lengsta vinnuviku en
almennir hjúkrunarfræðingar stysta. Mismunur á meðal-
vinnustundafjölda eftir stöðu var marktækur (einhliða dreifi-
greining; F=9,54; df=3/188; p<0,001).
288
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 76. árg. 2000