Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Qupperneq 7
RITSTJORASPJALL
RITRÝNT HEFTI í TILEFNI 80 ÁRA AFMÆLIS
Niðurstöður viðhorfskönnunar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga liggja fyrir
og verður sagt frá þeim í næsta tölublaði. Meðal þess sem spurt var um voru
viðhorf til Tímarits hjúkrunarfræðinga en þetta er í fyrsta sinn í 80 ára sögu þess
sem hjúkrunarfræðingar fá tækifæri til að segja hvað þeir eru ánægðir með í
tímaritinu og hverju þeir vilja breyta.
Helstu niðurstöður eru þær
að 68% segjast oftast eða
yfirleitt alltaf lesa blaðið,
31% segjast stundum eða
sjaldan lesa það en 2%
segjast aldrei lesa það.
Lengflestir sögðust lesa
fræðslugreinar og um þrír
fjórðu sögðust lesa umfjöllun
um kjaramál, þankastrik,
umfjöllun um heilbrigðismál
Valgeröur Katnn Jónsdóttir °9 viötöL SPurt var m'a' um
hvort félagsmenn vildu að
gefin yrðu út tvö sérrit á ári með ritrýndum greinum og
sögðust tæp 60% kjósa það fyrirkomulag. Meirihlutinn
eða 60% vildi meiri áherslu á fræðslugreinar, 59% meiri
umfjöllun um kjaramál og 54% vildu meiri umfjöllun um
heilbrigðismál og almenna fréttapunkta (53%). Verkefni
ritnefnda og ritstjóra næstu mánuði verður að koma til
móts við vilja lesenda.
Með hliðsjón af niðurstöðum lesendakönnunar er
ánægjulegt að með þessu tölublaði fylgir í fyrsta sinn
sérstakt ritrýnt hefti sem gefið er út í tilefni 80 ára afmælis
tímaritsins sem var á síðasta ári. Nokkrum forystukonum
varðandi fræðiskrif, eða þeim Sigríði Halldórsdóttur,
Guðrúnu Kristjánsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kristínu
Björnsdóttur, var boðið að rita greinar í það og völdu
þær sumar að senda inn það efni sem þær voru að
vinna þá stundina. Tímariti hjúkrunarfræðinga er mikill
fengur í því að birta í fyrsta sinn sérstakt ritrýnt hefti.
Að þessu sinni birtast auk þess tvær ritrýndar greinar
í marstölublaðinu og birtast því nú 6 ritrýndar greinar í
einu, en tii gamans má geta þess að árlega hafa birst að
meðaltali þrjár til fjórar ritrýndar greinar í tímaritinu.
Undanfarna mánuði hefur innsendum handritum, sem
óskað er eftir að fara í ritrýni, fjölgað mjög og enn eru
mörg handrit í vinnslu hjá höfundum eftir að þeir hafa
fengið í hendur umsagnir ritrýna. Ef heimtur verða góðar
á þeim skapast möguleiki til útgáfu annars ritrýnds heftis,
ef til vill með haustinu. Þetta er ánægjuleg þróun og skapar auk þess
svigrúm í tímaritinu sjálfu til að birta annað efni. Hjúkrunarfræðingar eru
fjölmennasta heilbrigðisstétt landsins og hafa því margt til málanna að
leggja í umræðum um heilbrigðismál auk fræðistarfa. Sendið endilega
inn efni og hugmyndir að efni!
Vatgerður Katrín Jónsdóttir
valgerdur@hjukrun. is
Náttúrulegar
hágæða baðvörur
Laugavegi 2 -101 Reykjavík - Sími 5521103 - www.jurtaapotek.is
Upplifðu lúxus spa stemningu í þínu eigin baðherbergi
með baðvörum sem Kolbrún grasalæknir hefur skapað
fyrir íslenskar konur.
JURTAAPOTEK
kolbrúnVgrasalæknir
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
5