Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 10
Benner o.fl., 1996). Þær segja frá því hvernig hjúkrunarfræöingar viröast ná ótrúlegri færni viö að takast á viö dagleg störf á grundvelli reynsluþekkingar. Eins og þær lýsa þekkingu í hjúkrun þá veitir fræöileg þekking ákveðinn grunn en er síðan ekki endilega svo mikilvæg til að ná fullum tökum á starfinu og skila árangri aö mati samstarfsmanna og yfirmanna. Með hliðsjón af hugmyndum Benner og félaga hennar skiptir mestu máli að hjúkrunarfræðingar geti íhugað reynslu sína og jafnvel rætt hana í samstarfshópnum. Annar höfundur, sem ræðir á nýstarlegan hátt um þekkingu í hjúkrunarstarfinu, er Joan Liaschenko. Liaschenko bendir á að stór hluti þeirrar þekkingar, sem hjúkrunarfræðingar búa yfir og nýta í daglegu starfi, er ósýnilegur þó hann sé mikilvægur fyrir stofnunina. Þar á hún við þekkingu um það hvernig stofnunin virkar og hvernig hægt sé að fá hluti gerða, hvaða árangri megi búast við af tiltekinni meðferð, hvaða fylgikvillar er líklegt að komi fram, hvernig sjúklingar bregðast við meðferð o.s.frv. Þetta er hins vegar þekking sem er í raun ekki viðurkennd og er þar af leiðandi ekki efld frekar (Liaschenko, 1998; Liaschenko og Fisher, 1999). Verk ofangreindra höfunda eru mjög mikilvæg og fá okkur til að víkka skilning okkar á þekkingu í hjúkrun. Rannsókn Estabrooks og félaga hennar, sem ég ræddi hér að framan, og svipaðar rannsóknir eru einnig mikilvægar því þær sýna okkur að þær aðferðir, sem við beitum til að efla þekkingu í hjúkrunarstarfinu, eins og að hvetja hjúkrunarfræðinga til að lesa tímarit, skila í mörgum tilvikum ekki tilætluðum árangri (Estabrook o.fl., 2005). Estabrooks og félagar leggja til að kannaðar verði þær aðferðir sem hjúkrunarfræðingar nota til að verða sér úti um nýja þekkingu og benda jafnframt á að það liggi ekkert fyrir um að þær séu ófullnægjandi. Að mínu mati eru þessar niðurstöður einnig áhugaverðar fyrir okkur hér heima. Mjög líklega er ekki raunhæft að reikna með því að allt efni, sem birtist í tímaritinu okkar, verði lesið spjalda á milli af öllum hjúkrunarfræðingum. Er það vandamál? Mín skoðun er sú að óraunhæft sé að búast við því. Hins vegar má gjarnan spyrja hver tilgangur tímaritsins ætti þá að vera. Hér á eftir ætla ég að setja fram nokkrar hugmyndir um hinn fræðilega hluta tímaritsins en fyrst langar mig aðeins að líta til framtíðar. Hjúkrunarfræðingar sem þekkingarstarfsmenn Þótt höfundar eins og Benner og Liaschenko hafi vissulega fengið okkur til að skoða og meta þekkingu hjúkrunarfræðinga á nýjan hátt er einnig mikilvægt að kynna sér þær stefnur um eðli og hagnýtingu þekkingar sem eru ríkjandi innan heilbrigðisþjónustunnar. Mér virðist að í þeirri umfjöllun sé stöðugt meiri áhersla lögð á vægi vísindalegrar þekkingar. Því má fastlega búast við að á komandi árum verði gerðar auknar kröfur um að hjúkrunarfræðingar beiti vísindalegri þekkingu í störfum sínum. Orðin gagnreynd þekking, gagnreyndir starfshættir og akademísk viðurkenning hljóma hvarvetna þegar rætt er um heilbrigðisþjónustuna. Sama er hvert maður fer, á ráðstefnu eða fund, allt skal vera gagnreynt, þ.e. byggja á bestu þekkingu sem völ er á. Þar er vísindaleg þekkíng, sem hlotið hefur faglega umfjöllun í ritrýni, álitin mikilvægust. Reikna má með að á komandi árum verði gerðar auknar kröfur til hjúkrunarfræðinga um að afla sér vísindalegrar þekkingar. í hugmyndinni um gagnreynda þekkingu felst að sýnt hafi verið fram á árangur þeírra aðferða sem beitt er í rannsóknum. Innan heilbrigðisþjónustunnar er einnig í auknum mæli lögð áhersla á að starfsmenn stundi rannsóknir og taki þátt í akademísku starfi. Til að standa jafnfætis öðrum starfstéttum má því búast við að hjúkrunarfræðingar verði að leggja meiri áherslu á hinn vísindalega þátt í starfi sínu. Því virðist einsýnt að á komandi árum muni greinum, sem sendar verða til tímaritsins til faglegs mats eða ritrýni, fjölga umtalsvert. Raunar skilst mér að sú þróun hafi þegar hafist og að greinum, sem óskað er eftir að teknar verði til ritrýni, hafi stórfjölgað á þessu ári og fagna ég því. Að þróa hugmyndir sínar Nú langar mig til að snúa mér að hlutverki tímaritsins okkar. í mínum huga er ein mikilvægasta forsenda þess að fagstétt nái að þroskast og eflast sú að vettvangur skapist til að ræða um og móta hugmyndir um fagið. Með því að lýsa skilningi sínum á prenti og útlista nýja þekkingu fyrir öðrum hjúkrunarfræðingum skapast forsendur til að endurskoða og betrumbæta það sem er. Einhvern veginn hefur okkur ekki aiveg tekist að skapa þá hefð að það að eyða tíma í að ræða og skrifa um viðfangsefni fagsins sé mikilvægt (Bjornsdottir, 1996; Kristín Björnsdóttir, 1994). Hér vísa ég til rannsókna erlendra sagnfræðinga sem fjallað hafa um hugmyndasögu hjúkrunar (sjá í Kristín Björnsdóttir, 2005). Þessir sagnfræðingar hafa bent á hinn rýra hlut fræðilegs náms í hjúkrun framan af tuttugustu öld og hinn langa vinnudag sem einkenndi bæði nematímann og hjúkrunarstarfið að námi loknu. Hjúkrunarkonur höfðu hvorki tíma né aðstæður til að velta hlutunum mikið fyrir sér. Á margan hátt einkenndist saga hjúkrunar á tuttugustu öld af baráttu fyrir umbótum í menntunarmálum og bættri starfsaðstöðu. Hjúkrunarkonur börðust fyrír bættum launum, styttingu vinnutíma og fyrir því að vera þátttakendur í stefnumótun og ákvörðunartöku. Því hefur maður tilhneigingu til að álykta að þessi barátta fyrir frumþörfum hafi háð faginu okkar mest. Við höfum einfaldlega ekki haft aðstæður til að þróa hugmyndir okkar um áherslur og aðferðir í starfi. í doktorsverkefni mínu greindi ég meðal annars faglega umfjöllun í tímaritinu með það fyrir augum að átta mig á skilningi íslenskra hjúkrunarkvenna á starfinu og þekkingu sem þær lögðu til grundvallar. Fyrstu árgangar tímaritsins eru mjög áhugaverðir og gefa mjög miklar upplýsingar um afstöðu hjúkrunarkvenna til starfsins og heilbrigðismála almennt (Bjornsdottir, 1996; Kristín Björnsdóttir, 1994). Ýmsar greinar birtust um hugmyndafræði hjúkrunar og aðferðir sem mælt var með að nota, s.s. um notkun lita, um heilsuhæli sem menntastofnanir og um þjóðfélagslegt gildi hjúkrunarkonunnar. Það sló mig hins vegar hvernig efnistökin breyttust eftir því sem frá leið. Smám saman fækkaði greinum eftir hjúkrunarkonur um fagleg efni en þær héldu áfram að skrifa um félagsmál. Á sama tíma fjölgaði greinum eftir lækna um tiltekna sjúkdóma. Oft greindu hjúkrunarkonur þó frá nýjungum sem þær kynntust á ferðum sínum í útlöndum en slík umfjöllun var stutt og líklega hafa þessar nýjungar verið kynntar og ræddar á fundum hjúkrunarkvenna. 8 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.