Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 17
VIÐTALIÐ
k
10.00-12.00. Ég hef fasta fundi
með aðaltrúnaðarmönnum og
vinnuverndarráðgjöfum en á fundunum
fer ég yfir allt er varðar starfsemi spítalans
Hér erum við að ræða fjárhagsáætlun sem
hefur í för með sér sparnað upp á 100
milljónir norskra króna árið 2006.
Kl. 12.15-12.00, sviðstjóri kemur og
að sjálfsögðu er tími fyrir hana og
borðaður hádegismatur.
i
Kl. 13.00-14.00. Velkomin hjá verkefnastjóra.
innkirtlamiðstöðvar. Markmiðið er að setja allar
innkirtlagreinar undir eina stjórn. Verkefnið er
í góðum höndum hormónasérfræðingsins og
læknisins 0ystein Dolva.
HÚRRA, flott forsíðugrein og tvær heilsíður í Dagens Medisin um Aker-háskólasjúkrahúsið um
að æðaskurðlæknar hafi gert fjölmargar velheppnaðar aðgerðir á aðalslagæð í maga, fyrstir á
Norðurlöndum. Petta á eftir að breyta miklu fyrir sjúklingana, þeir þurfa ekki að liggja á gjörgæslu, nægir
að vera á vöknun og eru komnir á fætur daginn eftir. Þetta hefur mun minni kostnað í för með sér fyrir
sjúkrahúsið vegna styttri legu og ódýrara legurýmis. Mjög mikilvægt er að halda upp á bæði stóra og
litla sigra, sýna fagfólkinu að framfarir eru á deildunum, bæði í meðhöndlun, hjúkrun og rekstri.
Kl. 14.00-15.30. Fundur med hagfræðingi
og fjármálastjóra. Við þurfum að fínpússa
fjárlög fyrir svið og deildir, í ár minnkum við
kostnað um 100 milljónir. Við þurfum að
undirbúa stjórnarfund sem haldinn verður
26. janúar þar sem við kynnum aðferðir
okkar til að ná þvi markmiði.
Kl. 15.30-16.00. Póstur dagsins skoðaður.
Sækja Tinnu, skóladagheimili lokað kl. 16.30.
Ætlaði að fara í ræktina en röddin er endanlega
farin og hitinn farinn að hækka. Fer beint að
kaupa í matinn og hjálpa Tinnu með heimaverkefni
og við förum svo snemma i rúmið báðar tvær.
Góður dagur, mikil gleði af að vinna með mörgu
mjög færu fólki og mikill árangur hefur náðst á
mörgum sviðum. Við erum á réttri leið!
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
15