Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 19
VIÐTALIÐ
Það góða við okkur íslendinga er að við erum dugleg að
framkvæma hlutina. Við þurfum að hafa opnari umræðu og
meiri endurskoðun og gera okkur grein fyrir því sem er gott
og slæmt, og bæta það sem við getum bætt. Við þurfum að
bæta gæðastuðla á landsvísu, það þyrfti að skila inn skýrslum
til landlæknis og heilbrigðisráðuneytis þrisvar til fjórum sinnum
á ári og auka rétt sjúklinga og stytta biðtíma."
Fyrr á þessu ári tók Hulda við forstjórastarfi á Akersjúkrahúsinu
en þar starfa 3.500 starfsmenn og sjúkrahúsið veltir 3,5
milljörðum norskra króna árlega. „Noregi er skipt í 5
heilbrigðissvæði, hið stærsta er austursvæðið þar sem Aker
er og á því svæði eru 7 sjúkrahús. Þar búa 1,6 milljónir íbúa
eða 2/3 hlutar landsmanna og 18 milljarðar norskir eru á
fjárhagsáætlun til sjúkrahúsa fyrir þetta svæði, þar af veltir Aker
3,5 milljörðum."
Þjónusta við eldri borgara í Noregi
Hvað með þjónustu við eldri borgara? Hulda segir meiri
samvinnu bæjarfélaga og sjúkrahúsa en hérlendis og reynt
að vinna á flestum þeim vandamálum sem aldraðir glíma við,
svo sem þvagfærasýkingum, næringarskorti, geðsjúkdómum,
hrörnun o.fl. „Sjúkrahús þrýsta á borgar- eða bæjaryfirvöld við
útskriftir, ef yfirvöld taka ekki við sjúklingum innan 7 daga frá
því þeir geta útskrifast borga þau sjúkrahúsvistina. Þetta hefur
orðið til þess að komið hefur verið upp skammtímaplássum
sem eru millistig sjúkrahúsa og elliheimila.“ Hún segir fólk
einnig fá meðhöndlun á hjúkrunarheimilum, til staðar er
þverfaglegt teymi sem hægt er að hafa samband við, unnið
er að því að bæta þekkingu starfsfólks á heimilunum, gerðar
eru rannsóknir á fólki og það fær meðhöndlun í sínu umhverfi.
Aukin þekking hindrar þannig óþarfa innlagnir.
Hún segir engan skort á hjúkrunarfræðingum í Noregi og
nýútskrifaðir eigi erfitt með að fá vinnu. „Þeir fá einungis vinnu
á elli- og hjúkrunarheimilum, sjúkrahúsin gera kröfu um 2
ára reynslu. Það er þó skortur á skurðhjúkrunarfræðingum,
við höfum ekki menntað nægilega marga þar. Menntun
hjúkrunarfræðinga er alfarið á háskólastigi en hún er talin léleg
miðað við önnur Norðurlönd og lélegust er hún við háskólann
í Ósló. Við hátæknihjúkrun vilja hjúkrunarfræðingar ekki gera
hvað sem er. Þegar hjúkrunarfræðingaskorturinn var mikill
fengum við sjúkraliða til að aðstoða okkur. En við gættum ekki
að þessu barni okkar, þeir fengu ekki mikil tækifæri til að halda
áfram námi og eru nú flestir farnir í önnur störf. Við erum því
búin að fá nýtt aðstoðarfólk í býtibúr, skol og á lagera.“
Hulda segir að lokum að það sé gott að vera íslendingur í
Noregi. „íslendingar eru í miklum metum, þeir þykja duglegir
og áreiðanlegir og það að vera íslendingur opnar margar dyr.“
Hún er búin að búa í Noregi í 19 ár en vill ekki verða norskur
ríkisborgari frekar en flestir aðrir íslendingar í útlöndum.
MINNING
Kveðja frá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Þorbjörg Jónsdóttir, fyrrum skólastjóri Hjúkrunarskóla
íslands og heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, er látin. Með henni er genginn einn frumkvöðla
og forystukona í hjúkrunarmenntun hér á landi.
Þorbjörg lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla íslands
árið 1944. Hún lauk framhaldsnámi í skurðhjúkrun,
barnahjúkrun og fleiri sérgreinum hjúkrunar hér heima,
en stundaði einnig framhaldsnám í Bandaríkjunum og á
Englandi. Þorbjörg lærði stjórnun og hjúkrunarkennslu
sem nýttist henni vel í farsælum störfum við
Hjúkrunarskóla íslands, fyrst sem kennari frá 1948 til
1954 og síðan sem skólastjóri frá 1954 til 1983.
Þorbjörg sat í ritnefnd vegna sögu Hjúkrunarskóla
íslands sem kom út árið 1990. Hún sat í stjórn
Hjúkrunarfélags íslands og var ritari stjórnar um
tveggja ára skeið. Á hátíðarsamkomu í tilefni af 50 ára
afmæli Hjúkrunarskóla íslands árið 1981 var Þorbjörg
gerð að heiðursfélaga í Hjúkrunarfélagi íslands.
Ragnheiður, systir Þorbjargar sem búsett er
í Bandaríkjunum, hefur gefið 500 bandaríkjadali í
minningarsjóð Kristínar Thoroddsen til minningar um
Þorbjörgu. Ragnheiði eru færðar bestu þakkir fyrir
þessa góðu gjöf.
Blessuð sé minning Þorbjargar Jónsdóttur,
hjúkrunarfræðings.
Elsa B. Friðfinnsdóttir,
formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
17