Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 24
ÞANKASTRIK
Stefanía Arnardóttir, stefarn@landspitali.is
GETUR HÁTÆKNISJÚKRAHÚS VERIÐ
HÁGÆÐASJÚKRAHÚS?
í október sl. gafst mér tækifæri til aö
sækja ráðstefnu í Chantilly í Virginíu.
Þetta var ráöstefna sjúkrahúsa sem
starfa undir merkjum Planetree en
um 120 sjúkrahús í Bandaríkjunum,
Kanada og Hollandi starfa eftir
hugmyndafræði þeirra. Markmiðið
er að sjúklingum og starfsfólki líði
vel. Ráðstefnan var byggð upp í
anda stefnunnar og fyrirlestrar bæði
hvetjandi og uppbyggjandi. Enda fór
maður heim með þá tilfinningu að
svona ætti vinnustaður að vera og
engin vandamál væru það stór að
ekki væri hægt að leysa þau.
í allri þessari umræðu um hátæknisjúkra-
hús hugsa ég sífellt meir um að það er
sjúklingurinn sem skiptir öllu máli. Við
erum fyrir hann en ekki hann fyrir okkur.
Þeir leita til okkar eftir faglegri þjónustu
þegar þeir eru sem viðkvæmastir fyrir
og hvernig tökum við svo á móti þeim?
Við látum þá bíða á köldum fráhrindandi
bíðstofum, liggja á göngum fyrir allra
augum og starfsfólkið svo yfirkeyrt af
vinnuálagi að það getur mjög takmarkað
sinnt þeim og sjúklingarnir útskrifast
heim með þá tilfinningu að þeir hafi
verið að íþyngja okkur með veru sinni á
sjúkrahúsinu og starfsfólkið fer heim með
þá tilfinningu að það hafi ekki sinnt vinnu
sinni nema að hluta. Þetta eru ekki þær
aðstæður sem við viljum vinna við eða
bjóða skjólstæðingum okkar upp á.
Angelica Thieriot stofnaði samtökin
Planetree 1978 eftir að hafa verið bæði
sjúklingur og aðstandandi á sjúkrahúsi.
Henni stóð til boða öil sú tækni sem
til var til sjúkdómsgreiningar en öllum
öðrum þörfum hennar, s.s. félagslegum,
trúarlegum og andlegum, var ekki sinnt.
Stefna Planetree byggist á ákveðnum
gildum sem eru í raun ekkert ný. Við
þekkjum þessi gildi og höfum framfylgt
þeim í einhverjum mæli við ummönnun
skjólstæðinga okkar. Þessi gildi byggjast
á samskiptum, fræðslu til sjúklinga og
aðstandenda, nærveru fjölskyldu og
vina sjúklingsins, næringu, andlegum
og trúarlegum þáttum, snertingu, list,
sértækri viðbótarmeðferð og ekki síst
hönnun og skipulagningu húsnæðis.
Á ráðstefnunni var boðið upp á heimsóknir
á Planetree-sjúkrahús og fór ég í góðum
hópi í heimsókn á Warren Memorial
Hospital en sá spítali gekk í samtök
Planetree 1999. Kynning á starfsemi
sjúkrahússins hófst strax í rútunni á leiðinni
þangað og var ásláttarhljóðfærum dreift
um rútuna til að kynna fyrir okkur hvernig
hægt væri að nota einföld hljóðfæri við
meðferð og það leiddist engum ferðin.
Warren Memorial Hospital er 196 rúma
spítali og hjúkrunarheimili og er alhliða
þjónusta veitt þar. Strax og komið er að
byggingunni býður hún mann velkominn
með aðlaðandi anddyri, lifandi tónlist,
vatnslistaverkum og ánægðu starfsfólki
sem er tilbúið að sýna okkur það sem
það er að gera.
Byrjað var á að fara með okkur um
langlegudeildirnar og það sem vakti
hvað mest athygli mína voru hlýlegar
vistarverur, leikföng og dýr en þar var
að finna fiskabúr, fuglabúr og ketti
sem bjuggu þar og gengu frjálsir um
vistmönnum til mikillar ánægju. Það var
ekki einungis á langlegudeildunum sem
vistarverur voru hlýlegar. Fæðingarstofan
leit út eins og hótelherbergi með hentugri
lýsingu sem hægt var að breyta eftir
þörfum. Bráðadeildirnar buðu mann
einnig velkominn með góðum ilm úr
eldhúsi deildarinnar en þar höfðu sjúkl-
ingar og aðstandendur aðstöðu til að
elda mat eða baka kökur. Það sem vakti
einna mest athygli mína í ferð okkar
um spítalann var að gert er ráð fyrir
stöðum þar sem fólk getur sest niður
og talað saman og látið sér líða vel, ekki
bara innandyra heldur utandyra einnig en
það voru fallega skipulagðír garðar allt í
kringum sjúkrahúsið.
Á Warren Memorial er boðið upp á
matarsendingar til sjúklinga allan
sólarhringinn og fá sjúklingar afhenta
matseðla sem þeir og aðstandendur
þeirra geta pantað eftir og það er sérhæft
starfsfólk í eldhúsi sem kemur og færir
þeim matinn að þeirra óskum þegar þeim
hentar en ekki á föstum tímum.
Mikið er gert til að sinna þörfum starfs-
fólks. Vinnuaðstaðan er til fyrirmyndar
og viðurkenningar til starfsmanna eru
sjálfsagðar þegar þeir standa sig vel. Ekki
er verið að tala um stórar gjafir heldur er
um að ræða hrós, þakkarkort, sælgæti,
bíómiða, bílastæði o.fl. í þessum dúr.
Markmið Planetree-sjúkrahúsa er að
uppfylla þarfir sjúklinga og starfsmanna.
Þetta hefur þeim tekist með góðum
árangri og hefur starfsmannavelta þar
minnkað til muna og ánægja sjúklinga
aukist.
Með samvinnu allra stétta í heilbrigðis-
geiranum er ég sannfærð um að við
getum haft hér hágæðasjúkrahús þar
sem sjúklingum og starfsfólki líður vel
því við stefnum öll að sama marki, að
skjólstæðingum okkar líði vel hjá okkur
og fái bestu ummönnun sem vöi er á.
Ég skora á Auði Karen Gunnlaugsdóttur
að skrifa næsta þankastrik.
22
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006