Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Síða 28
Geir A. Guðsteinsson, geiragnar@torg.is
GRUNNÞEKKING Á LÍKNARMEÐFERÐ OG
EINKENNAMEÐFERÐ NAUÐSYNLEG
Málþing um líknarmeðferö á vegum
Hjúkrunarþjónustunnar Karítas var
haldið 1. október sl. í húsakynnum
ÍSMED að Lyngálsi 13 og var þátttaka
viðunandi. 13 ár eru iiðin síðan
samtökin voru stofnuð en 8. október
er alþjóðadagur líknarmeðferðar.
Talsverður áhugi var fyrir því að auka
fræðslu um þróun í líknarmeðferð á
íslandi og í því skyni fengu samtökin
þær Þóru Björgu Þórhallsdóttur og
Joanne Wells, sem báðar starfa við
líknarmeðferð í Bretlandi, til að koma
til íslands og fræða þá sem starfa við
líknarmeðferð hérlendis um hvernig
þessi mál hafa þróast þarlendis
undanfarin misseri. Þóra Björg segir
að þrátt fyrir ólík þjóðfélög geti
íslendingar margt af Bretunum lært
þótt það þurfi stundum að laga að
aðstæðum hérlendis.
Líknarmeðferð er sniðin að þörfum
krabbakrabbameinsveikra og er lögð
áhersla á góða aðstöðu fyrir sjúklinga og
aðstandendur, sérstaklega ef meðferðin fer
fram utan heimilis. Líknarmeðferð er fyrst
og fremst umönnun sem miðast við að lina
líkamlega og andlega þjáningu, eins og
verki, kvíða og depurð, og bæta almennt
líf hins sjúka. Þannig getur meðferðin
einnig verið fyrir einstaklinga sem eru að
ná sér eftir erfiða sjúkdómsmeðferð eða
umönnun við ævilok.
Gera sjúklingum ævikvöldið
þægilegt
Hlustað af athygli á erindi Joanne Wells um þróun heimahlynningar á Englandi
Eru til hópar hérlendis sem starfa að
heimahjúkrun og líknarmeðferð en hafa
nánast ekkert samband við aðra sem
starfa að sömu málum?
„Sérhæfð líknarmeðferð er veitt af
tveimur hópum á höfuðborgarsvæðinu,
þ.e. Hjúkrunarþjónustunni Karítas og
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins
sem einnig er með starfsemi á Akureyri.
Það er eitthvert samstarf milli þessara
aðila en það er Ijóst að þörfin á
líknarmeðferð er alltaf að aukast. í upphafi
miðaðist þessi starfsemi eingöngu við
krabbamein en í dag er fjöldi manns með
langvinna sjúkdóma sem þarf meðferð
og stuðning. Það má segja að visst
óréttlæti ríki því krabbameinssjúklingur
getur vænst betri þjónustu, eftirlits og
einkennameðferðar en sá sem greinist
með t.d. hjartasjúkdóm, lungnasjúkdóm
eða mænu- og taugasjúkdóm.
Hugtakið líknarmeðferð þýðir í flestum
tilfellum það að gera sjúklingnum ævi-
kvöldið þægilegt, að hann eigi þess kost
að lifa lífi sínu við sem minnstar þjáningar
og mesta ánægju þegar oft er engin von
um bata, því miður. Þegar að lífslokum
26
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006