Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 29
GRUNNÞEKKING Á LIKNARMEÐFERÐ OG EINKENNAMEÐFERÐ NAUÐSYNLEG kemur er búið að gera sjúklingnum kleift að deyja með sem mestri reisn og án þjáninga." - Vilja margir deyja heima sé þess einhver kostur? „Margir vilja vera heima eins lengi og nokkur er kostur en sumir hafa áhyggjur af aðstandendum sínum og vilja ekki leggja of mikið á þá, og stundum ræður Hugtakið líknarmeðferð þýðir í flestum tilfellum það að gera sjúklingi ævikvöldið þægilegt, að hann geti lifað lífi sínu við sem minnstar þjáningar og mesta ánægju þegar oft er engin von um bata, því miður. Þegar að lífslokum kemur er búið að gera sjúklingnum kleift að deyja með sem mestri reisn og án þjáninga. fjölskyldan ekki við að sinna sjúklingnum heima þegar umönnunin er kannski orðin allan sólarhringinn. Sumir breyta því um skoðun og þá þarf að finna leið sem allir sættast á, bæði sjúklingurinn og aðstandendur hans. En eftir sem áður vilja langflestir deyja heima." Er starfsemin í Englandi mjög frábrugðin því sem við þekkjum hérlendis? „Hún er auðvitað miklu eldri og hefur þróast mjög markvisst síðan 1967. Ég var búin að vinna við líknarmeðferð hérlendis í 10 ár þegar ég ákvað að fara út í nám til að sérhæfa mig enn meira. Það var reyndar byrjað eitthvert nám á Akureyri á þeim tíma í samstarfi við háskóla í Bretlandi. Starfsemin hér á íslandi er að mörgu leyti frábrugðin starfseminni á Englandi, ekki síst skipulagið. Það þarf að tryggja að allir sem vinna við heimahlynningu hafi grunnþekkingu á líknarmeðferð og einkennameðferð, s.s. skiigreiningu á ógleði og verkjum. Þetta snýst um það að virða einstaklinginn og taka fullt tillit til óska hans. Hugmyndafræðin er því mjög persónutengd, þ.e. að meta þarfir sjúklingsins og fjölskyldu hans. Ef vandamálið er flóknara á að kalla til sérfræðinga." Aukin þátttaka heilbrigðisyfirvalda „í Englandi kemur sérhæft starfsfólk eins og þeir hjúkrunarfræðingar inn í ferlið sem ráðgjafar og þeir veita ráð t.d. um lyfjameðferð og veíta ekki síður andlegan stuðning. Heilsugæsiu- hjúkrunarfræðingarnir sinna allri annari hjúkrun, en í Englandi er miklu meira samstarf við heimilisiækna og heilsu- gæslulækna en tíðkast hér á íslandi. Ef læknir hérlendis hefur samband við heima- hlynningu sinnir hún alfarið þeim sjúklingi og er í mestu sambandi við sérfræðinginn sem langoftast er krabbameinslæknir. Þegar sjúklingur í Englandi útskrifast af sjúkrahúsi en þarf heimahlynningu taka hjúkrunarfræðingar við þeirri beiðni en hafa strax samband við heimilislækni um t.d. lyfjameðferð. Mér finnst það kannski spurning hvort það verður ekki erfiðara í framtíðinni að ná sambandi við krabbameinssérfræðingana ef stöðugt fleiri greinast með krabbamein og þurfa sérhæfða aðstoð. Þarf ekki að fara að nýta sérfræðingana með einhverjum öðrum og skilvirkari hætti? Þessi fundur hér gefur fólki vonandi tækifæri til að hugleiða þessa hluti og að settur verði fastari rammi um það hvernig við viljum að líknarþjónusta þróist. Kannski þurfa heilbrigðisyfirvöld að taka meiri þátt í því ferli, t.d. með auknum fjárframlögum. Þó þessi þjónusta hafi gengið vel til þessa þurfum við að auka víðsýnina," segir Þóra Björg Þórhallsdóttir. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.