Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 34
Um það bil 20-25 þúsund íslendingar þjást af
ýmiss konar geðveilum og/eða áfengissýki á
hverjum tíma.
Rauði kross íslands hefur undanfarin
ár staðið fyrir könnunum um land allt á
aðstæðum og þjónustu við geðfatlaða en
þau mál hafa verið meðal forgangsmála
samtakanna undanfarin ár. Páll Biering
geðhjúkrunarfræðingur var fenginn til að
vinna að rannsóknunum á landsbyggðinni
og á höfuðborgarsvæðinu og voru
þær gerðar í samvinnu við Geðhjálp
og Guðbjörgu Daníelsdóttur sálfræðing.
Ýmislegt áhugavert kom fram í könnun-
unum, meðal annars mikil þörf fyrir
fræðslu og stuðning við aðstandendur,
sérstaklega úti á landsbyggðinni, og þörf
fyrir betri eftirfylgd hvar á landi sem er (sjá
www.redcross.is,www.gedhjalp.is).
í kjölfarið var ákveðið að Rauði krossinn
í samvinnu við Geðhjálp og landlæknis-
embættið og Lýðheilsustofnun stæði
fyrir námskeiðum fyrir aðstandendur
geðfatlaðra og áhugafólk um geðræn
vandamál. Markmiðið með þeim er að
fræða aðstandendur og áhugafólk og í
kjölfarið mynda stuðningshópa aðstand-
enda og þeirra sem njóta þurfa geðheil-
brigðisþjónustunnar.
Hefur skipulag og umsjón verið í höndum
sjálfboðaliða og svæðisstarfsmanna
Rauða krossins en innihald námskeið-
anna í höndum Guðbjargar Sveinsdóttur,
geðhjúkrunarfræðings og starfsmanns
Rauða krossins, Salbjargar Bjarnadóttur,
geðhjúkrunarfræðings og verkefnisstjóra
hjá landlæknisembættinu, ásamt tveimur
prestum, aðstandanda og starfsmanni
Geðhjálpar.
Byrjað var á landsbyggðinni og hafa þegar
4 námskeið verið haldin og fram undan
eru 4 til viðbótar á vorönn. Hvert námskeið
stendur í tvo daga og byggist annars
vegar á fyrirlestrum um geðheilbrigði,
helstu geðsjúkdóma, meðvirkni í
fjölskyldum, rætt er um sjálfsvígsatferli,
sorg og sorgarviðbrögð við langvinnum
sjúkdómum eða dauðsfalli, foreldri segir
sína reynslu af baráttu við kerfið og
fulltrúi frá Geðhjálp kynnir möguleika á
Herdís Sveinsdóttir, prófessor í hjúkrun
Herdís Sveinsdóttir, kennari í hjúkrunarfræðideild Háskóla
íslands, forstöðumaður fræðasviðs skurðhjúkrunar á
Landspítala-háskólasjúkrahúsi og fyrrum formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, fékk framgang í stöðu
prófessors nýverið. Herdís er fjórði prófessorinn í hjúkrun
á íslandi og óskar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
henni hjartanlega til hamingju.
Herdís lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla íslands
árið 1981, meistarprófi frá University of Michigan í Ann
Arbor 1987 og doktorsprófi frá háskólanum í Umeá í
Svíþjóð árið 2000. Herdís hefur kennt hjúkrunarfræðingum
sem sótt hafa nám til Háskóla (slands allt frá því hún lauk
námi, að frátöldum þrem árum sem hún dvaldi við nám og
og störf í Bandaríkjunum. í upphafi var hún stundakennari í
klínískri kennslu í öldrunarhjúkrun, en
frá árinu 1987 hefur hún skipulagt alla
kennslu í hjúkrun aðgerðasjúklinga
og frá árinu 1996 haft umsjón
með kennslu í heilbrigði kvenna í
Ijósmæðranámi. Þar fyrir utan hefur
hún tekið þátt í skipulagningu grunn-
og framhaldsnáms hjúkrunarfræðinga
og í annarri kennslu. Herdís hefur
setið í stjórn Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði frá
árinu 1998 og verið formaður stjórnar frá 2003. Hún situr
nú í stjórn Rannsóknastofu í vinnuvernd og var í stjórn
Rannsóknastofu í kvennafræðum 1996-2000 og formaður
þeirrar stjórnar 1999-2000.
Herdís Sveinsdóttir
32
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006