Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Blaðsíða 37
ÖRYGGI SJÚKLINGA
skráningar sinnar á skráningarblaði og gerði. Ljósmóðirin skrifaði að hún hefði
hjúkrunarfræðingurinn á vöknun vísaði ekki fengið munnlegar upplýsingar um
í sjúkraskrá sjúklingsins þar sem fram blæðingarstöðvunina og hefði ekki lesið
koma þær hjúkrunaraðgerðir sem hún það sem skráð var á skráningablaðinu.
Nefndin taldi að það hefði verið á ábyrgð
Ijósmóðurinnar að kynna sér skriflega
skráningu um eftirmeðferð, hvort sem
hún fékk munnlega skýrslu eða ekki. Hún
fékk þess vegna áminningu. Helmingur
nefndarmanna var á móti. Þeir töldu
að vinnureglum um skýrslugjöf við
vaktaskipti og vinnu við sjúkraskrá hefði
ekki verið fylgt þar sem enginn af öllu
því fólki sem hjúkraði konunni tók eftir
athugasemdinni um að fjarlægja ætti
tvær grisjur morguninn eftir aðgerðina.
Þeir álitu að Ijósmóðirin ein ætti ekki að
bera ábyrgð á þessu. Ljósmóðirin hefur
kært ákvörðunina.
Kannski er full ástæða til að yfirfara
vinnureglur og vinnubrögð um skýrslugjöf
við vaktaskipti á þínum vinnustað? Það er
á ábyrgð okkar allra að sætta okkur ekki
við vinnubrögð sem við erum ekki ánægð
með. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar
sem það eru oft einstakir starfsmenn sem
þurfa að taka ábyrgðina á mistökum sem
í flestum tilvikum má rekja til kerfisgalla.
Lesendur eru hvattir til að senda inn
frásagnirum mistöko.fl. Slíkardæmisögur
geta verið undir nafni eða nafnlausar.
Klínískar leiðbeiningar á vef landlæknis
Á vef landlæknisembættisins eru komin út drög að
klínískum leiðbeiningum um átröskun. Leiðbeiningarnar
eru afrakstur vinnuhóps sem starfað hefur á vegum
embættisins síðan vorið 2004.
Átröskun er samspil iíkamlegra, sálrænna og félagslegra
þátta sem hafa innbyrðis áhrif hver á annan. Lystarstol
(anorexia nervosa) og lotugræðgi (bulimia nervosa) eru
sjúkdómar sem einkennast af sjúklegum ótta við að
þyngjast og hræðslu við að missa stjórn á mataræði.
Þeir sem veikjast af átröskun eru fyrst og fremst ungar
konur, 15-24 ára, en sífellt fleiri yngri og eldri einstaklingar
hafa greinst með sjúkdómana. Um einn af hverjum 20
lystarstolssjúklingum er ungur karl.
FRÉTTAPUNKTUR
í tölum um tíðni átröskunar í Vestur-Evrópu og
Bandaríkjunum er áætlað að á ári hverju greinist 8 ný
tilfelli um lystarstol meðal hverra 100 þúsund íbúa og 12
ný tilfelli um lotugræðgi meðal hverra 100 þúsund íbúa.
Séu þessar tölur yfirfærðar á (sland má búast við um 24
nýjum sjúkdómstilfellum af lystarstoli árlega og 36 tilfellum
af lotugræðgi. Til að veita meðferð þeim sem þjást af
þessum sjúkdómum hefur nýlega verið opnuð deild fyrir
átröskunarsjúklinga á Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Leiðbeiningar þessar eru birtar sem drög til umsagnar til
20. mars. Drögin verða síðan endurskoðuð af vinnuhópnum
innan fjögurra vikna frá lokum umsagnartímans í Ijósi
nýrrar vitneskju og athugasemda sem berast.
Klinískar leiðbeiningar um átröskun: http://www.landlaeknir.is/template1 ,asp?pageid=996>
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
35