Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Síða 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Síða 43
RITRYND GREIN telja einkenna góða og/eða óvíðunandi þjónustu. í öðru lagi að leggja nokkuð af mörkum til þróunar fræðilegrar þekkingar á hugtakinu sjúklingaánægja í geðhjúkrun barna og unglinga. Fræðileg umfjöllun Gæði heilbrigðisþjónustu eru oftast metin út frá þremur meginþáttum: uppbyggingu (structure) þjónustunnar, þeirri þjónustu sem veitt er (process) og útkomu eða árangri (outcome) þjónustunnar (Barak o.fl., 2001). Hægt er að meta árangur þjónustunnar eftir mörgum leiðum og ein þeirra er að meta ánægju þeirra sem þiggja hana. Á undanförnum árum hefur þessi leið notið vaxandi vinsælda (Barak o.fl., 2001), ekki síst vegna aukinna áhrifa notendasjónarmiða í heilbrigðisþjónustu og hefur hugtakið sjúklingaánægja, patient satisfaction) öðlast þar viðurkenndan sess sem mikilvægur gæðavísir. Þrátt fyrir að skilgreining hugtaksins sé enn mjög á reiki hafa sum þeirra mælitækja, sem þróuð hafa verið til að mæla hugtakið, sannað gildi sitt því þau hafa reynst næm á breytingar á hjúkrunarþjónustu (Merkouris o.fl., 1999). Enn sem komið er hafa mælitæki til að mæla sjúklingaánægju í geð- heilbrigðisþjónustunni ekki náð almennri útbreiðslu þrátt fyrir að nokkrar rannsóknir sýni að sjúklingaánægja sé réttmætur mælikvarði á gæði geðheilbrigðisþjónustu (Kolb o.fl., 2000; Shipley o.fl., 2000). Geðræn veikindi eru ekki jafnáþreifanleg og líkamleg veikindi og því getur verið erfiðara en ella að mæla árangur þeirrar meðferðar sem veitt er. Barak og samstarfsmenn (2001) hafa bent á það að það er vandasamara að mæla sjúklingaánægju meðal geðsjúklinga en annarra notenda heilbrigðisþjónustunnar vegna þess hve tilfinningalega flókið og viðkvæmt samband sjúklíngs og heilbrigðisstarfsfólks getur verið. Oft eru geð- sjúkir lagðir inn gegn vilja sínum og þeir geta verið haldnir ofsóknartilfinníngum og skort innsæi í ástand sitt (Barak o.fl., 2001; Middelboe o.fl., 2001). Ekki er langt síðan geðsjúklingar voru ekki taldir færir um að leggja vitrænt mat á umhverfi sitt og framkomu annarra í sinn garð (Noble o.fl., 2001; Wallace o.fl., 1999). Þessi skoðun er nú mjög á undanhaldi og rannsóknum á viðhorfum og reynsiu geðsjúklinga og fjölskyldna þeirra hefur fjölgað (Barker o.fl., 1996; Lelliott o.fl., 2001; Wallace o.fl., 1999). í þessum rannsóknum hafa þátttakendurnir tilgreint svipaða þætti sem þeir telja einkenna góða þjónustu. Helstu atriðin snerta viðmót og framkomu starfsfólks, fagleg vinnubrögð, traust og skilning í samskiptum, aðbúnað og að starfsfólk gefi sjúklingnum eða aðstandanda hans nægan tíma og taki tillit til sjónarmiða hans. Einnig benda þessar rannsóknir til þess að nauðsynlegt sé að spyrja sérstaklega út í einstaka þætti þjónustunnar þar sem notendurnir geta verið mjög ánægðir með einn þátt en óánægðir með annan. Rannsóknir benda einnig til að umhverfi og aðbúnaður geðsjúklinga hafi mikil áhrif á sjúklingaánægju þeirra og bata. Ónóg lýsing, skortur á hreinlæti og Iftið persónulegt næði draga verulega úr sjúklingaánægju (Wallace o.fl., 1999). Síðustu áratugina hefur orðið vakning í þá átt að taka tillit til þarfa foreldra þegar börn og unglingar leggjast inn á sjúkrahús. Þessi vakning hefur einnig náð til barna sem leggjast inn á geðdeild og lögð hefur verið áhersla á að fá fjölskyldur unglinga, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, inn í meðferðina til þess að fækka endurinnlögnum (Valgerður Baldursdóttir og Tómas Helgason, 1994). Einnig er lögð áhersla á að vinna með allri fjölskyldunni strax frá upphafi til þess að tryggja sem bestan árangur meðferðarinnar. Rannsóknir hafa sýnt nokkrar grunnþarfír foreldra barna sem leggjast inn á sjúkrahús, m.a. þörf fyrir upplýsingar, trúnað og samhæfða þjónustu (Guðrún Kristjánsdóttir og Helga Bragadóttir, 2001). Áður fyrr var litið á fjölskyldur barna, sem áttu við geðræn vandamál að stríða, sem hluta af vandamálinu en ekki hluta af lausninni (Stuart og Laraia, 2001). Orsakir geðsjúkdóma meðal barna voru oft raktar til foreldra og því talið mikilvægt að rjúfa tengsl foreldra og barna í stað þess að styrkja þau. Jafnframt var lítill áhugi sýndur á árangri meðferðarinnar. Þetta breyttist mikið um 1990 þegar birtar voru rannsóknir er bentu á mikilvægi þess að taka tillit til þarfa fjölskyldna geðsjúkra (Jellinek, 1999). Rannsóknir á þjónustuþörfum foreldra barna, sem leggjast inn á sjúkrahús, hafa einkum beinst að foreldrum barna með líkamlega sjúkdóma, en búast má við að foreldrar geðsjúkra barna hafi sérstakar þarfir sem nauðsyn sé að kanna til að hægt sé að koma til móts við þær. Þegar þjónusta við foreldra barna og unglinga, sem eiga við geðræn vandamál að stn'ða, er skipulögð verður að hafa í huga að mörg þeirra koma úr fjölskyldum sem glíma við ýmsa erfiðleika. í rannsókn, sem gerð var meðal hundrað fyrstu unglinganna sem lögðust inn á unglingageðdeild Landspítala- háskólasjúkrahúss (LSH), kom í Ijós að 30% unglinganna áttu foreldra í vímuefnavanda og svipaður fjöldi átti foreldra með geðrænar truflanir (Valgerður Baldursdóttir og Tómas Helgason, 1994). Fleiri rannsóknir hafa gefið svipaðar niðurstöður en hafa ber í huga að oft er um flókið orsakasamhengi að ræða. Því verður geðheilbrigðisþjónusta að miða að sérhæfðum þörfum fjölskyldnanna hverju sinni (Tsang o.fl., 2003). Framkvæmd Aðferðafræði Aðferðafræði rannsóknarinnar er túlkunarfræðileg fyrirbæra- fræði (hermeneutical phenomenology) í anda Max van Manen (1990). Þessi aðferðafræði byggist á þekkingarfræði heimspekinganna Edmunds Husserls (1859-1938) og Martins Heideggers (1889-1976) sem líta á manninn sem sjálftúlkandi veru (self interpreting being) en í því felst meðal annars að fyrirbærin, sem verka á einstaklinginn, verða ekki skilin frá skilningi og túlkun einstaklingsins. Reynsla foreldra af því að eiga barn á geðsjúkrahúsi - fyrirbærið sem hér er verið að rannsaka - verður eingöngu skilið út frá skilningi og túlkun foreldranna sjálfra á þeirri reynslu. í samræmi við þennan þekkingarfræðilega skilníng var rannsóknargagna aflað með opnum viðtölum við foreldrana þar sem þeir voru beðnir um að lýsa reynslu sinni. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006 41

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.