Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Side 45
RITRYND GREIN á aðstandendur sjúklinga, ekki síst á foreldra veikra barna. Foreldrar geðsjúkra barna eru oft mjög viðkvæmir fyrir framkomu fagfólks og finnst jafnvel að þeir eigi sök á vanheílsu barna sinna. Það er því mikilvægt að sýna þeim fyllstu alúð og hlýju. Leiðsögumenn Þetta stef endurspeglar þörf foreldranna fyrir að geta reitt sig á leiðsögn ákveðins meðferðaraðila á því erfiða ferðalagi sem hefst þegar barn eða unglingur leggst inn á geðdeild. Þetta stef kom fram í viðtölum við tíu þátttakendur. Ánægja foreldra með að hafa slíkan leiðsögumann kemur fram í orðum móður barns á barnadeild. „Við vorum mjög heppin, sá félagsráðgjafi sem sinnti okkar máli, það var aldrei neitt mál að ná sambandi við hana, ef maður skildi eftir skilaboð þá var alltaf hringt, þannig að það var mjög gott.“ Fimm foreldrar kvörtuðu yfir að hafa þurft að hafa samskipti við of margt starfsfólk og meðferðaraðila. Móðir af unglingadeild lýsti því þannig: „Þetta var þvílíkur aragrúi af starfsfólki að mér fannst með ólíkindum og það var alltaf verið að skipta um.“ Þessum þátttakendum hefði þótt bót að því að hafa sama aðilann til að leita til. Einn af þeim lagði t.d. til að ákveðinn hjúkrunarfræðingur eða félagsráðgjafi fengi það hlutverk að halda utan um málefni ákveðinna barna og fjölskyldna þeirra, fylgdi máli þeirra eftir og væri málsvari sem gætti réttinda þeirra. Þessum þátttakendum þóttu þeir ráðvilltir inni á deildunum eins og fram kemur í orðum móður af unglingadeild. „Mér fannst ég oft eins og illa gerður hlutur, vissi ekki hvað ég átti að gera, en enginn kom og tók á móti manni og gerði eittvað með manni, sko.“ Eins fannst þeim skorta upplýsingar um daglega framvindu meðferðar og við hvað var fengist á deildinni frá degi til dags. Þetta kemur skýrt fram í orðum móður af unglingadeild: „Það sem mér finnst kannski meiri veikleiki við unglingageðdeildina er að maður fær ekki að vita hvað er að gerast dags daglega, hvað barnið gengur í gegnum." Þetta stef er í fullu samræmi við niðurstöður rannsóknar Guðrúnar Kristjánsdóttur og Flelgu Bragadóttur (2001) á þörfum foreldra barna á sjúkrahúsum. Sú rannsókn leiddi í Ijós nokkrar grunnþarfir foreldra barna, m.a. þörf fyrir upplýsingar, trúnað og samhæfða þjónustu. Rannsókn, sem Barak o.fl. (2001) gerðu meðal fullorðinna geðsjúklinga á sjúklingaánægju, sýndi sterk jákvæð tengsl á milli ánægju með geðheilbrigðisþjónustu og þess að fá góðar upplýsingar um gang meðferðar og aukaverkanir lyfja. Niðurstöður Wallace o.fl. (1999) eru á sömu nótum en rannsókn þeirra sýndi að samfella í þjónustu hefur mikil áhrif á ánægju geðsjúklinga með þá þjónustu sem þeir fá. í þeirri rannsókn náði skilgreiningin á samfellu í þjónustu m.a. yfir það að þekkja starfsfólkið, hafa sama lækninn við endurteknar innlagnir og hafa einn tengilið sem þekkir viðkomandi vel. Þetta leiðir hugann að því hvort ekki sé ráðlegt að byggja upp tengiliðakerfi þar sem hver fjölskylda fengi tengilið og málsvara eins og kemur fram í hugmyndum móðurinnar hér að ofan. Hjúkrunarfræðingar hafa hæfni og menntun til að sinna slfku hlutverki og vegna nálægðar við sjúklingana eru þeir einnig í mjög góðri aðstöðu til að byggja upp meðferðarsamband við þá og fjölskyldur þeirra. Það sem stendur í vegi fyrir að þeir sinni þessu hlutverki eru þær verklagshefðir sem unnið er eftir á sjúkrahúsum, ekki síst vaktavinnufyrirkomulagið. Málastjórnunarhlutverki, eins og hér um ræðir, er best sinnt á dagvinnutíma þegar hægt er að ná sambandi við alla meðferðaraðila barnsins og þjónustustofnanir. Sérfræðingsvaldið Þetta stef kom fram í viðtölum við sjö þátttakendur og það hefur tvo samtvinnaða þætti. Annar þátturinn snýr að þeirri reynslu þegar fagfólki þykir ekki þörf á því að skýra ákvarðanir sínar og gjörðir fyrir foreldrunum. Þetta kom meðal annars fram í því að foreldrarnir voru ekki fræddir um verkanir lyfja eða um það hvaða tilgangur væri með meðferðarinngripum. Þannig er ákveðinn samhljómur með þessu stefi og leiðsögumannsstefinu sem fjallað er um hér að framan. Þetta kemur vel fram í eftirfarandi orðum föður barns á unglingadeild: „Þetta...fór ofboðslega í taugarnar á mér, að njóta ekki trúnaðar og skilnings læknisins eða sálfræðingsins og fá að taka þátt í vandamálum drengsins, fá að hjálpa honum. Ekki nóg að segja manni að þessi og hin heilastöðin sé ekki í sambandi hjá drengnum og gefa lyf við því af því að vísindamennirnir segja það. Það þarf að hlusta á foreldrana og hafa þá með.“ Hinn þátturinn lýsir þeirri reynslu þegar foreldrum finnst fagfólkið taka af þeim ráðin í krafti sérfræðiþekkingar sinnar og jafnvel gera lítið úr persónulegri reynslu þeirra og þekkingu á barninu. Móðir á barnadeild lýsti þessu svona: „...og allan tímann talandi við mann eins og það vantaði í mann nokkra kafla og okkur fannst það ekkert voðalega uppbyggilegt, okkur leið nógu illa samt...og okkur leið mest þannig hjá mest lærða fólkinu." Hér má e.t.v. heyra óminn af þeim hugmyndum að orsaka geðsjúkdóma meðal barna sé að leita hjá foreldrunum en þær hugmyndir leiddu til þess að litið var á foreldra barna, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, eingöngu sem hluta af vandamálinu en ekki sem hluta af lausninni (Stuart og Laraia, 2001). Þessi viðhorf hafa verið á stöðugu undanhaldi síðustu áratugina en það er mikilvægt að geðheilbrigðisstarfsfólk skoði hug sinn reglulega í þessu samhengi því gamlar hugmyndir eru lífseigar. Bergmál þessara hugmynda kemur Ijóslega fram í eftirfarandi orðum móður stúlku á unglingadeild. Það er ekkert meira særandi fyrir foreldra, sem eiga börn með erfiðleika, að upplifa að vandamálin eru rakin heim til fjölskyldunnar. „Það hlýtur að vera eitthvað að heima hjá þessu fólki." Það sem vantar inn á deild er klapp á bakið og stuðningur en ekki eins og foreldrarnir séu lentir í dómsal... það er tilfinningin. Þetta var alveg ömurlegt og mér fannst þetta eiginlega sárara verkefni heldur en það að horfast í augu við fötlun dóttur minnar. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006 43

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.