Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Page 56
Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar
Tímaritið er málgagn félagsmanna í
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
og í því er reynt að endurspegla ólík-
ar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
leggur metnað sinn í að allir félags-
menn þess finni þar efni sér til
gagns, fróðleiks og ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar
og félagslegrar umfjöllunar um
hjúkrun. í faglega hluta tímarits-
ins eru birtar margvíslegar greinar
sem fjalla um öll svið hjúkrunar.
Greinar flokkast í tvennt, annars
vegar fræðigreinar og hins vegar
fræðslugreinar. Fræðigreinar eru
rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar
og greinar sem á ýtarlegan hátt
fjalla um þróun þekkingar í hjúkr-
un, hvort heldur sem er hjúkrun-
arstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr-
unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir
eða stefnumótun í hjúkrunar- og
heilbrigðisþjónustunni. Lögð er
áhersla á beitingu margvíslegra
rannsóknaraðferða, fjölbreytileika
í fræðilegri nálgun viðfangsefna
og vönduð vinnubrögð. Flægt er
að óska eftir að fræðigreinar verði
ritrýndar.
Við umfjöllun greina, sem óskað
hefur verið eftir að verði ritrýndar,
fylgir ritnefnd reglum sem fram
koma í Flandbók sálfræðiritsins
eftir Einar Guðmundsson og Júlíus
K. Björnsson og gefið var út af
Sálfræðingafélagi íslands í Reykja-
vík árið 1995. í handbókinni eru
ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig
skrifa eigi handrit að fræðilegum
tímaritsgreinum. í handbókinni er
einnig að finna upplýsingar um
vinnulag við umfjöllun á handriti
sem óskað hefur verið eftir að
sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim
leiðbeiningum. Flöfundar þurfa að
fylgja þessum reglum í hvívetna
en eru hvattir til að ráðfæra sig
við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá
settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritnefnd
frá leiðbeiningum Fiandbókar sál-
fræðiritsins. Þau eru: Höfundar
fá ekki sérprentaðar tímaritsgrein-
ar sínar en fá aukaeintök af við-
eigandi tímariti. Til að auðvelda
flokkun efnis skulu fylgja með
greinum þrjú lykilorð. í handbók-
inni er megináhersla á megindleg-
ar rannsóknir, einkum tiiraunir.
Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur
sig hins vegar ekki við megind-
legar rannsóknir og er fengur að
greinum þar sem margvíslegri
aðferðafræði er beitt.
Fræðslugreinar fjalla hins vegar
um margvísleg viðfangsefni hjúkr-
unar og byggjast að einhverju leyti
á fræðilegum heimildum ásamt
athugunum eða reynslu höfunda.
Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöll-
un og efnistökum, menningarlegur
margbreytileiki í hjúkrun og þróun
hjúkrunar. í blaðinu er einnig að
finna viðtöl við fólk um hjúkrun og
aðrar faglegar upplýsingar sem
eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta tímaritsins eða
fréttahlutanum er greint frá kjara-
málum og því sem er að gerast
hjá félaginu. Þar er einnig að
finna fréttir frá svæðanefndum
félagsins. Einnig er greint frá því
helsta sem er á döfinni hjá fag-
deildum félagsins.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa
og rekstur tímaritsins sé í samræmi
við ritstjómarstefnu þess. Ritstjóri
ásamt ritnefnd leggur metnað í að
tímaritið sé vandað að því er varðar
efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð
á að fræðigreinar standist vísinda-
legar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á
félagslegu efni þess öðru en aðsend-
um greinum. Höfundar aðsendra
greina bera ábyrgð á efni þeirra.
Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa
ekki að samrýmast stefnu Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Leiðbeiningartil höfundatíma-
ritsgreina
Tímaritsgreinar eru sendar til
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, Suðurlandsbraut 22, 108
Reykjavík. Ef höfundar eru tveir
eða fleiri þarf einn þeirra að vera
ábyrgur fyrir samskiptum við tíma-
ritið og nafn hans þarf að koma
fram í bréfi sem sent er með
handritinu.
Frágangur handrits
Við ritun greina þurfa höfundar
að styðjast við Handbók sálfræði-
ritsins eftir Einar Guðmundsson
og Júlíus K. Björnsson sem gef-
in var út af Sálfræðingafélagi
íslands í Reykjavík árið 1995. í
handbókinni eru ýtarlegar leið-
beiningar um hvernig skrifa eigi
handrit að fræðilegum tímarits-
greinum.
Á forsíðu handritsins þarf að koma
fram heiti tímaritsgreinarinnar; nafn/
nöfn höfundar/höfunda; vinnustað-
ur/vinnustaðir höfunda(r); heimilis-
fang og símanúmer þess höfundar
sem er ábyrgur fyrir samskiptum við
tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri
blaðsíðu, á að vera 100-150 orð.
Lengd tímaritsgreinar skal vera
3000-5000 orð. Handritið í heild
sinni ásamt texta, myndum, töfl-
um o.s.frv. skal vera með tvöföldu
línubili. Öll handrit skulu send inn
í þremur eintökum sem ekki eru
með nafni höfunda(r). Handrit
skulu ekki hafa birst annars stað-
ar þegar óskað er eftir því að þau
séu ritrýnd.
Útgáfuferli
Þegar handrit berst til ritstjóra er
haft samband við þann höfund
sem er ábyrgur fyrir samskiptum
við ritstjóra og honum tilkynnt
skriflega að greinin hafi borist.
Þegar óskað er eftir birtingu
greinar lesa fulltrúar í ritnefnd
handritið og ákveða hvort það
verður sent til umsagnar. Stuðst
er við þau viðmið sem fram
koma í Handbók sálfræðiritsins
við mat á tímaritsgreinum.
Professional Medical Use
Vandaður súrefnismettunarmælir OxiPen
• Nákvæmur og einfaldur í notkun
• Fyrirferðalítill með vasaklemmu
• Stór lýsandi skjár
• Fáanlegur með fleiri skynjurum
• Tilvalinn fyrir stofnanir
Viðurkennd gæði og einföld notkun OxiPen
auðveldar mælingu og gefur nákvæma
niðurstöðu SpÖ2 mælinga.
Eirberg
Stórhöföa 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is
54
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006