Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Síða 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2006, Síða 56
Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólík- ar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félags- menn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímarits- ins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigreinar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkr- un, hvort heldur sem er hjúkrun- arstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr- unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Flægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar. Við umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að verði ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Flandbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykja- vík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Flöfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Fiandbókar sál- fræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgrein- ar sínar en fá aukaeintök af við- eigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þrjú lykilorð. í handbók- inni er megináhersla á megindleg- ar rannsóknir, einkum tiiraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki við megind- legar rannsóknir og er fengur að greinum þar sem margvíslegri aðferðafræði er beitt. Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viðfangsefni hjúkr- unar og byggjast að einhverju leyti á fræðilegum heimildum ásamt athugunum eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöll- un og efnistökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er greint frá kjara- málum og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fag- deildum félagsins. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í samræmi við ritstjómarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísinda- legar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsend- um greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Leiðbeiningartil höfundatíma- ritsgreina Tímaritsgreinar eru sendar til Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Ef höfundar eru tveir eða fleiri þarf einn þeirra að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tíma- ritið og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu. Frágangur handrits Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræði- ritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gef- in var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leið- beiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímarits- greinum. Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímaritsgreinarinnar; nafn/ nöfn höfundar/höfunda; vinnustað- ur/vinnustaðir höfunda(r); heimilis- fang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera 100-150 orð. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töfl- um o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars stað- ar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd. Útgáfuferli Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við mat á tímaritsgreinum. Professional Medical Use Vandaður súrefnismettunarmælir OxiPen • Nákvæmur og einfaldur í notkun • Fyrirferðalítill með vasaklemmu • Stór lýsandi skjár • Fáanlegur með fleiri skynjurum • Tilvalinn fyrir stofnanir Viðurkennd gæði og einföld notkun OxiPen auðveldar mælingu og gefur nákvæma niðurstöðu SpÖ2 mælinga. Eirberg Stórhöföa 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is 54 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.