Fréttablaðið - 06.05.2017, Síða 128
Þegar ég sá lakkrísdöðlurnar fyrst þá varð ég að prófa að leika mér aðeins með þær og þar sem sterkar Djúpur eru mitt uppáhaldsnammi
þá fannst mér alveg kjörið að blanda
þessum hráefnum saman,“ segir
matarbloggarinn Margrét Theo
dóra sem heldur úti matarblogginu
Kakan mín þar sem aðaláherslan er
lögð á sætindi.
Það besta er að það er tiltölu
lega auðvelt að búa til konfektið.
„Útkoman var fullkomin og sló
rækilega í gegn. Það er alveg ótrú
lega auðvelt að búa þetta konfekt
til, mesta vinnan er líklega fólgin í
því að skera allt niður í byrjun en
svo er restin bara skemmtileg og
leikur einn.
Það er hægt að gera kúlurnar í
hvaða stærð sem er og ef maður
nennir ekki því dútli þá er líka í
góðu lagi að fletja karamelluna út á
plötu, hella súkkulaðinu yfir, kæla
og skera svo í litla bita. Þetta lakkrís
döðlukonfekt er alveg fullkomið í
hvers kyns partí og samkomur þar
sem flestir elska að geta nælt sér í
eitthvað gómsætt í munnbitastærð,“
segir Margrét.
Er þá ekki tilvalið að henda í þetta
gómsæta konfekt fyrir Eurovision
partíið á þriðjudaginn?
gudnyhronn@365.is
Lakkrísdöðlukonfekt fyrir partíið
Meðfylgjandi uppskrift að einstöku döðlukonfekti er í miklu uppáhaldi hjá matarbloggaranum Margréti Theodóru
Jónsdóttur, sem heldur úti blogginu Kakan mín. Margrét segir konfektið vera fullkomið í hvaða partí sem er.
Margrét
Theodóra
Jónsdóttir
er snillingur
þegar kemur
að köku-
bakstri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þetta konfekt er ekki bara gómsætt heldur gleður það einnig augað.
MYND/kAkANMIN.coM
250 g döðlur með lakkrísdufti
1 poki Djúpur (sterkar)
1 poki Freyju hrís (um 200 g)
100 g smjör
100 g púðursykur
150 g súkkulaði (dökkt eða ljóst)*
* Ég notaði suðusúkkulaði, það er
svona mátulega hlutlaust á móti
öllu hinu.
1. Byrjið á því að brjóta hrís-
kúlurnar og saxa Djúpurnar, setjið
til hliðar.
2. Klippið döðlurnar niður í litla
bita.
2. Bræðið púðursykur og smjör
saman í potti þar til sykurinn er
vel uppleystur og smjörið blandað
vel við.
3. Bætið döðlunum út í og bræðið
þetta allt saman við miðlungshita
þar til blandan er orðin eins og
karamella.
4. Bætið sterku Djúpunum saman
við og leyfið súkkulaðinu að
bráðna saman við karamelluna.
5. Takið pottinn af hellunni og
kælið karamelluna örlítið, blandið
síðan hrískúlunum að lokum
saman við allt saman. (Ef smjörið
skilur sig frá er hægt að bjarga því
með því að hræra stöðugt í kara-
mellunni eða þar til allt gengur
aftur saman. Ef það gengur ekki þá
er í góðu lagi að hella smjörinu af.)
6. Mótið litlar kúlur og setjið í kæli.
7. Bræðið súkkulaði yfir vatns-
baði. Ef þið notið dökkt súkkulaði,
reynið þá að bræða það við mest
32°C svo það haldi glansinum,
annars myndi ég mæla með því að
tempra það.
8. Dýfið kúlunum í súkkulaðið og
húðið þær, setjið á plötu og leyfið
súkkulaðinu að storkna.
Döðlukonfekt með lakkrísdöðlum og sterkum Djúpum
Hælisleitandi börn,
fylgdarlaus börn á flótta
Hefur þú áhuga á að taka inn á heimili þitt barn sem gæti verið á aldrinum
13 – 17 ára og kemur án fylgdar fullorðinna til Íslands?
Óskað er eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að vista eða fóstra barn á heimili
sínu til lengri eða skemmri tíma. Æskilegt er að þeir sem taka að sér börn í slíkum
aðstæðum hafi reynslu eða þekkingu á málefnum flóttabarna, mismunandi menningu
þeirra, trú og hefðum og eða tali tungumál þeirra.
Nauðsynlegt er að umsækjendur sæki undirbúningsnámskeið á vegum
Barnaverndarstofu, hafi möguleika á að sinna þörfum barna í nýju umhverfi og
veita þeim öruggt skjól á heimili sínu. Mikilvægt er að umsækjendur hafi
sveigjanlegan vinnutíma.
Áhugasamir vinsamlega hafi
samband við Barnaverndarstofu í síma 530 2600
eða sendi tölvupóst á bvs@bvs.is.
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R72 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-9
A
5
0
1
C
C
F
-9
9
1
4
1
C
C
F
-9
7
D
8
1
C
C
F
-9
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K