Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Blaðsíða 24
24. Sjálfstæ&is-uppkvæði
liöfum af og til varað pá við tilraunum, er löggjafarþing
þeirra hefir gjört, til að talca sér heimildarlausan lögsögu-
rétt yfir oss. Vér liöfum mint þá á, með hverjum at-
vilcum vér fluttumst hingað og námum hér land. Vér
höfum áfrýjað til þeirra meðfæddu réttlætistilfinningar
og göfuglyndis, og vér höfum sært þá við ættbönd þau,
er oss tengja saman, að hafna þessum yfirgangi, er óhjá-
kvæmilega hlyti að slíta samhand vort og viðskifti við
þá. En einnig þeir hafa daufheyrzt við rödd réttlætisins
og hlóðskyldunnar. Vér verðum því að una við nauðsyn
þá, er knýr oss til skilnaðar, og höldum vér þá, svo sem
vér-og höldum alt mannkyn ella — fyrir fjandmenn í
ófriði, en í friði fyrir vini.
Vér, fulltrúar Bandaríkjanna í Amerílcu, saman
komnir á als herjar löggjafarþingi, slcjótum því réttmæti
fyrirætlana vorra undir inn æðsta dómara heimsins, og í
nafni og umboði góðrar alþýðu í nýlendum þessum lýs-
um vér liátíðlega yfir því og kveðurn pað upp, að þessar
samhands-nýlendur eru, og eiga með réttu að vera, frjáls
og óliáð ríki; að þær eru leystar frá allri lýðslcyldu við
Breta lcrúnu, og að öllu stjórnar-sambandi milli þeirra
og ins brezka ríkis er, og á að vera, algjörlega slitið; og
að þær sem frjáls og óliáð ríki hafa fult vald til að hefja
hernað, semja frið, ganga í samband við rílci, reka verzl-
un og gjöra hvatvetna annað, er óháð rílci mega með
réttu gjöra. Og til að halda uppi þessu uppkvæði voru í
staðföstu trausti til verndar guðlegrar forsjónar, sverjum
vér innbyrðis hver öðrum að leggja í sölur lif vort, eign-
ir og helgan drengskap.
Framanritað uppkvæði var hreinritað að boði þings-
ins og rituðu undir það þessir þingmenn:
John Hancoek.