Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 2
Veður
Stíf norðanátt vestan til en lægir
þegar líður á daginn. Dálítil rigning
eða skúrir en víða léttskýjað suð-
vestan til. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast
syðst. sjá síðu 38
Barnlausir vagnar
Tilvera, samtök um ófrjósemi, stóð fyrir gjörningi við Reykjavíkurtjörn í gær þar sem fólk gekk með barnlausa barnavagna í kringum tjörnina. Í
boði Tilveru á gjörninginn segir að vagnarnir tákni sársauka þeirra sem glíma við ófrjósemi og þrá það heitt að eignast barn. Fréttablaðið/Eyþór
Trú Sóknarbörnum í Breiðholts-
sókn í Reykjavík hefur fækkað svo
mikið undanfarið að tekjur standa
ekki lengur undir rekstri safnaðar-
ins. Til að bregðast við þessu hefur
sóknin rætt við aðrar sóknir í
Breiðholti um sameiningu.
„En við erum skuldlaus. Við
skuldum 1,5 milljónir sem verða
greiddar upp á þessu ári og næsta,“
segir Inga Rún Ólafsdóttir, formað-
ur sóknarnefndar, en bætir við að
rekstrarreikningurinn fyrir síðasta
ár, sem kynntur var um helgina,
hafi verið um 300 þúsund krónur
í mínus. „Við höfum rekið þetta af
mikilli ábyrgð og útsjónarsemi en
það verður ekki lengra komist með
það. Það er algjörlega fyrirséð,“
segir Inga Rún.
Inga Rún segir að frá árinu 2010
hafi sóknarbörnum fækkað um 800
og séu nú rétt tæplega 1.900. Skýr-
ingarnar á fækkuninni séu margvís-
lega. Í fyrsta lagi þjóni söfnuðurinn
litlu hverfi, Bakka- og Stekkjahverfi.
Í öðru lagi séu margir útlendingar
að flytja í hverfið, sem ef til vill
eru ekki í þjóðkirkjunni. Í þriðja
lagi er að fækka í hverfinu vegna
þess að börn flytja að heiman og
hverfið ekki eins ungt og áður var.
„Það hefur fækkað gríðarlega mikið
og hratt og þetta er svo sem það
sem margir aðrir söfnuðir standa
frammi fyrir,“ segir hún. Inga Rún
segir auk þess að sóknargjöld hafi
verið skert í mörg ár og það segi til
sín í rekstrinum.
„Það sem við erum að gera er að
við erum í samtali við nágranna-
sóknirnar um sameiningu. Við
erum núna að tala við Fella- og
Hólasókn,“ segir hún en áður hafi
sóknin talað við Seljasókn, án þess
að nokkuð kæmi út úr því samtali.
Hún bendir á að við sameiningu
myndi rekstrareiningin stækka
og það gæti skilað einhverri hag-
ræðingu.
Inga Rún segir að margar sóknir
standi í nákvæmlega þessum sömu
sporum og séu að skoða sam-
einingu. „Þetta er kannski vandi
sem kirkjan stendur frammi fyrir
almennt,“ segir Inga Rún.
jonhakon@frettabladid.is
Hundruð sóknarbarna
farin úr Breiðholtssókn
Rekstur Breiðholtssóknar stendur ekki undir sér og á sóknarnefndin í við-
ræðum við Fella- og Hólasókn um sameiningu. Sóknarbörnum hefur fækkað
um mörg hundruð á undanförnum árum og sóknargjöld eru skert.
breiðholtskirkja hefur vakið mikla athygli allt frá því hún var byggð og hefur
stundum verið kölluð indíánatjaldið. Fréttablaðið/gva
Við höfum rekið
þetta af mikilli
ábyrgð og útsjónarsemi en
það verður ekki lengra
komist með það.
Inga Rún Ólafsdóttir,
formaður sóknar-
nefndar
UP!ÍLOFT
Við látum framtíðina rætast.
he
kl
a.
is
/u
p
Nýr up! frá aðeins
1.790.000 kr.
írak Vígamenn hryðjuverkasam-
takanna sem kenna sig við íslamskt
ríki (ISIS) grafa nú jarðsprengjur við
útgönguleiðir borgarinnar Mósúl í
Írak. Frá þessu greindi Reuters í gær
og hafði eftir vitnum og írösku lög-
reglunni en írakski herinn þjarmar
nú að hryðjuverkamönnunum og
virðist ætla að vinna borgina aftur
af þeim eftir sjö mánaða orrustu.
Að sögn vitna og lögreglu eru
jarðsprengjurnar grafnar til þess að
koma í veg fyrir að almennir borgar-
ar flýi borgina. Írakski herinn hefur
greint frá því að vígamennirnir nýti
sér hundruð þúsunda borgara sem
varnarvegg gegn árásum Írakshers.
Sókn Íraka hefur gengið vel og
heldur ISIS nú einungis tólf ferkíló-
metra hverfi sem kallað er Gamla
borgin. Hverfið er fjölmennt og
götur þröngar. Því þurfa írakskir
hermenn að skilja bíla og skrið-
dreka eftir og sækja fótgangandi
inn í hverfið.
Í samtali við ríkissjónvarp Íraks
sagði hershöfðinginn Abdul Ghani
al-Assadi að stefnt væri að því að
ná borginni á vald Íraka fyrir hinn
helga mánuð ramadan. Hann hefst
í lok maímánaðar.
Þá sagði hann að ISIS hefði
sprengt þrjátíu bílsprengjur undan-
farna tvo daga í baráttunni við her-
menn hans. – þea
ISIS grefur
sprengjur í
Mósúl
Ekki er lengur hægt að flýja Mósúl.
Nordicphotos/aFp
Venesúela Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna beinir nú sjónum sínum
að óeirðum undanfarinna vikna
í Venesúela. Fjallaði ráðið í fyrsta
sinn um óeirðirnar í gær þegar
Nikki Haley, fulltrúi Bandaríkjanna,
vakti máls á alvarlegum óstöðug-
leika í landinu.
„Við erum að horfa upp á alvar-
legan óstöðugleika í Venesúela.
Ástæða þess að ég vek máls á þessu
er að ganga úr skugga um að allir viti
af ástandinu. Ég er ekki að sækjast
eftir því að öryggisráðið hlutist til,“
sagði Haley í gær. Þá sagði Rafael
Ramirez, sendiherra Venesúela hjá
SÞ, að Bandaríkin hvettu til ofbeldis
og vildu steypa Nicolas Maduro for-
seta af stóli. – þea
Öryggisráðið
horfir til
Venesúela
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T u D a G u r2 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-0
8
1
8
1
C
E
2
-0
6
D
C
1
C
E
2
-0
5
A
0
1
C
E
2
-0
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K