Fréttablaðið - 18.05.2017, Page 10
Keflavík
Vog
arNjarðvík
Hafnarfjörður Garðabær
Kópavogur
Akranes
Hveragerði
Verkefni talin í tugum milljarða – of stór biti fyrir ríkissjóð?
Selfoss
Reykjavík
Ný Hvalfjarðargöng
14 milljarðar
Sundabraut
35–50 milljarðar
Tvöföldun vegar:
Kjalarnes – Borgarnes
10 milljarðar
Tvöföldun vegar:
Frá Keflavík í gegnum Hafnarfjörð
15 milljarðar
Borgarnes
Tvöföldun vegar:
Hveragerði – austur fyrir Selfoss
12 milljarðar
Ný brú yfir Ölfusá
5 milljarðar
*Allar tölur eru núvirt meðaltöl eldri
upplýsinga um framkvæmdirnar
(skýrslur, viðtöl í fjölmiðlum, skrif-
leg svör fyrirspurna á Alþingi).
Samgöngur Þær framkvæmdir sem
ráðast þarf í til að bæta samgöngur
út frá höfuðborgarsvæðinu kosta
meira, hver um sig, en allt vegafé á
fjárlögum sem ætlað er til nýfram-
kvæmda. Ráðherra telur að gagnrýni
á uppbyggingu með veggjöldum sé
ótímabær – dæma skuli þegar niður-
stöður rannsóknarvinnu liggja fyrir.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær er að störfum starfshópur sam-
gönguráðherra sem er að greina
hvernig umfangsmiklum fram-
kvæmdum við stofnleiðir út frá
höfuð borgarsvæðinu verði best
háttað. Starfshópurinn á að vinna
hratt og skilar af sér á næstu vikum.
Á þessu ári sé fjárveiting til nýfram-
kvæmda á öllu landinu um ellefu
milljarðar króna. Á sama tíma er
starfshópurinn að vega og meta sam-
göngubætur sem eru af stærðargráð-
unni 100 milljarðar króna – er gróft
mat Jóns Gunnarssonar, ráðherra
samgöngu- og sveitarstjórnarmála.
Það eru meðal annars Sundabraut,
ný Hvalfjarðargöng, tvöföldun eða
2+1 vegur upp í Borgarnes, tvöföldun
vegarins til Keflavíkur og tvöföldun
vegarins austur fyrir Selfoss með
nýrri brú á Ölfusá.
Í skriflegu svari Jóns við fyrirspurn
Fréttablaðsins kemur fram að þessar
samgöngubætur verði ekki kláraðar í
nánustu framtíð að óbreyttu – enda
kostnaðurinn níföld sú upphæð
sem rennur til nýframkvæmda á
fjárlögum. Því vill Jón láta kanna
aðkomu einkaaðila og veggjöld sem
innheimt yrðu á þessum leiðum.
Þörfin sé gríðarleg, og rökin ekki síst
öryggi vegfarenda til viðbótar við
þau sem lúta að hagræði þeirra sem
eru á þessari leið.
Spurður um vísbendingar um að
almenningur leggist gegn slíkri fjár-
mögnun framkvæmda og gjaldtöku
segir Jón að á meðan hvorki liggur
fyrir hvernig gjaldtöku yrði háttað,
né hvað fengist fyrir veggjöldin, verði
menn að staldra við og gaumgæfa
rökin.
„Nánari upplýsingar um það
munu ekki liggja fyrir fyrr en skýrsla
starfshópsins hefur verið rýnd og
tillögur gerðar á grundvelli hennar,“
segir Jón sem sér fyrir sér „styttri
ferðatíma, styttingu vegalengda,
sparnað í eldsneyti, minnkun
útblásturs og stóraukið umferðar-
öryggi. Mögulega gætu trygginga-
iðgjöld lækkað í kjölfarið með minni
Hver einasta framkvæmd
myndi gleypa allt vegaféð
Stærðargráða aðkallandi samgöngubóta út frá höfuðborgarsvæðinu sést best á því að allt vegafé til nýfram-
kvæmda á fjárlögum næði ekki að dekka kostnað við eina framkvæmd. Ráðherra telur gagnrýni á fjár-
mögnun með veggjöldum ótímabæra – fyrst þegar niðurstaða nefndar hans kemur sé hægt að ræða málið.
Ráðherra telur áratugi munu líða áður en samgöngubætur verða að veruleika,
nema aðkoma einkaaðila komi til. FRéTTaBlaðið/GVa
slysatíðni. Ég vil gjarnan hvetja allan
almenning til þess að bíða eftir því
að sjá hvað er í pakkanum, en spara
sér það í bili að vera á móti einhverju
sem það veit ekki hvað er.“
Verði ráðist í þessar framkvæmdir
til hliðar við samgönguáætlun, eins
og Jón segir, losnar um vegafé til að
taka stærri skref í uppbyggingu á
landsbyggðinni en annars er mögu-
legt. Í ferðum hans hafi þetta mál
hvarvetna borið á góma; fólk vilji vita
líklegt gjald og spyrji hvort unnt sé
að hraða tilteknum framkvæmdum
á landsbyggðinni með því að leggja
á veggjöld – sem margir eru fúsir til
yrði það til þess að ljúka verkefnum
fyrr en ella. svavar@frettabladid.is
Ég sé fyrir mér
styttri ferðatíma,
styttingu vegalengda, sparn-
að í eldsneyti, minnkun
útblásturs og stóraukið
umferðaröryggi. Mögulega
gætu tryggingaiðgjöld
lækkað í kjölfarið með
minni slysatíðni.
Jón Gunnarsson,
ráðherra sam-
göngu- og sveitar-
stjórnarmála
SLYS Foreldri sem eignaðist andvana
fætt barn fær ekki bætur úr líftrygg-
ingu sem það hafði tekið hjá trygg-
ingafélagi sínu. Úrskurðarnefnd
vátryggingamála komst að þessari
niðurstöðu á síðasta ári en úrskurðir
ársins 2016 verða birtir á næstunni.
Umrætt barn lést í móðurkviði
og var í kjölfarið fætt andvana. For-
eldrið taldi sig eiga rétt til bóta úr
líftryggingunni, sem einnig náði til
barna þess, enda kæmi ekki fram í
skilmálum tryggingarinnar að hún
tæki ekki til andvana fæðinga.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar-
innar kom fram að það væri grunn-
eðli líftryggingar að tryggja bætur
við andlát einstaklings sem fæðst
hefur lifandi. Vátryggður samkvæmt
líftryggingu sé sá maður hvers lífs
eða heilsu vátrygging taki til. Þar
sem barnið hafði ekki fæðst lifandi
átti foreldrið ekki rétt á bótum. – jóe
Líftrygging tók
ekki til andvana
fæðingar
FE rÐaÞJ Ó n uSTa Þótt gestum
hafi fjölgað við Gullfoss og Geysi
undan farin ár hefur slysum fækk-
að. Á vef Umhverfisstofnunar, sem
hefur umsjón með Gullfossi og
Geysi, segir að svo virðist sem tekist
hafi að bæta öryggi ferðamanna.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
hefur tekið saman upplýsingar yfir
komur sjúkrabíla á Gullfoss- og
Geysissvæðið vegna hálkuslysa eða
annarra slysa.
Síðastliðinn vetur urðu alls 7 slys,
veturinn þar á undan urðu 18 slys
en 10 slys veturinn 2014 til 2015.
Flest slys urðu á Geysissvæðinu
síðustu þrjá vetur eða 23 en 12 á
sama tíma við Gullfoss. – ibs
Bætt öryggi
hefur fækkað
slysum
Flest slysin verða við Strokk.
FRéTTaBlaðið/GVa
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T u D a g u r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a Ð I Ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-5
7
1
8
1
C
E
2
-5
5
D
C
1
C
E
2
-5
4
A
0
1
C
E
2
-5
3
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K