Fréttablaðið - 18.05.2017, Page 12
Ólafur Ólafsson mætti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær og svaraði spurningum um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðingu Búnaðarbankans. FRéttABlAðið/eyþÓR
Viðskipti „Hvers vegna ertu að
senda okkur þetta,“ spurði Jón
Steindór Valdimarsson, þing-
maður Viðreisnar og varaformaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis, forviða á fundi nefndar-
innar síðdegis í gær og beindi
orðum sínum til athafnamannsins
Ólafs Ólafssonar.
Jón vísaði þar í gögn sem Ólafur
sendi nefndinni á þriðjudag og
áttu að hrekja niðurstöðu Rann-
sóknarnefndar Alþingis um að
aðkoma þýska bankans Hauck &
Aufhäuser að kaupum S-hópsins á
45,8 prósenta hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum í janúar 2003 hefði
einungis verið til málamynda
og Ólafur þar leikið lykilhlutverk.
Ólafur óskaði eftir að fá að mæta
fyrir nefndina og tjá sig um aðkomu
sína að einkavæðingu bankans og
niðurstöðu rannsóknarnefndar-
innar um að hann hafi blekkt ríkið,
almenning og fjölmiðla.
Ólafur fullyrti á fundinum, og í
ávarpi sem hann birti fyrir hádegi
í gær, að Hauck & Aufhäuser hefði
í raun keypt í bankanum. Líkt og í
ávarpinu gerði hann mikið úr þeirri
fullyrðingu sinni að ályktun rann-
sóknarnefndarinnar, um að þátt-
taka erlends fjárfestis hefði verið
forsenda í kaupunum á Búnaðar-
bankanum, væri röng. Jón Stein-
dór tók síðan til máls og fullyrti að
gögnin sem Ólafur sendi nefndinni,
og áttu að réttlæta það að hann fékk
fund með stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd, hefðu öll með fáeinum
undantekningum farið inn á borð
rannsóknarnefndarinnar.
„Ég skal viðurkenna það að ég átti
satt að segja von á nýjum gögnum
sem myndu varpa einhverju öðru
eða skýrara ljósi á atburðarásina,“
sagði Jón Steindór.
Vilhjálmur Bjarnason, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sat fund-
inn í gær í fjarveru Brynjars Níels-
sonar, formanns stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar. Vilhjálmur fullyrti
fyrst árið 2005 að þýski bankinn
hefði aldrei í raun verið hluthafi í
Búnaðarbankanum. Þegar röðin var
komin að honum stóð Vilhjálmur
upp úr sæti sínu og gekk til Ólafs
með tvö skjöl. Þar mátti finna frétta-
tilkynningu frá janúar 2003 þar sem
kaupendur á hlutnum í Búnaðar-
bankanum fögnuðu aðkomu þýska
bankans.
„Hér í þessum skjölum eru blekk-
ingar,“ fullyrti Vilhjálmur. „Hvers
vegna komstu ekki hreint fram og
sagðist vera að kaupa þetta sjálfur
en ekki með aura Hauck heldur með
láni frá Kaupþingi?“
Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, spurði í kjöl-
farið hvort Ólafur gæti í „hjartans
einlægni“ svarað því hvort um
blekkingu hafi verið að ræða. Hvort
hann hefði átt frumkvæði að bak-
samningum sem Rannsóknarnefnd
Alþingis greindi frá og tryggðu
Hauck & Aufhäuser þóknanatekjur
upp á eina milljón evra og fullt
skaðleysi. Þótti nefndarmönnum
það einkennileg viðskipti að þýski
bankinn hefði ekki notið fjárhags-
legs ávinnings fyrir utan þóknunina.
Svaraði Ólafur því að þeir sem hefðu
tekið mesta áhættu í kaupunum
á Búnaðarbankanum hefðu borið
mest úr býtum.
„Þetta var hvorki lygi né blekk-
ing,“ sagði Ólafur í kjölfarið.
Þegar rúmlega klukkustund var
liðin spurði Ólafur hversu lengi
fundurinn ætti að standa. Voru þá
nokkrir þingmenn eftir á mæl-
endaskrá en fundinum lauk um
hálftíma síðar. Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Pírata, hafði þá ítrek-
að að Rannsóknarnefnd Alþingis
nyti fulls trausts nefndarinnar og
nokkrir aðrir nefndarmenn kvart-
að yfir ófullnægjandi svörum af
hálfu Ólafs. Nokkrir höfðu á orði
við fréttamenn að ætlunarverkið,
að hrekja niðurstöðu rannsóknar-
nefndarinnar, hefði ekki tekist. Vil-
hjálmur Bjarnason gekk fyrstur út
og endurtók að mestu það sem hann
hafði áður kallað yfir fundinn:
„Hvers vegna vorum við að mæta á
þennan fund?“ haraldur@frettabladid.is
Kvöddu Ólaf forviða eftir fundinn
Þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis gagnrýndu gögnin sem athafnamaðurinn Ólafur Ólafsson sendi þeim á þriðju-
dag. Ólafur mætti á fund þeirra í gær og þvertók fyrir að hafa beitt blekkingum við einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003.
Hvers vegna komstu
ekki hreint fram og
sagðist vera að kaupa þetta
sjálfur en ekki með aura
Hauck heldur með láni frá
Kaupþingi?
Vilhjálmur
Bjarnason,
þingmaður
Sjálfstæðisflokks
Ég skal viðurkenna
það að ég átti satt að
segja von á nýjum gögnum
sem myndu varpa einhverju
öðru eða skýrara ljósi á
atburðarásina.
Jón Steindór
Valdimarsson,
varaformaður
stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar
Alþingis
1 8 . m a í 2 0 1 7 F i m m t U D a G U R12 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a ð i ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-5
2
2
8
1
C
E
2
-5
0
E
C
1
C
E
2
-4
F
B
0
1
C
E
2
-4
E
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K