Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 28
Vi n n a vi ð g e r ð ný r ra r aðgerðaáætlunar í loftlags­málum ríkisstjórnarinnar var kynnt með samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrir stuttu. Þar kennir ýmissa grasa en fátt sem tönn á festir um hvers sé að vænta. Hvað sjávarútveginn varðar var nefnt að möguleikarnir felast í orkuskiptum og tæknilausnum við veiðar. Það hefur lengi verið ljóst að veiðar smábáta eru umhverfis­ vænni en veiðar stærri skipa og margar skýrslur sem staðreyna það. Sú nýjasta á þeim vettvangi er frá árinu 2014, unnin af MATÍS og ber heitið „Life Cycle Assessment on fresh Icelandic cod, loins“. Þar kemur meðal annars fram hversu sláandi munurinn er á togveiðum og línuveiðum smábáta. Sótspor togveiða er um það bil þrefalt meira en við veiðar á smábátum. Því ætti það ekki að vefjast fyrir höfundum að nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda, þegar hún verður birt, að mikil áhersla verði lögð á að efla smábátaútgerð og veita þeim útgerðum sem hana stunda ívilnanir vegna umhverfissjónar­ miða. Fordæmi eru fyrir slíku, t.d. við álagningu aðflutningsgjalda á bílum þar sem beint hlutfall er á milli gjalda og útblásturs CO2. Á einfaldan hátt mætti byrja á því að við aukningu á útgefnu aflamarki í þorski eins og stefnir vonandi í, verði sú aukning eingöngu færð í krókaaflamark og strandveiðar, sem og til þeirra sem veiða með kyrrstæðum veiðarfærum – línu, handfærum, netum og hugsanlega síðar gildrum. Einnig væri hægt að nýta álagningu veiðigjalda sem hvata til smábátaútgerðar. Orkusparnaður En hvers er að vænta frá þeim ráð­ herrum sem skrifuðu undir vilja­ yfirlýsinguna? Í febrúar síðastliðn­ um, á öðrum fundi Landssambands smábátaeigenda með sjávarútvegs­ ráðherra, voru kynntar kröfur LS um sanngjarna hlutdeild smábáta í veiðiheimildum á makríl. Krafan er að smábátum verði úthlutað 16 prósentum í stað fjögurra prósenta. Ein af fjölmörgum röksemdum fyrir kröfunni fjallar um orkusparnað við veiðar á makríl með handfæri. Tekið var raunverulegt dæmi frá síðustu vertíð af smábát sem veiddi 310 tonn af makríl og brenndi við það 2.600 lítrum af dísilolíu á rúmum sex vikum, eða tæplega níu lítrum á tonnið. Á vinnsluskipi við veiðar á sama magni af makríl, brennir það 42.000 lítrum af dísil­ olíu, eða um 135 lítrum á tonnið. Það er fimmtán sinnum meira en það sem smábáturinn brennir. Og hvað gerir þetta í magni ef þessi munur er uppfærður á 16 prósent af heimildunum eða um 26.000 tonn? Smábátar myndu brenna 235 þúsund lítrum af dísilolíu til að ná þessu magni en vinnsluskipið 3,5 milljónum lítra. Þetta gerir mis­ mun upp á tæpar 3,3 milljónir lítra, sem samsvarar árs eyðslu rúmlega 3.100 dísilbíla sem brenna 7 lítrum pr./100 km og aka 15.000 km á ári, CO2 magnið er um 10 þúsund tonn. Ráðherra hafnaði þessari kröfu og setti nú í apríl reglugerð sem fyrst var sett á af Sigurði Inga Jóhannssyni árið 2015 þegar hann var gerður afturreka með lög um kvótasetningu makríls með undirskriftum rúmlega 50 þúsund Íslendinga. Reynslan af þessari reglugerð er subbuleg og leitt að ráðherra hafi ekki meiri metnað að standa betur að útdeilingu auð­ linda þjóðarinnar. Engin veiðiskylda er á neinum heimildum og á síðustu vertíð voru 37 þúsund tonn af makríl framseld frá þeim sem fengu upp í hendur þessi gæði. Í ár er ráðherra að úthluta rúmlega 30.000 tonnum af makríl til skipa sem ekki nýttu eitt kíló af sínum heimildum á síðustu vertíð, heldur leigðu þær allar frá sér á 26 kr. kílóið, samtals á rúmar 700 milljónir króna. Flokkur skipa án vinnslu fékk í fyrra úthlutað 7.900 tonnum af makríl sem dreifð­ ust á 77 skip. 75 þeirra veiddu ekki neitt heldur leigðu frá sér heimild­ irnar, samtals 7.850 tonn. Í flokki vinnsluskipa var úthlutað um 28.000 tonnum á 23 skip. Sautján af þeim veiddu ekki neitt heldur leigðu frá sér heimildirnar, samtals um 19.000 tonn. Nú bíða smábátaeigendur spenntir eftir því hvort orðum fylgja efndir, því hér hefur ráð­ herra einstakt tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi með því að verða við kröfum LS um aukna hlutdeild smábáta í makríl og minnka í leiðinni útblástur sem samsvarar akstri þúsunda dísilbíla. Einstakt tækifæri! Í desember síðastliðnum óskaði Landssamband veiðifélaga (LV) eftir því við Matvælastofnun (MAST) að fá afrit af öllum eftir­ litsskýrslum frá sjókvíaeldi sem stofnunin hefði undir höndum. Beiðninni var hafnað á grundvelli þess að hún væri of víðtæk. Auð­ vitað var ástæða beiðninnar að LV hefur ekki fullt traust á þeim tak­ mörkuðu upplýsingum sem MAST veitir um umrædda starfsemi. Hins vegar eru hagsmunir LV af því að fá afrit af upplýsingum miklir þar sem fjallað er um áform fyrirtækja um að auka sjókvíaeldi á frjóum norskum laxi upp í 200.000 tonn í öllum fjörðum þar sem slíkt eldi er heimilt. Í kjölfar þessarar neitunar á afhendingu gagna óskaði LV eftir upplýsingum um umfang lúsa smits frá 1. september 2016 til 15. febrú­ ar 2017. Áður hafði komið fram í fjölmiðlum, m.a. hjá starfsmanni MAST, að óvenju mikið væri um lúsasýkingar í Arnarfirði. Í svari MAST, sem enn þá skilaði engum gögnum frekar en við fyrri fyrir­ spurn, kom eftirfarandi fram orð­ rétt: „Engin kvöð er á fiskeldisfyrir­ tækjum um að tilkynna nákvæmar tölur um lúsasmit, hvort sem er af völdum fiskilúsar eða laxalúsar og því hefur Matvælastofnun engar skrár eða skýrslur um lúsasmit á Austfjörðum eða Vestfjörðum.“ Þetta svar MAST er athyglisvert í ljósi þess að meðfylgjandi fyrra svari stofnunarinnar við erindi LV var leiðbeiningablað um lúsataln­ ingu og lúsasmit í sjókvíum útgefið af Matvælastofnun sjálfri. Athygli vekur síðasta setning í þeim leið­ beiningum sem hljóðar svo: „Talningarniðurstöður skal senda til MAST sem heldur utan um upp­ lýsingarnar.“ Um tíðni talningar segir í eyðu­ blaðinu: „Einu sinni í mánuði á tímabilinu 1. apríl til 1. júní, að því gefnu að hitastig sjávar sé yfir 4°C. Frá 1. júní til 1. október skal telja 2.  hverja viku, og svo aftur mán aðar lega þar til veður og hiti hindrar.“ Síðan er gefið upp netfang til­ tekins starfsmanns MAST. Í þessu ljósi verður sú spurning áleitin, hvort MAST hefur í raun­ inni upplýsingar undir höndum en kýs að láta þær ekki í té. Hinn möguleikinn er að fyrirtækin hreinlega hundsi fyrirmæli MAST og upplýsi ekki um umfang lúsa­ smits í stöðvum sínum. Væri það enn einn áfellisdómur yfir eftir­ liti stofnunarinnar. Fyrir Lands­ samband veiðifélaga skiptir það ekki öllu máli. Aðalatriðið er að ekki fæst aðgangur að hald­ bærum upplýsingum um lúsasmit í íslensku fiskeldi. Staða LV til að gefa umsagnir um áform um allt að 200 þúsund tonna framleiðslu á norskum eldislaxi varðandi áhrif lúsasmits er því engin. Opinberir aðilar gefa ekki kost á upplýsing­ um, sem þeir þó augljóslega afla, og eiga að liggja til grundvallar mati á umhverfisáhrifum og útgáfu eldis­ leyfa. Við svo brotakennda stjórn­ sýslu verður ekki unað lengur. Leynir MAST upplýsingum um lúsasmit? Axel Helgason formaður Lands- sambands smá- bátaeigenda Nú bíða smábátaeigendur spenntir eftir því hvort orðum fylgja efndir, því hér hefur ráðherra einstakt tæki- færi til að slá tvær flugur í einu höggi með því að verða við kröfum LS um aukna hlutdeild smábáta í makríl og minnka í leiðinni út- blástur sem samsvarar akstri þúsunda dísilbíla. Jón Helgi Björnsson formaður Lands- sambands veiði- félaga Staða LV til að gefa umsagnir um áform um allt að 200 þúsund tonna framleiðslu á norskum eldislaxi varðandi áhrif lúsasmits er því engin. Opinberir aðilar gefa ekki kost á upplýsingum, sem þeir þó augljóslega afla, og eiga að liggja til grundvallar mati á umhverfisáhrifum og útgáfu eldisleyfa. Við svo brotakennda stjórnsýslu verður ekki unað lengur. intellecta.is RÁÐNINGAR L-Mesitran Náttúruleg sáragræðsla með hunangi - Fæst í apótekum - Hunangsplástur og sárakrem með hunangi. Hentar á allar tegundir sára. Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár. Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur. www.wh.is Nýjar vörur frá Útsöluaðilar: Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is 1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R28 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð I ð 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 2 -6 0 F 8 1 C E 2 -5 F B C 1 C E 2 -5 E 8 0 1 C E 2 -5 D 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.