Fréttablaðið - 18.05.2017, Page 52
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R40 B í l a R ∙ F R É T T a B l a ð I ð
Bílar
Mercedes Benz C-Class Coupé er þriðja gerðin sem kom út af núverandi C-Class bíl og
sá hann fyrst dagsljósið árið 2015.
Honum var fylgt á eftir með Cabri-
olet-gerð ári seinna, eða blæjubíl.
Þar fer svo til alveg sami bíll, nema
að þak hans er úr mjúku efni en ekki
stáli. C-Class er nú af fjórðu kynslóð,
þ.e. frá árinu 2014 og fyrst komu
sedan-útgáfan og langbakur og
þeim er svo fylgt á eftir með þessum
Coupé- og Cabriolet-gerðum. Fyrir
það fyrsta er Mercedes Benz C-Class
einkar fallegur bíll en í Coupé-formi
er hann enn fallegri. Hallandi aftur-
línan gefur bílum almennt sport-
legra yfirbragð og það klæðir þenn-
an bíl einkar vel. Hann er eiginlega
algjör töffari og það fékkst staðfest
með mörgum forvitnum augum í
reynsluakstri hans, hvað þá þegar
skipt var yfir á Cabriolet-útgáfuna.
Þá var nú aldeilis spaðalegt að spóka
sig um götur bæjarins í sólinni sem
skein glatt á meðan á reynsluakstr-
inum stóð. Bíllinn sá vakti svo mikla
athygli að langt er að minnast ann-
ars eins. Einhver blessun var yfir
reynsluakstursmanni við prófun
beggja bílanna því sólin skein frá
fyrstu til síðustu mínútu í nokk-
urra daga prufu á þessum tveimur
gæðingum.
Mikið vélaúrval
Mercedes Benz C-Class Coupé og
Cabriolet má fá með miklu úrvali
vélarkosta, þ.e. með 170 og 204
hestafla 2,1 lítra dísilvélum og 156,
184, 211, 245 og 333 hestafla bens-
ínvélum, auk AMG útgáfum bílsins
með 367, 476 eða 510 hestafla kost-
um. Alls ekki lítið úrval þar á ferð.
Reynsluakstursbílarnir báðir voru
með 184 hestafla bensívélinni sem
er 2,0 lítra. Með henni heitir bíllinn
með harða þakinu C 200 Coupé og
kostar 6.130.000 kr. í grunnverði en
þar sem hann var fjórhjóladrifinn er
hann á 6.760.000 kr. Blæju útgáfan
kostar 7.410.000 kr., en þá með
drifi aðeins á afturöxlinum. Þessi
vélarkostur hljómar ekki sem nein
spyrnukerra, en samt er þessi bíll ári
sprækur og ekki nema 7,5 sekúndur
í hundraðið, enda er togið 300 Nm.
Uppgefin eyðsla þessa bíls er 5,3
lítrar, en í reynsluakstrinum lá hann
milli 9 og 10 lítra og er það væntan-
lega raunhæfari tala til viðmiðunar
en sú sem frá framleiðandanum
kemur.
Sannir töffarar
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
Kostir og gallar
Mercedes Benz
c-class coupé
l 2,0 lítra bensínvél
l 184 hestöfl
l afturhjóladrif
Eyðsla 5,3 l/100 km í bl. akstri
mengun 123 g/km CO2
Hröðun 7,5 sek.
Hámarkshraði 237 km/klst.
Verð frá 6.130.000 kr.
Umboð: Askja
l Útlit
l innrétting
l Verð á tengiltvinnútgáfu
l lítið skottrými
l sérlega í cabriolet
Mercedes Benz c-class coupé og cabriolet má fá með miklu úrvali vélarkosta, þ.e. með 170 og 204 hestafla 2,1 lítra dísilvélum og 156, 184, 211, 245 og 333
hestafla bensínvélum, auk aMg útgáfu bílsins með 367, 476 eða 510 hestafla kostum. fréttaBlaðið/gVa
Coupé eru fremur góðir, en hann
slær samt ekki við keppinautum
sínum hvað það varðar. Miklu
fremur er C-Class Coupé þægilegur
í akstri og allri meðhöndlun. Hann
eyðir ójöfnum vel, svo fremi sem
þær eru ekki of stórar. Fjöðrunin
er ekki of stíf og er greinilega sett
þannig upp að hún veiti þægindi
í akstri fremur en ómótstæðilega
hæfni í beygjum. Fyrir það munu
margir þakka, en mestu bílabrjál-
æðingarnir bölva í hljóði.
glæsileg innrétting
Þegar kemur að innviðunum í
C-Class Coupé er óhætt að gefa
Benz talsvert hrós. Innréttingin
er af miklum klassa og klæðir töff-
aralegt ytra útlit bílsins. Hægt er
að tala um nokkurn íburð þar og
meira að segja sætin eru talsvert
meira djúsí en í hefðbundnum
C-Class og ekki vantar rafstilling-
arnar í þeim. Allir ættu að finna
sína bestu akstursstöðu í þessum
bíl. Meira að segja má lengja setuna
fram á við og er það frábær kostur
í langakstri. Sem fyrr í Benz eru
stillitakkarnir í hurðum bílsins.
Aftursætin eru fyrir tvo og þó svo
ágætt sé að setjast í þau er fremur
þröngt um fullvaxna, bæði hvað
varðar fóta- og höfuðrými. Sjö
tommu aðgerðaskjár er fyrir miðju
mælaborði og er það snertiskjár.
Þar má flestu stjórna hæglega en
þó fundust ekki með góðu móti
stillingar fyrir hljóðkerfi bílsins
sem aldeilis átti að leika sér með,
en þar fór gríðarflott Burmeister
kerfi sem ekki varð þó notið til
fulls því það er greinilega fyrir
lengra komna að finna út úr still-
ingum þess á tveimur mínútum.
Eftir það finnst greinarritara til
siðs að hætta tilraunum sem þá
taka of langan tíma til að finnast og
virka. Skottrými í C-Class Coupé er
ekki sérlega mikið og enn minna í
Cabriolet, en þessir bílar eru ekki
hugsaðir fyrir stórfjölskyldur eða
til langra ferðalaga. C-Class Coupé
og Cabriolet eru ferlega flottir
bílar, en þó er rétt að benda áhuga-
sömum C-Class kaupendum á enn
eina gerð bílsins, C 350 e sem er
tengiltvinnbíll á aðeins 5.650.000
kr. en samt 279 hestöfl.
töffaraskapurinn heldur áfram
þegar inn í bílana er komið. segja
verður að þeir séu býsna laglegir
innanborðs. Klassískar lofttúð-
urnar eru á sínum stað og hin sér-
staka staðsetning stillitakka fyrir
framsætin er í hurðunum.
Mercedes Benz
C-Class Coupé og
Cabriolet eru bílar
sem allra augu fest-
ast á. Annar með sína
hallandi afturlínu og
hinn með blæjuna
niðri spila þeir á til-
finningaskalann.
Með mikinn íburð að
innan og mikið úrval
vélbúnaðar.
fjöðrun stillt
fyrir þægindi í akstri
Vélin vinnur vel með 9 gíra sjálf-
skiptingunni og svo margra gíra
skipting tryggir að vélin er alltaf á
sínum heppilegasta snúningi. Bæði
C 200 og C 200d útgáfur bílsins má
þó fá með beinskiptingu frá verk-
smiðjum Benz, þó svo Askja sé ekki
með þá í auglýstu vöruúrvalinu.
Mercedes Benz C-Class Coupé á sér
aðallega tvo keppinauta, Audi A5
Coupé og BMW 4 Series og þar fer
hörð samkeppni. Allir þessir bílar
hafa sína kosti, líklega er C-Class
Coupé þeirra þægilegastur, BMW 4
Series þeirra sportlegastur í akstri
og Audi A5 Coupé þeirra sparneyt-
nastur. Allir eru þeir samt fagrir
bílar sem vekja athygli hvar sem
þeir fara. Aksturseiginleikar C-Class
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
2
-2
0
C
8
1
C
E
2
-1
F
8
C
1
C
E
2
-1
E
5
0
1
C
E
2
-1
D
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K