Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 6

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 6
ÁRNI TÓMASSON, LÖGGILTUR ENDURSKOÐANDI Erindi á sumarráðstefnu 1.-3. júlí 1988 REKSTRARFORSENDAN - NOKKRAR HUGLEIÐINGAR UM „GOING CONCERN". INNGANGUR. Þegar þrengir að í efnahag landsmanna eykst umræða meðal endurskoðenda á því, hvernig árita skuli reikn- ingsskil fyrirtækja í rekstrarvanda. Hvaða ábyrgð hvflir á endurskoðendum við að meta stöðu þessara félaga, upplýsa lesendur ársreikninga um forsendur fyrir áframhaldandi rekstri og gera stjórnendum grein fyrir ábyrgð þeirra og skyldum. Sem innlegg í þessa umræðu mun ég fjalla lítillega um eftirtalin atriði: - Skilgreining hugtaksins „going concern principle" - Áhrif þess á ársreikning ef „going concern principle“ er ekki fyrir hendi. - Hvernig má merkja að „going concern principle" er ekki lengur fyrir hendi, hvaða vísbendingar gefa til kynna að til þessa muni koma; a) innan skamms tíma b) þegar til lengri tíma er litið. SKILGREINING. Eflaust vita flestir áhugamenn um reikningshald nokk- urn veginn hvað hugtakið „going concern principle11 fjallar um, en ekki er víst að allir orði hugsanir sínar á sama hátt. Eftirfarandi skilgreining styðst við fyrsta al- þjóðlega reikningsskilastaðalinn sem gefinn var út af Alþjóðlegu reikningskilanefndinni (IASC): „Going Concern Principle“ er forsenda fyrir því að rekstrareining haldi áfram starfsemi í framtíðinni. For- sendan byggir á því að rekstrareiningin hafi hvorki í hyggju, né þurfi að hætta starfsemi í náinni framtíð. Jafnframt byggir forsendan á því að ekki verði grund- vallarbreytingar á starfsemi rekstrareiningarinnar í ná- inni framtíð. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að finna gott ís- lenskt orð yfir „going concem principle" og hefur m.a. komið uppástunga um orðið „áframhaldandi rekstrar- hæfi“ í því sambandi. Hugtak þetta er ekki þjált í munni og langar mig til að gera tilraun til úrbóta og varpa því fram orðinu REKSTRARFORSENDA til að koma í staðinn fyrir „going concern". Orðinu er ekki ætlað að vera bein þýðing á erlenda hugtakinu, en með tilliti til skilgreiningarinnar hér að framan geri ég mér vonir um að orðið minni á merkingu hins erlenda hug- taks. Þótt ekki væri nema að lesendur leiddu hugann að betra og þjálla orði, fyndist mér betur af stað farið en heima setið og mun styðjast við orðið „rekstrarfors- enda“ í stað „going concern" í textanum hér á eftir. MIKILVÆGI REKSTRARFORSENDUNNAR. En hvað er svona mikilvægt við rekstrarforsenduna og hvers vegna er ávallt gert ráð fyrir að hún sé til staðar við gerð ársreikninga nema annað sé sérstaklega tekið fram? Ástæðan er sú, að mat eða virðing eigna í efnahags- reikningi samkvæmt góðri reikningsskilavenju er byggt á því að rekstrarforsendan sé fyrir hendi, þ.e. að fyrir- tækið haldi áfram starfsemi í framtíðinni og hyggi ekki á grundvallarbreytingar í rekstri. Með þetta í huga er ekki úr vegi að rifja upp reikningshaldslega skilgrein- ingu á eignum og fjárhæð þeirra: Eignir eru skilgreind- ar sem líkleg framtíðargæði í eigu ákveðins aðila, sem 6

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.