Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 39

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 39
Áritun með fyrirvara Við höfum endurskoðað ársreikning fyrir árið 19xx. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjármagnsstreymi og skýringar nr. 1 - x. Við endurskoðunina voru gerðar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum.'sem við töldum nauðsynlegar. Við endurskoðunina kom í ljós að skuldabréf að nafnverði kr. xxxx er talið til eignar í ársreikningi á því verði. Miðað við greiðsluskilmála, vaxtakjör og trygg- ingar skuldabréfsins má gera ráð fyrir að markaðsverð þess sé samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um kr. xxxx. Skuldabréfaeign virðist því ofantalin í ársreikn- ingi um kr. xxxx. Að teknu tilliti til þess fyrirvara sem fram kemur að ofan er það álit okkar að ársreikningurinn sé í samræmi við lög, félagssamþykktir og góða reikningsskilavenju og gefi glögga mynd af rekstri félagsins á árinu 19xx, efnahag þess 31. desember 19xx og breytingu á hreinu veltufé árið 19xx. Staður, dagsetning. Neikvæð áritun Við höfum endurskoðað ársreikning fyrir árið 19xx. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjármagnsstreymi og skýringar nr. 1 - x. Við endurskoðunina voru gerðar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum, sem við töldum nauðsynlegar. Við endurskoðunina kom í ljós að í ársreikningnum er ekki getið framkominnar skaðabótakröfu á félagið. Miðað við fyrirliggjandi mat á kröfunni má telja að skuldir séu verulega vantaldar í ársreikningi og að óvíst sé hvort félagið geti haldið áfram eðlilegri starfsemi. Með tilvísun til athugasemdac okkar að ofan er það álit okkar að ársreikningurinn sé ekki gerður í samræmi við lög, félagssamþykktir og góða reikningsskilavenju og gefi ekki glögga mynd af rekstri félagsins á árinu 19xx, efnahag þess 31. desember 19xx og breytingu á hreinu veltufé árið 19xx. Staður, dagsetning. Áritun án álits Við höfum endurskoðað ársreikning fyrir árið 19xx. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjármagnsstreymi og skýringar nr. 1 - x. Við endurskoðunina voru gerðar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum, sem við töldum nauðsynlegar að eftirfarandi undanskildu: Par sem við vorum fyrst kjörnir/tilkvaddir til endur- skoðunar á ársreikningi félagsins í byrjun febrúar sl. vorum við ekki viðstaddir talningu birgða, sem fram fór 1. og 2. janúar sl. Við gátum því ekki sannreynt talning- una, né höfum getað sannreynt birgðir á annan hátt síð- ar eftir fyrirliggjandi gögnum. Vegna þessara vandkvæða við endurskoðunina og sökum þess að verðmæti birgða skiptir í þessu tilviki verulegu máli við mat á afkomu og efnahag félagsins, látum við ekki í ljós álit á ársreikningunum. Staður, dagsetning. Leiðbeinandi reglur nr. 4. Leiðbeinandi reglur um gerð óendurskoðaðra reikningsskila og áritanir endurskoðenda á þau 1. Skilgreining 1.1. Með áritun hér á eftir er átt við yfirlýsingu end- urskoðenda um reikningsskil. Með reiknings- skilum er átt við reikningsskil þeirra aðila, sem skulu halda tvíhliða bókhald lögum samkvæmt. Áritanir skulu vera með skýru orðalagi þannig að ekki sé hætta á því að lesendur dragi mis- munandi ályktanir af þeim. 1.2. Markmið endurskoðanda með gerð óendur- skoðaðra reikningsskila er að veita viðskipta- vini sínum sérfræðilega aðstoð til þess að gera honum kleift að leggja fram reikningsskil, sem séu í samræmi við lög og góða reikningsskila- venju. 1.3. Reikningsleg aðstoð er að því leyti frábrugðin endurskoðun að beinum endurskoðunarað- gerðum er ekki beitt nema í takmörkuðum mæli. 2. Forsendur fyrir gerð óendurskoðaðra reikn- ingsskila 2.1. Þó reikningsskil séu ekki endurskoðuð, skal endurskoðandi sjá til þess að því markmiði, sem lýst er í lið 1.2. hér að framan, sé náð. Óendurskoðuð reikningsskil skulu gerð í sam- ræmi við góða reikningsskilavenju og er í því sambandi vísað í kafla nr. 3 hér á eftir. 2.2. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að endurskoðandi fái allar nauðsynlegar upplýsingar. Endur- skoðanda ber að sjá til þess að þær séu settar fram í samræmi við lög og góða reikningsskila- venju og takmarkast ábyrgð hans við það. 39

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.