Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 38

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 38
5. Álitsgerðir. 5.1. Áritun án fyrirvara. 5.1.1. Að endurskoðandi sé óháður samkvæmt 11. grein laga um löggilta endurskoðendur. 5.1.2. Að endurskoðað hafi verið í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Skal í þessu sambandi stuðst m.a. við „Leiðbeinandi reglur um grundvallaratriði endurskoðunar á ársreikningum hlutafélaga“. 5.1.3. Að reikningsskilin séu gerð í samræmi við grundvallarreglur um gerð reikningsskila í kafla 3 hér að framan. 5.1.4. Að ekki ríki veruleg óvissa um einstaka liði reikningsskilanna eða þróun og horfur um áframhaldandi rekstur. 5.2. Áritanir með fyrirvara. Fyrirvara í áritunum skal gera á þann hátt að les- andi reikningsskila geti gert sér grein fyrir þýðingu fyrirvarans við mat á afkomu og efnahag félagsins. Það álit, sem endurskoðandi lætur í ljós á reikn- ingsskilum, fer eftir þeim vandkvæðum sem eru á framkvæmd endurskoðunar, eftir framsetningu reikningsskila og eftir eðli óvissu. Helstu reglur um álitsgerðina eru þessar: 5.2.1. Álit með fyrirvara er gefið þegar fyrirvari er vegna eins eða fárra liða í reikningsskilum, vegna vandkvæða við að endurskoða, fram- setningar reikningsskila, eða vegna óvissu, en endurskoðandi telur að reikningsskilin gefi glögga mynd af afkomu og efnahag fé- lagsins að undanskildum þeim liðum, sem hann gerir fyrirvara um. 5.2.2. Neikvætt álit er gefið þegar verulegur galli er á framsetningu reikningsskila og endur- skoðandi telur þau því ekki gefa glögga mynd af afkomu og/eða efnahag félagsins. 5.2.3. Álit er ekki látið í ljós ef veruleg vandkvæði eru við framkvæmd endurskoðunar svo og ef veruleg óvissa er um mikilvægi liða reikningsskila eða grundvöll þeirra. Þau atriði sem m.a. ber að hafa í huga við áritun með fyrirvara eru eftirfarandi: a. Framkvæmd endurskoðunar. - Endurskoðandi hefur ekki aðgang að nauð- synlegum upplýsingum eða að endurskoðun er takmörkuð að einhverju leyti. - Nýkjörinn endurskoðandi getur ekki sann- reynt jöfnuði aðalbókar frá fyrra tímabili og/ eða samanburðartöflur fyrra tímabils. b. Framsetning reikningsskila. - Reikningsskil eru ekki gerð í samræmi við góða reikningsskilavenju eða ákvæði laga og samþykktir félags. - Ráðstöfun hagnaðar er ekki í samræmi við ákvæði laga eða samþykktir félags. - Um er að ræða önnur brot á lögum eða sam- þykktum félags. - Ef varúð er meiri en góð reikningsskilavenja gerir ráð fyrir svo að heildarmynd reiknings- skila skekkist. c. Óvissa. -'Ef verulegar veilur í bókhaldi og innra eftir- liti rýra grundvöll reikningsskila. - Ef að mati endurskoðanda er verulegur vafi á að félag geti haldið áfram rekstri, en í reikn- ingsskilum þess er gert ráð fyrir áframhaldandi rekstri. Það fer eftir eðli og mikilvægi fyrirvara í áritun hvort endurskoðandi leggur til að reikningsskil séu ekki samþykkt á aðalfundi félags. Gera má ráð fyrir að slíkt leiði alltaf af neikvæðu áliti, en geti einnig leitt af áliti með fyrirvara eða áritun þar sem álit er ekki látið í ljós. Endurskoðanda ber að gera stjórnendum félags grein fyrir tilvikum, sem geta leitt til fyrirvara í áritun, áður en frágangi reikningsskila er lokið. Komist endurskoðandi að raun um að í reikn- ingsskil vanti upplýsingar, sem lög og góð reikn- ingsskilavenja gera ráð fyrir, skal hann í áritun sinni veita slíkar viðbótarupplýsingar. Endur- skoðanda ber að gera stjórnendum félags grein fyrir tilvikum, sem krefjast viðbótarupplýsinga í áritun, áður en frágangi reikningsskila er lokið. Janúar 1988 Dæmi um áritanir á endurskoðuð reiknings- skil Áritun án fyrirvara Við höfum endurskoðað ársreikning fyrir árið 19xx. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjármagnsstreymi og skýringar nr. 1 - x. Við endurskoðunina voru gerðar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum, sem við töldum nauðsynlegar. Það er álit okkar að ársreikningurinn sé í samræmi við lög, félagssamþykktir og góða reikningsskilavenju og gefi glögga mynd af rekstri félagsins á árinu 19xx, efnahag þess 31. desember 19xx og breytingu á hreinu veltufé árið 19xx. Staður, dagsetning. 38

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.