Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 10

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 10
ing. í því sambandi getur verið gagnlegt að athuga hæfi félagsins til endurnýjunar og hvaða fjármögnun- armöguleikar standa til boða. Ýmis ytri skilyrðir sem nánar verður vikið að hér á eftir. Að síðustu vil ég nefna ýmis ytri skilyrði sem geta haft veruleg áhrif á rekstrarforsendu fyrirtækja og geta í vissum tilvikum verið afgerandi þáttur: - Lagasetningar. Hér er af nógu að taka og nægir að nefna skatta- og tollalagabreytingar. - Áherslubreytingar stjórnvalda og lánastofnana. Hér má nefna gengismál, vaxtamál, réttindi til fjárfest- inga- og rekstrarlána. - Umhverfismál. Hér nægir að nefna mengunarvarnir, verndun, friðun og skipulagsmál til að minna á ýmis dæmi. - Markaðsmál. Hér má annarsvegar nefna inn- og út- flutningsleyfi og tolla og hins vegar vörumerki og einkaleyfi ýmis konar. Nærtæk dæmi er að finna í samgöngumálum og fiskútflutningsmálum að því er þetta varðar. - Vinnuafl. Er nægilegt framboð á vinnuafli, er þekk- ing og þjálfun vinnuafls næg, eru verkföll tíð. Allt eru þetta mikilvæg atriði sem tengjast rekstrarfor- sendunni. - Aðföng. Er skortur á aðföngum, eru auðlindir að ganga til þurrðar. í þessu sambandi koma í hugann ýmis atriði tengd sjávarútvegi t.d. síldin og umræða um aðföng Kísiliðjunnar við Mývatn fyrir nokkrum árum. LOKAORÐ. Hér að framan hef ég fjallað um ýmis atriði er tengjast rekstrarforsendunni (going concern) og hvernig helst megi greina fyrirboða rekstrarstöðvunar í tíma. f>að skal ítrekað að á engan hátt er um tæmandi upptaln- ingu að ræða og horfa verður á rekstrareininguna sem heild og umhverfi hennar áður en lagt er mat á hvort rekstrarforsendan er fyrir hendi eða ekki, með öllum þeim afleiðingum sem það hefur í för með sér. Við skulum ekki gleyma þeirri ábyrgð sem á stjórnendum og endurskoðendum hvílir, að þær tölur sem ársreikn- ingur birtir séu áreiðanlegar. Sé grunnurinn ekki traust- ur verður ákvarðanatakan, sem á honum byggist, það ekki heldur. FYLGIST MBÐ EFNAHAGSMALUM í Hagtölum mánaðarins birtast töflur um: ■ Peningamál ■ Greiðslujöfnuð ■ Utanríkisviðskipti ■ Ríkisfjarmál ■ Framleiðslu ■ Fjárfestingu ■ Atvinnutekjur og íleira ■ Auk yfirlitsgreina um efnahagsmál / Seðlabanki Islands Hagfræðideild Kalkofnsvegi 1, 150 ReykjavíkS 699600 10

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.