Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 28

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 28
Frá fastanefndum FLE til samræmingar á þeim og þessar fyrirmyndir. Form og framsetning íslenskra ársreikninga byggist enn fyrst og fremst á þeim hugmyndum, sem á þessum fundi voru kynntar. Af öðru efni, sem lagt hefur verið fram á undan- förnum árum má nefna hugmyndir um framsetningu tekjuskatts, álitsgerð um bókun kaupleigusamninga, álitsgerð um fjármagns- og sjóðsstreymi, og hugmyndir um reikningsskilareglur verktakafyrirtækja. A árinu 1982 lagði reikningsskilanefndin fram hug- myndir að endurbótum á leiðréttingum, sem fram til þess tíma, voru gerðar í reikningsskilum fyrirtækja og vörðuðu áhrif verðbólgunnar á mælingar á afkomu og efnahag þeirra. Með þessum hugmyndum var lagður grunnur að nákvæmari útreikningi á áhrifum verðbólg- unnar á efni ársreikninga. Þessu starfi var framhaldið með álitsgerð um sama efni, sem lögð var fram á árinu 1985. Enn er þessu starfi ekki lokið og betrumbæta má það afkomuhugtak, sem í þessum skrifum fólst. Til dæmis að taka má benda á, að þörf getur verið á endur- mati varanlegra fjármuna, sem tekur tillit til mismun- andi breytinga á endurkaupsverði þeirra. Þá mættti endurbæta þann hluta rekstrarreikningsins, sem skýrir frá fjármagnskostnaði. Og meira samræmi þarf að vera í því, hvaða vísitölur eru notaðar hjá hinum ýmsu rekstraraðilum. Nú skal nokkrum orðum farið um störf nefndarinnar á yfirstandandi starfsári og fyrirhuguðum verkefnum á næstunni. í maí á þessu ári stóð nefndin fyrir heimsókn framkvæmdastjóra Alþjóðlegu reikningsskilanefndar- innar til íslands. Þessi nefnd var stofnuð á árinu 1973 að tilstuðlan nokkurra landa, sem töldu brýna nauðsyn á því að samræma reikningsskil fyrirtækja í heiminum, meðal annars vegna aukinna viðskipta á milli landa. Um þessar mundir eiga um 100 fagfélög endurskoðenda aðild að nefndinni. Tildrög þess, að íslenska reiknings- skilanefndin bauð framkvæmdastjóranum hingað til lands eru annars vegar þau, að alþjóðlega nefndin hafði nýlega gefið út drög af staðli um ársreikningagerð við skilyrði óðaverðbólgu; þau þótti ástæða til að kynna, enda á Félag löggiltra endurskoðenda aðild að alþjóð- legu nefndinni. Hins vegar þótti íslensku reikningsskila- nefndinni ástæða til þess að leyfa forráðamönnum fyrir- tækja hér á landi að heyra álit framkvæmdastjórans á ís- lensku reikningsskilunum. Því miður voru þeir tveir fundir, sem boðað var til af þessu tilefni ekki fjölmennir, og af þeim sökum tókst heimsóknin ekki eins vel og annars hefði verið. Tvennt skal bent á úr máli framkvæmdastjórans. Annars vegar það, að hann taldi það ekki árangursríka aðferð við að útskýra efni verðbólguleiðrétts ársreiknings að greina frá tæknilegum atriðum er lúta að útreikningi verðleið- réttingarfærslnanna. Það hefðu breskir endurskoðend- ur gert á sínum tíma, þegar skylda var að semja verð- leiðrétt uppgjör þar í landi, og honum virtist sem ís- lenskir endurskoðendur hefðu fallið í sömu gildru. Árangursríkara væri að skýra efni slíkra ársreikninga með almennum orðum, svo lesandi mætti túlka megin- niðurstöður þeirra á réttan hátt; hvernig færslurnar væru reiknaðar út væri óþarfi að skýra, raunar til þess eins fallið að rugla menn í ríminu. Hitt atriðið, sem fram kom í máli framkvæmda- stjórans og ástæða er til þess að vekja athygli á, er að hann lýsti því yfir, að íslenskir ársreikningar, samdir að hætti fráviksaðferðar, væru í fullu samræmi við fýrir- hugaðan staðal Alþjóðlegu reikningsskilanefndarinnar. Reikningskilanefndin lítur svo til, að þessi yfirlýsing sé mikill stuðningur við þær endurbætur sem gerðar hafa á íslenska ársreikningnum á undanförnum árum, og stutt- lega var gerð grein fyrir hér að framan. Á þessu starfsári hefur reikningsskilanefndin lagt fram drög að tveimur álitsgerðum. Önnur fjallaði um bókun fjárfestinga í skuldabréfum og hlutabréfum, en hin um svonefnd milliuppgjör. Drögin voru lögð fram á ráðstefnu, sem haldin var á Akureyri í október. Stefnt er að því að koma drögunum í endanlegan búning á þessu ári. Þar sem nokkur aukning hefur verið á fjárfestingum fyrirtækja í skuldabréfum og hlutabréfum á síðustu misserum, þótti nefndinni ástæða til þess að fjalla um bókun slíkra fjárfestinga. í drögunum eru kynnt viðhorf nefndarinnar til bókhaldsmeðferðar affalla af skulda- bréfum. Mælt er með því, að þeim sé dreift á rekstur miðað við virka vexti og að þau séu verðbætt, ef við- komandi skuld er verðtryggð. Nokkur munur mun vera á bókhaldslegri framkvæmd í þessu efni, svo að veru- legum fjárhæðum getur munað, og af þeim sökum var þetta mál tekið upp. Þá er í drögunum kynnt aðferð til að færa fjárfestingar í hlutabréfum. Fram til þessa hafa íslensk fyrirtæki ekki mikið gert að því að kaupa hluta- 28

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.