Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Page 17

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Page 17
hringnum á gjörgæsludeildinni. Meðal þessara fyrir- tækja var stór peningastofnun, Sparisjóður sjálenskra bænda. Við þessar aðstæður létu þingmenn i Dan- mörku sannfærast um að þörf væri fyrir sérmenntaða stétt endurskoðenda þar í landi. Sem kunnugt er voru fyrstu lög um löggilta endur- skoðendur hér á landi sett á árinu 1926. Ég hef ekki gefið mér tíma til að rekja framgang þess máls með því að lesa Alþingistíðindi frá þessum árum en þótt ég fari ofurlítið út fyrir meginefni þessa erindis vil ég leyfa mér að lesa hér fyrstu málsgrein í athugsemdum með laga- frumvarpinu um löggilta endurskoðendur sem sam- þykkt var 1926. Pessi málsgrein hljóðar svo. „Frumvarp um löggilta endurskoðendur hefur oft verið borið fram á Alþingi og oftar en einu sinni verið samþykkt í neðri deild. A þingi 1925 var það enn flutt og var þá samþykkt í neðri deild en varð ekki útrætt í efri deild sökum tímaskorts. Það þykir því rétt að flytja það enn á ný þar sem því virðist ekki verða neitað að lög um þetta efni séu nauðsynleg. Það hlýtur öllum að vera ljóst að þar sem svo stórir bæir eru og nú er sum- staðar orðið hér á landi hlýtur að vera þörf fyrir menn sem gera endurskoðun að aðalstarfi sínu enda ber þess raun vitni hér í bæ og ef til vill víðar. Pað er og afar eðlilegt að til þessara manna leiti þeir sem þurfa að fá endurskoðun framkvæmda. Af þessu er það bert að nokkur skylda hvíli á því opinbera um það að við þetta starf fáist ekki aðrir en þeir sem trúandi er til, bæði vegna þekkingar og mannkosta, að rækja það sæmi- lega“. Svo mörg eru þessi athyglisverðu og um sumt skemmtilegu orð. Ég ímynda mér að nokkuð fljótlega eftir Albertimálið og fyrstu löggjöf um löggilta endur- skoðendur í Danmörku hafi þótt hlýða að setja lög um þetta efni hér á landi. Málið fékk hins vegar hægan framgang eins og fram kom í þeim orðum sem ég var að lesa og væri fróðlegt að athuga hvort endanleg af- greiðsla þess stóð með einhverjum hætti í sambandi við vandamál í rekstri fyrirtækja hérlendis á fyrstu þremur áratugum þessarar aldar, þar á meðal hvort eitthvert samband var við þær sviptingar í bankamálum sem áttu sér stað á þessum árum. En þótt sögulegur fróðleikur sé skemmtilegur ætla ég nú að snúa mér til nútímans og þess veruleika sem mæt- ir endurskoðendum hér á landi í dag þegar þeir vinna fyrir fyrirtæki sem komin eru í umtalsverðan rekstrar- legan og fjárhagslegan vanda. 2. Hvaða störf vinna endurskoðendur fyrir fyrir- tæki í rekstrarvanda? Ég sagði áðan að ég teldi að þörfin fyrir óháða og kunnáttusama skoðun reikningsskila væri sjaldan ljósari en þegar í hlut eiga fyrirtæki í rekstrarvanda. Nefna má fjölmörg dæmi þess að endurskoðendur koma hvað skýrast fram í sviðsljós þjóðfélagsins við slíkar aðstæð- ur. Við eðlilegar þjóðfélagsaðstæður ætti þó ekki nema lítill hluti af tíma endurskoðenda að fara í það að sitja við sjúkrabeð fyrirtækja sem eru í rekstrarvanda af ýmsu tægi. Menntun endurskoðenda, og ýmsar vinnu- reglur sem þeir hafa sett sér, miðast því að sjálfsögðu fyrst og fremst við að viðskiptaaðilar þeirra séu fyrir- tæki sem ekki eru haldin bráðum fjárhagslegum eða rekstrarlegum sjúkdómum. En þegar rekstrarlegir sjúk- dómar berja að dyrum hvaða þjónusta er það sem end- urskoðendur geta veitt sjúkum fyrirtækjum? Ráða end- urskoðendur ef til vill yfir sérstökum lyfjum eða sér- stökum uppskurðartækjum til að grípa til í slíkum tilvikum? Ég held að við getum verið sammála um að svarið við síðari spurningunni er í meginatriðum neikvætt. Endurskoðendur fara yfirleitt ekki í sérstakan meðala- skáp eða sérstaka verkfæratösku þegar þeir þurfa að sinna lasburða fyrirtæki. Sú þjónusta sem endurskoð- endur bjóða er í eðli sínum mjög svipuð hvort sem í hlut eiga heilbrigð eða sjúk fyrirtæki en nokkur mis- munur getur hins vegar verið á nánari útfærslu þjónust- unnar í þessum tveimur tilvikum. Ég nefni þó þá und- antekningu í þessu sambandi að útfararþjónustu þarf ekki að veita heilbrigðum viðskiptaaðilum en störf fyrir lasburða fyrirtæki geta endað með því að endur- skoðandinn verður að taka fram guðsorðabókina og sorgarklæðin og fylgja fyrirtækinu síðasta spölinn. Það fer ekki á milli mála að hefðbundin uppgjörs- vinna er fyrirferðarmesti þátturinn í þjónustu endur- skoðenda við fyrirtæki sem eru í rekstrarvanda. Eins og í öðrum tilvikum getur hér ýmist verið um endurskoðuð eða óendurskoðuð uppgjör að ræða. Sá áherslu- eða út- færslumunur sem mér sýnist alloft gæta í þessu efni þeg- ar fyrirtæki er komið á hættustig í rekstri felst í því að óskir eigenda og/eða lánveitenda og /eða opinberra að- ila hníga gjarnan í þá átt að meiri vinna sé lögð í upp- gjörið en þegar allt lék í lyndi hjá fyrirtækinu. Þetta getur hreinlega komið fram í því að einhver þessara að- ila óskar nú eftir því að uppgjörið sé endurskoðað þótt svo hafi ekki verið á liðnum árum. Einnig getur þetta verið þannig að óskir koma fram um ítarlegar athuganir að tilteknum atriðum í rekstri og efnahag enda þótt ekki sé stefnt að því að um fullendurskoðað uppgjör verði að ræða. Þegar endurskoðandi situr við sjúkrabeð fyrirtækis má ætla að ýmis konar áætlanavinna, fyrst og fremst rekstrar- og greiðsluáætlanir, komi næst á eftir upp- gjörsvinnu að því er varðar umfang veittrar þjónustu. Vissulega getur bókhaldsaðstoð verið töluverð í slíkum tilvikum en ég sé ekki ástæðu til að fjalla frekar um hana hér. í mínu starfi hef ég ekki fengist ýkja mikið við áætlanagerð en einna umfangsmesta starf mitt á þessu sviði vann ég fyrir fyrirtæki sem var í miklum rekstrarvanda og varð raunar gjaldþrota nokkrum mán- uðum eftir að áætlanirnar lágu fyrir. Vissulega er áætl- 17

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.