FLE blaðið - 01.01.2016, Side 11

FLE blaðið - 01.01.2016, Side 11
Löggildingarpróf til endurskoðunarstarfa Árni Tómasson er endurskoðandi og formaður prófnefndar Hér á eftir verður fjallað um próf til öflunar endurskoðunarrétt- inda; hvaða reglur gilda, framkvæmd prófanna, hvernig til hefur tekist og hugleiðingar um hverju má breyta. Um skilyrði þess að gangast undir löggildingarpróf Með lögum nr. 79/2008 um endurskoðendur er fest í lög hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til þess að öðlast löggildingu til endur- skoðunarstarfa. Kemur fram í 2. gr. laganna að þeir þurfi m.a. að hafa lokið meistaranámi í endurskoðun og reikningsskilum sem viðurkennt er af endurskoðendaráði, að hafa starfað að lágmarki í þrjú ár undir handleiðslu endurskoðenda við endurskoðun árs- reikninga og annarra reikningsskila hjá endurskoðunarfyrirtæki og að hafa staðist sérstakt próf sbr. 5. gr. laganna. Að því er varðar fyrsta liðinn hefur verið miðað við meistaranám i HÍ og HR eða sambærilegt nám og er þetta til samræmis við kröfur í EES löndum. Þeir sem lokið hafa námi í löndum utan EES eða vafi leikur að öðru leyti á um að þeir hafi uppfyllt ákvæði laganna að því er þennan átt varðar, geta leitað til endurskoð- endaráðs um staðfestingu á því að nám þeirra uppfylli kröfur laganna. Að því er varðar annan liðinn um starfsnám var í lögunum fallið frá eldri kröfu um að hluti starfsnáms færi fram eftir að meistara- námi á háskólastigi lyki og einnig var hnykkt á því að starfsnám færi fram undir handleiðslu endurskoðenda hjá endurskoðunar- fyrirtæki og fælist í endurskoðun reikningsskila. Var verið að bregðast við því að áður höfðu nemar starfað í reikningshaldi eða innri endurskoðunardeildum fyrirtækja undir handleiðslu löggilts endurskoðanda og talist þannig hafa uppfyllt ákvæði laganna. Það var ekki talið nægjanlegt lengur, en að öðru leyti hefur við framkvæmd á þessu ákvæði laganna verið látið nægja að ganga úr skugga um að viðkomandi aðili sem hyggst gangast undir próf hafi verið tilkynntur í starfsnámi til Félags Löggiltra Endurskoðenda og að fyrir liggi yfirlýsing endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis um að þessari kröfu hafi verið fullnægt. í þessu sambandi má m.a. vísa til greinar 130.5 í Siðareglum endurskoðenda en þar segir: „Endurskoðandi skal gera ráðstaf- anir til að tryggja að þeir sem starfa undir stjórn hans í faglegu tilliti fái viðeigandi þjálfun og leiðsögn". Að því er varðar tíma- lengd hefur verið miðað við 4.950 vinnustundir í heild, sem svarar til 1.650 vinnustunda á ári að jafnaði. Um þriðja liðinn, próf til löggildingar, verður fjallað síðar. Þess skal getið að úrskurði prófnefndar um hvort fullnægt sé skilyrðum til að mega gangast undir próf er ávallt unnt að skjóta til endurskoðendaráðs til ákvörðunar. Ekki hefur verið ágreiningur um menntunarkröfur og endur- skoðendum hefur verið látið eftir að leggja mat á hvort starfs- nám það sem þeir bjóða upp á sé nægjanlega fjölbreytt. í stærri endurskoðunarfyrirtækjunum eru álitaefnin væntanlega þau hvort sérhæfing sé of mikil, hvort nemar eigi þess kost að vinna jöfnum höndum að endurskoðun, reikningshaldi, skatt- skilum og öðrum sérverkefnum, hvort notkun á fyrirframútbún- um stöðluðum lausnum komi niður á grundvallarskilningi sem að baki býr og hvort nemar fái í nægjanlega ríkum mæli að taka þátt í lausn á vandasömum verkefnum með heildarmynd i huga. í minni endurskoðunarfyrirtækjunum snúa álitaefnin væntanlega fremur að því hvort nemar fái í nægjanlega ríkum mæli að spreyta sig á verkefnum sem kalla á notkun alþjóð- legra endurskoðunar- og reikningsskilastaðla og hvort mennt- unar- og gæðakerfi fyrirtækisins veiti nemum fullnægjandi stuðning. Hér eru tilgreind nokkur dæmi sem fram hafa komið, en Ijóst er að mjög kefjandi er að veita nemum alhliða þjálfun þannig að öllum sjónarmiðum sé mætt. Því hefur verið haldið fram að það líði of langur tími frá því nemar setja stefnuna á að hljóta löggildingu til endurskoðunar, þar til í Ijós kemur hvort þeir standast faglegar kröfur. Þetta er um margt réttmæt ábending, þannig tekur það oftast 8-10 ár frá því nám er hafið á háskólastigi þar til í Ijós kemur hvort við- komandi aðili stenst þær kröfur sem gerðar eru til þess að hljóta réttindi sem endurskoðandi. Vandasamt er að gera hér úrbætur án þess að slaka á kröfum og ef horft er til nágranna- landa virðist svipaður háttur á hafður og hér á landi. Hugsa mætti sér stöðupróf eða árlega umsögn umsjónarendurskoð- anda til þess að leiðbeina nemum fyrr í ferlinu. Ef litið er hlut- lægt á málið hafa vísbendingar væntanlega komið fram á fyrri stigum, þannig er því ekki að leyna að talsverð fylgni er milli einkunna úr háskóla og árangri í löggildingarprófum, þó að á þvi séu talsverð frávik. Ennfremur ber að hafa í huga að þó nemar nái ekki tilskilinni lágmarkseinkunn á löggildingarpróf- um, nýtist þekking þeirra í yfirgnæfandi tilvika mjög vel innan endurskoðunarfyrirtækjanna eða í öðrum fyrirtækjum og stofn- unum. Um löggildingarprófin og framkvæmd þeirra í 5. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur er fjallað um próf til öflunar endurskoðunarréttinda. Kemur þar fram að prófin skuli ná til þeirra greina bóknáms og verkmenntunar sem helst varða endurskoðendur og störf þeirra, próf skuli að jafnaði haldin einu sinni ár hvert og að próftökugjald skuli standa undir kostnaði við framkvæmd prófanna. Að öðru leyti er visað til FLE blaðið janúar 2016 • 9

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.