FLE blaðið - 01.01.2016, Side 14

FLE blaðið - 01.01.2016, Side 14
Með aukinni sérhæfingu innan þess efnissviðs sem löggild- ingarprófin taka til, hefur komið til umræðu í prófnefnd hvaða kröfur sé eðlilegt og sanngjarnt að gera til próftaka um sérhæf- ingu t.d. í skattarétti, upplýsingatækni og fleiri greinum. Niðurstaða nefndarinnar hefur verið sú að krefjast annars vegar þekkingar sem gerir endurskoðendum kleift að leysa almenn viðfangsefni innan efnissviðs prófanna og hins vegar að hafa næga þekkingu til að bera til að gera sér grein fyrir hvenær kalla þarf til frekari sérfræðiaðstoð í samræmi við ákvæði staðla og siðareglna. Loks hefur verið fundið að framkvæmd prófanna, einkum því að aðbúnaður í prófum sé ekki nægjanlega góður, að prófmenn geti ekki nýtt sér eigin tölvur og séu ekki að vinna í umhverfi sem þeir eiga að venjast. Þetta er um margt réttmæt gagnrýni, sem prófnefndin hefur rætt og reynt að finna lausnir á. Próftakar þurfa að standa undir öllum kostnaði við prófin og til þess að halda honum niðri hefur prófnefndin notið velvildar háskólanna, á síðustu árum Háskólans í Reykjavík, með aðgengi að tölvuverum þeirra. Þróun mála í skólunum er hins vegar sú að dregið hefur úr umfangi tölvuvera og skýrir það hve þröngt hefur verið um próftaka í löggildingarprófum á síðari árum. Prófnefndin stefnir að því að próftakar geti notað eigin tölvur og haft með sér allar upplýsingar á rafrænu formi þegar fram í sækir. í þessu sambandi þarf þó að tryggja að farið sé að kröfum um próf á háskólastigi og að próftakar fari að fyrir- mælum um það hvaða aðstoðarforrit megi styðjast við og hver ekki. í þessu sem öðru ræður tíðarandi og tækni för að vissu marki, en aldrei má þó missa sjónar á því mikilvæga hlutverki sem endurskoðendur gegna við að sannreyna réttmæti fjár- hagsupplýsinga og er ég þeirrar skoðunar að próf til staðfest- ingar á hæfi einstaklinga til að gegna þessu starfi eigi ávallt að vera krefjandi. Árni Tómasson Nýir félagar 2016 FLE hefur borist listi yfir þá sem stóðust tilskilin verkleg próf sem fram fóru dagana 12. og 14. október 2015 og hafi þar með öðlast rétt til að fá löggildingu sem endurskoðendur. Niðurstaða nefndarinnar er sú að eftirtaldir átta ein- staklingar hafi staðist tilskilin verkleg próf. Það er gleðilegt að sjá að í hópunum eru tveir sem koma frá minni endur- skoðunarfyrirtækjum, en undanfarin ár hafa eingöngu einstaklingar frá fjórum stærstu stofunum komist í gegnum nálaraugað. Prófnefnd hefur sent listann til Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem veitir löggildinguna form- lega. Til hamingju með þetta öll og velkomin í félagið. Kristján Þór Ragnarsson, Magnús Mar Vignisson, Oddný Assa Jóhannsdóttir, Örvar Omrí Óiafsson, Deloitte PwC KPMG BDO 12 • FLE blaðið janúar 2016

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.