FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 24

FLE blaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 24
Flýting álagningar opinberra gjalda Skúli Eggert Þórðarson er ríkisskattstjóri Meginfyrirkomulag síðustu ára Álagning opinberra gjalda einstaklinga og lögaðila ár hvert hefur verið í tiltölulega föstum skorðum undanfarin ár. Á það m.a. við um birtingu álagningar en hún hefur verið með þeim hætti síðasta hálfan annan áratug að einstaklingar sem staðið hafa skil á skattframtali hafa fengið niðurstöðu álagningar í lok júlí og framtaldir lögaðilar í lok október ár hvert. Hvor hópur fyrir sig fær niðurstöðuna í einu lagi á einum og sama tíma, svo framarlega sem skattframtali ásamt viðeigandi fylgiskjölum hafi verið skilað. Þeir sem ekki hafa staðið skil á skattframtali innan tímamarka skilatíma og hafa sætt áætlun skattstofna við álagninguna sjálfa en skila skattframtali síðar fá raunálagningu með kæruúrskurði eða eftir atvikum sem afgreiðslu á erindi. Loks er sá hópur sem aldrei skilar framtali og sætir áætlun opinberra gjalda við álagningu sem stendur óbreytt án leiðrétt- ingar um ókomin ár. Allt hljómar þetta kunnuglega fyrir endur- skoðendum og öðrum þeim sem atvinnu hafa af framtalsgerð þar sem vinnulag og vinnuskipulag á álagningartíma hefur skipt miklu máli. Breytingar í augsýn Álagningin hefur fyrir fagaðila í framtalsskilum verið eins og fastur þáttur í tilverunni og að þessu hefur verið gengið ár hvert og ugglaust finnst einhverjum að þetta sé eitthvað sem alltaf hafi verið - og breytingar þar á séu fjarlægar. Álagning lögaðila hefur þó ekki verið svo lengi aðskilin frá birtingartíma álagningar einstaklinga, en síðar í greinarkorni þessu verður vikið að því. Á þessu verður eins og öðru breytingar eftir því sem þróun og þarfir þjóðfélagsins krefjast - álagningin og fyrir- komulag hennar er einn þeirra verkþátta skattframkvæmdar- innar sem taka mun breytingum eins og annað. Þar þarf að horfa til markmiðs og tilgangs álagningar opinberra gjalda ár hvert, þar sem ekki einungis ákvörðunin um hve mikið hvér skattaðili skuli greiða í opinber gjöld skiptir máli, heldur einnig hvernig tekjur, gjöld, eignir og velta í samfélaginu þróast og skiptist milli atvinnugreina og innan fyrirfram skilgreindra hópa. Endurmat á framkvæmdinni er nú á döfinni hvað varðar álagn- ingartímann og fyrstu breytingar þar á koma til framkvæmda þegar á þessu ári. Að öllum líkindum er stutt í að næstu skref verði stigin. Almennt má um skattframkvæmdina segja að hún hafi á und- anförnum árum gengið í gegnum mikla endurnýjun þar sem flest hefur verið tekið til endurmats og í kjölfar þess hafa orðið breytingar á verklagi bæði hjá starfsmönnum skattyfirvalda og þeim sem sýsla við gerð skattframtala og forsendna þeirra. Þannig fer óðum að styttast í að tímamörk álagningar verði einnig sá þáttur skattframkvæmdarinnar sem taka mun breyt- ingum og það jafnvel umtalsvert. Rétt er þó áður en lengra verður haldið að horfa til liðins tíma og rifja upp hvernig mál hafa þróast í tímanna rás. Þar er ágætt að hafa hugfast að margt á sér sögulegar skýringar og alltaf eru ástæður á öllum tímum fyrir einstökum ákvörðunum sem oft standa og sæta ekki breytingum - stundum af því að enginn veit forsendur þeirra. Eldra fyrirkomulag Þeir sem eldri eru í endurskoðendastétt minnast ugglaust flestir dagsetninganna 19. og 31. janúar en þeir dagar voru lykildagsetningar árum saman hjá skattyfirvöldum og almenn- ingi öllum. Fyrri dagurinn var síðasti skiladagur launamiða. í auglýsingum þess tíma var brýnt fyrir launagreiðendum að skila gögnum í síðasta lagi þann dag en ekki síður að skrá sam- viskusamlega nafnnúmer launamanns - sem þá var notað sem auðkenni - á alla launamiða. Verkefni margra endurskoðenda- og bókhaldsstofa á þessum árstíma var þannig að liðsinna launagreiðendum og stemma þetta tímanlega af svo unnt væri að skila gögnum á réttum tíma. Síðari dagsetningin var enn afdráttarlausari. Þann dag var skilafrestur skattframtala manna í áratugi eða allt til ársins 1980 þegar áhrifa laga nr. 40/1978 tók að gæta í skattframkvæmdinni. Miklar annir voru við að aðstoða einstaklinga við framtalsskilin og „vertíðin" sem svo var iðulega nefnd, var mikil og þetta var krefjandi tími hjá endurskoðendum og öðrum aðilum sem höfðu framtalsskil og uppgjör að aðalstarfi. Á þessum árum fór öll álagning opinberra gjalda fram á sama tíma, þ.e. bæði á menn og lögaðila og var 31. júlí ár hvert. Kæruafgreiðslan hófst síðan fljótlega og hún tók oft á tíðum langan tíma og í einstaka tilfellum nokkur ár og gat verið mismunandi eftir skattumdæmum. Einnig hefur verið heimild til að senda inn skatterindi, þ.e. þeir sem misstu af því að senda inn framtöl á réttum tíma og einnig í kærufresti gafst kostur á að óska eftir breytingum á álagningu opinberra gjalda eða breytingum á einstökum liðum framtals þótt kærufrestur væri liðinn. Slík heimild hefur verið í lögum áratugum saman. Afgreiðsla skatterinda gat reyndar á stundum tekið langan tíma og ekki var óalgengt að afgreiðslunnar væri beðið uppundir eitt ár og stundum meira en það. Með skattalagabreytingunum sem urðu með lögum nr. 40/1978 jókst mjög erindafjöldinn og afgreiðslutíminn gat þannig lengst. Á síðustu árum hefur verið lögð áhersla á það af hálfu ríkisskattstjóra, einkum eftir að öll staðbundin skattstjóraembætti voru lögð niður og verk- efni felld undir ríkisskattstjóra, að stytta úrskurðatíma verulega og sömuleiðis afgreiðslutíma skatterinda. Hefur þetta tekist f flestum tilfellum og árangurinn hefurfarið batnandi. Þær breyt- 22 • FLE blaðiðjanúar2016

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.